Fréttablaðið - 17.02.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 17.02.2020, Blaðsíða 12
1 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT FÓTBOLTI Son Heung-Min var hetja helgarinnar þegar hann skoraði sigurmark Tottenham gegn Aston Villa þegar nokkrar sekúndur voru eftir. Son skoraði eftir skelfileg mis- tök Björn Engels í vörn Aston Villa og kom Kóreumaðurinn boltanum fram hjá Pepe Reina. Örskömmu síðar var leikurinn f lautaður af. Þetta var áttunda mark Son í deild- inni en hann hefur skorað 51 mark og gefið 26 stoðsendingar síðan hann kom til Totten ham fyrir fimm árum. Enginn frá Asíu hefur skorað meira en hann í enska boltanum. Son kom upp í gegnum aka- demíuna í FC Seoul en faðir hans, Son Woong-jung, þótti liðtækur fótboltamaður og spilaði einn landsleik með Suður Kóreu. Þegar hann var aðeins 16 ára gekk hann í raðir Hamburger SV í Þýskalandi. Þegar hann mátti loks skrifa undir atvinnumannasamning gerði hann það með bros á vör. Hann var fljótur að skapa sér nafn í búndeslígunni og spáðu fjölmiðlar að hann gæti fetað í fótspor Cha Bum-kun, goð- sagnarinnar frá Kóreu ef hann héldi áfram á sömu braut. Bayer Leverkusen tilkynnti 2013 að það hefði keypt Son á 10 millj- ónir evra og varð hann þar með dýrasti leikmaður félagsins. Honum tókst  að enda í tveggja stafa tölu þegar kemur að mörkum. Síðasta tímabilið sitt með Leverkusen skoraði hann 17 mörk og Totten- ham bankaði á dyrnar. Splæsti 22 milljónum punda í guttann árið 2015 og varð hann þar með dýrasti leikmaður Asíu frá upphafi. Það gekk reyndar ekkert of boðs- lega vel að aðlagast enska boltanum og skoraði Son aðeins fjögur mörk í 28 leikjum fyrsta tímabilið. Hann byrjaði aðeins 13 leiki og vildi fara. Suðaði víst mikið í Mauricio Poc- hettino stjóra liðsins að fá að yfir- gefa Lundúnaliðið og fara aftur til Þýskalands. En hann ákvað að berjast fyrir sæti sínu og tók stakka- skiptum tímabilið eftir. Fyrir þetta tímabil var hann kominn með 41 mark fyrir Totten- ham og var af f lestum talinn einn mikilvægasti leikmaður liðsins. Hann hefur þó ekki beint verið í fréttum bara fyrir markanef sitt og gæði, bros og almenna kurteisi. Hann náði þeim vafasama heiðri að vera rekinn af velli þrisvar sinnum á árinu 2019. Það er jafn oft og Eric Cantona tókst að láta reka sig útaf á sínum ferli í enska boltanum. Samt er ekki eins og Son sé grófur. Séu rauðu spjöldin skoðuð kom það fyrsta gegn Bournemouth þar sem Son brást við grófri tæklingu. Það seinna kom gegn André Gomez leikmanni Everton. Flestir þekkja það spjald og fundu margir til með Son þegar hann gekk grátandi af velli. Það þriðja var svo gegn Chel- sea þegar hann var sakaður um að sparka í Antonio Rudiger. Stuðn- ingsmenn Tottenham og aðrir áhugamenn muna samt meira eftir sprettum hans og mörkum. Hann á væntanlega mark tímabilsins eftir ótrúlegan sprett gegn Burnley og það munu fleiri rifja upp gæði hans en grófleika. Son er stærsta stjarna lands- ins. Andlit kóreska fótboltans út á við. Hálfgerður Ronaldo þeirra og eftir viðureignir Tottenham eru sérþættir um Son sýndir þar sem allar hreyfingar hans eru krufðar til mergjar. Ungir krakkar í Kóreu fara svo út á götu og reyna að herma eftir honum. Hann lifir líka eins og stjarna. Er með módelum og leik- konum frá heimalandinu en ætlar þó ekki að gifta sig fyrr en skórnir eru farnir upp í hilluna. Son hefur verið í samböndum með kóresku poppstjörnunum Bang Min-ah og Yoo So-young en er nú maður ein- samall. Ástin í lífi hans eru því bílarnir hans því bílasafn hans telur ansi fallega bíla og er metið á mörg hundruð milljónir samkvæmt The Sun. Þar má finna Ferrari LaFerrari en aðeins 499 slíkir bílar voru gerð- ir. Það gat ekki hver sem er keypt sér slíkan bíl og þurfti Son ásamt hinum kaupendunum að uppfylla ströng skilyrði. Hann þurfti reynd- ar að sprauta sinn bíl svartan því Totten ham bannar honum að eiga rauða bíla vegna rígsins við Arsenal. Þá er að finna í skúrnum hans Bentley, Range Rover og Maserati sport jeppa svo nokkrir séu nefndir. benediktboas@frettabladid.is Kátur, glaður og geggjaður frá Kóreu Son Heung-Min var hetja Tottenham þegar hann skoraði sigurmark liðsins í uppbótartíma gegn Aston Villa. Son elskar sportbíla, ætlar ekki að gifta sig fyrr en ferillinn er búinn og er þekktur fyrir brosmildi sína. Samt er hann einn grófasti leikmaður enska boltans. Son Heung-min er einn fyrsti leikmaðurinn sem Jose Mourinho, nýr stjóri Tottenham, setur á blað. Son er orðinn markahæsti Asíumaðurinn eftir að hafa skorað tvö í gær. NORDICPHOTOS/GETTY Ég elska hann, svo ég get rétt ímyndað mér hvernig fólki sem hefur verið með honum hérna í fjögur eða fimm ár líður. Hann er frábær strákur. Jose Mourinho Ég sendi honum skilaboð og hann sendi mér skilaboð til baka. Mér líður enn mjög, mjög illa yfir þessu. Síðustu dagar hafa verið mjög erfiðir. Ég sendi honum skilaboð og óskaði honum þess besta og bað hann, fjölskyldu hans og liðsfélaga afsökunar.“ Son Heung-Min um André Gomez HETJA HELGARINNAR Son Heung-Min Son Heung-Min er fæddur 8. júlí 1992 í borginni Chuncheon í Suður Kóreu. Foreldrar hans eru Won Jung Son og Eun Ja Kil. Hann ólst upp í Nýja Sjálandi fyrstu árin en snéri til baka um níu ára aldurinn. Faðir hans lék einn landsleik fyrir Suður Kóreu og fór að einbeita sér að þjálfun eftir ferilinn. Hann þjálfaði Son fyrstu árin og leyfði honum ekki að spila leiki fyrr en hann var búinn að fullkomna tæknina. Síðan Son kom inn í deildina hefur hann spilað 151 leik í deild- inni og skorað í þeim 51 mark. Hann er ekki fræg- astur fyrir sín skallamörk en hefur sett þrjú slík, 28 hafa komið með hægri og 20 með vinstri.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.