Fréttablaðið - 17.02.2020, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 17.02.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —4 0 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 1 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 Átt þú rétt á slysabótum? Við hjálpum þér að leita réttar þíns TORT INNHEIMTA SLYSABÓTA HAFÐU SAMBAND 511 5008 Þó nokkur hópur fólks mætti í skíðabrekkurnar í Bláfjöllum í gær til þess að gleðja sig eftir ótíð undanfarinna daga. Þar var enda logn og blíða, sólarglenna og skíðfærið hreint þokkalegt. Nú hækkar sól á lofti og þá er oft besti tíminn framundan til vetrarútivistar. Þessi brettakappi sýndi fín tilþrif í brekkunni þótt sólgleraugun hafi reyndar fokið. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Við skynjum það líka að þessi um- ræða um vinnu fólks og mat á störfum er að opnast. Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar KJARAMÁL Ótímabundið verkfall um 1.800 félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg hófst á miðnætti. Enn hefur ekki verið boðað til næsta fundar í deilunni. Deiluaðilar hafa nú ekki fundað í tíu daga en lögum samkvæmt verður að boða til fundar innan tveggja vikna frá síðasta fundi. „Við skynjum mikinn meðbyr og stuðning. Við skynjum það líka að þessi umræða um vinnu fólks og mat á störfum er að opnast,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar. Það hafi verið áhugavert að hlusta á umræðuþætti helgarinnar því fólk sé farið að nálgast umræðuna á annan hátt. „Það er bara bein afleið- ing af þessari baráttu okkar. Þótt við eigum auðvitað eftir að sjá hverju hún skilar þá held ég að við höfum galopnað þessa umræðu.“ Eins og í tímabundnu verkföll- unum undanfarnar tvær vikur mun áhrifanna mest gæta á leikskólum borgarinnar. Einnig verður matar- þjónusta í grunnskólum skert og á annað þúsund notendur velferðar- þjónustu munu verða fyrir áhrifum. Þá skerðist þjónusta við borgar- landið þar sem hreinsun verður ekki sinnt. Starfsmenn borgarinnar sinntu sorphirðu um helgina en það var gert bæði vegna slæms veðurs að undanförnu og komandi verkfalls. Aðspurður segir Viðar að viðbrögð við undanþágubeiðnum og verk- fallsvarsla verði með sambærilegum hætti og verið hefur. „Það hefur ekki verið mikið um verkfallsbrot en það hefur sýnt sig að verkfallsvarsla er nauðsynleg. “ Ef ling boðar til samstöðu- og baráttufundar í Iðnó í dag klukkan 13. Félagsmenn, foreldrar og aðrir stuðningsmenn eru hvattir til að mæta og taka börnin með. -sar Ótímabundið verkfall Eflingar hafið Um 1.800 félagsmenn Eflingar hjá Reykjavíkurborg hófu á miðnætti ótímabundið verkfall. Mest verða áhrifin á leikskóla og matar- þjónustu grunnskóla. Efling boðar til samstöðu- og baráttufundar í Iðnó í dag en enn hefur ekki verið boðað til fundar í deilunni. LÍFIÐ Íslenski dansf lokkurinn leit- ar nú að þremur hundum til að taka þátt í verkinu Rythm of Poison sem frumsýnt verður í lok mánaðarins. Hlynur Páll Pálsson, framkvæmda- stjóri dansf lokksins, segir að ekki sé gerð krafa um að hundarnir séu dansmenntaðir. „Við segjum aldrei nei við góðum hugmyndum frá samstarfsfólki okkar en danshöfundur verksins, hún Elina Pirinen, er mikill dýra- vinur og hún er sannfærð um að þátttaka þriggja hunda í sýning- unni eigi eftir að lyfta verkinu á annað plan,“ segir Hlynur. Þó verði, öryggisins vegna, smá- hundar útilokaðir frá þátttöku og því aðeins leitað eftir meðalstórum og stórum hundum. Annars eru gert skilyrði um að hundarnir séu vingjarnlegir, ófeimnir og að þeim líði vel í marg- menni. -ssþ/sjá síðu 22. Hundar dansa MENNING Harðnandi samkeppni er á bandaríska streymismarkaðnum. Disney mun væntanlega veita Net- f lix hvað hörðustu samkeppnina en streymisveitum fer enn fjölg- andi. Bandarísku efnisveiturnar sækja í sífellt meira mæli á alþjóðamark- að og er þjónusta Disney væntanleg á Íslandi á árinu. Stjórnvöld hafa kynnt breyting- ar á lögum um fjölmiðla í samræmi við tilskipanir ESB sem myndi þýða að 30 prósent af framboði mynd- efnis skuli vera evrópskt. Í frumvarpsdrögunum er einnig að finna ákvæði um lögsögureglur. Þar er fjallað um upprunaland fjöl- miðlaþjónustu og hvernig bregðast skuli við efni sem sjónvarpað er frá einu ríki en beint til notenda í öðrum ríkjum. -ds/sjá síðu 8. Disney ætlar sér stóra hluti

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.