Fréttir - Eyjafréttir - feb. 2019, Síða 18
18 | Eyjafréttir | Febrúar 2019
Þau hófu ævintýrið fimm
talsins þegar þau tókum þátt
í nýsköpunaráfanga- og ný-
sköpunarkeppni við Háskólann
í Reykjavík vorið 2017. Í þeim
áfanga áttum þau að koma
með hugmynd að nýsköpun,
stofna fyrirtæki og fylgja því
eftir. Á rúmum þremur vikum
varð Volcano seafood sem
þau fóru með í nýsköpunar-
keppnina og kepptu þar við 67
önnur lið. Þau gerðu sér lítið
fyrir og unnu tvenn verðlaun
í keppninni og þar á meðal
aðalverðlaunin sem eru Guð-
finnuverðlaunin. Í dag er verk-
efnið komið á full og Volcano
seafood komið í sölu.
Frumkvöðlarnir sem eru á bakvið
Volcano Seafood í dag eru þau
Dagur Arnarsson, Guðný Bernó-
dusdóttir, Gunnar Heiðar Þorvalds-
son og Svanhildur Eiríksdóttir.
„Hugmynd okkar var að bragð-
bæta þurrkaða keilu sem okkur
fannst vera mjög vannýtt afurð á
Íslandi. Við vildum ekki gera enn
einn harðfiskinn og vildum heldur
reyna að taka út þá hluti sem ekki
öllum líkar við eins og lyktina
sem er að harðfisknum og þá
staðreynd að hann molnar mikið.
Með aðferðum okkar höfum við
minnkað lyktina mjög mikið og
vörurnar okkar molna nær ekkert.
Við vildum gera hágæða snakk sem
okkur finnst harðfiskurinn vera.“
Heimsmeistaramót
í nýsköpun
Í þessari nýsköpunarkeppni var
hópurinn staðráðin í að taka ein
verðlaun í keppninni þar sem
hugmyndin þeirra féll undir, en
það voru sjávarútvegsverðlaunin.
„Verandi í nýju námi tengdu
sjávarútvegi hugsuðum við að
þetta væri gríðarlega góð auglýsing
fyrir námið okkar. Aðalverðlaun
keppninnar voru síðan Guðfinnu-
verðlaunin og unnum við þau líka,
en var það í fyrsta skipti í sögu
Háskólans í Reykjavík sem það
gerðist að sama fyrirtæki tók tvenn
verðlaun í þessari keppni. Með
því að sigra Guðfinnuverðlaunin
fengum við keppnisrétt á heims-
meistaramóti í nýsköpun fyrir hönd
HR sem haldið var í Danmörku
síðar þetta ár. Þar unnum við líka
til verðlauna, “Best brand award”
eða “Besta vörumerkið” þar sem
við náðum að búa til mjög góða
sögu í kringum stofnunina á fyrir-
tækinu okkar og hugmyndina á
bakvið vörurnar okkar.“
Varan okkar hentar öllum
„Vörurnar okkar eru 80% af nátt-
úrulegu próteini úr afurð sem er
lítið notuð. Fólk sem er t.d. á æf-
ingar í hádeginu og vantar prótein
áður en það þarf að mæta aftur í
vinnuna. Fólk sem fer í fjallgöngur
og þurfa að hafa snarl með sér sem
gefur þeim orku í göngunni. Börn
sem geta tekið með sér hollt og
gott nesti í skólann, á æfingar eða
í keppnisferðir. Eða bara fólk sem
vill sitja í sófanum með snakkið
okkar og horfa á sjónvarpið, varan
okkar hentar öllum.“
Þá hugsuðum við
af hverju ekki?
Voru þið alltaf ákveðin í að fara
alla leið með þessa hugmynd?
„Ekki alveg strax. Við áttum eftir
að klára námið okkar og höfðum
því lítinn tíma í að framkvæma
hugmyndina. Á meðan við vorum
að klára námið fengum við þó
fjölda fyrirspurnir frá fólki hérna
í Eyjum sem og ofan af landi sem
vildi vita hvenær við kæmum með
vörurnar okkar á neytendamarkað,
því fólki fannst þetta spennandi
sem við vorum að gera. Þá hugs-
uðum við af hverju ekki?“
tekur allt mjög langan tíma
Aðspurð um það sem mest hefur
komið á óvart í ferlinu var það
tíminn. „Það sem hefur komið
okkur mest á óvart er í raun hvað
allt saman tekur langan tíma. Það
er ekki hægt að ákveða að stofna
bara fyrirtæki og græja eitthvað og
Volcano seafood:
Ekki í neinu spretthlaupi
:: Við viljum gera hlutina vel þannig að varan
eigi möguleika á að festa sig í sessi
SARA SjöfN GREttiSdóttiR
sarasjofn@eyjafrett ir. is
” Fólk sem fer í fjallgöngur og þurfa að hafa snarl með sér sem gefur þeim orku í göngunni. Börn sem geta tekið með sér hollt og gott
nesti í skólann, á æfingar eða í
keppnisferðir. Eða bara fólk sem
vill sitja í sófanum með snakkið
okkar og horfa á sjónvarpið, varan
okkar hentar öllum.
Fólk var almennt mjög hrifið af snakkinu í smakkinu á ölstöfu The
Brothers brewery á dögunum.
Frumkvöðlarnir á bakvið Volcano
Seafood, Dagur Arnarsson, Guðný
Bernódusdóttir, Gunnar Heiðar Þor-
valdsson og Svanhildur Eiríksdóttir.