Fréttablaðið - 17.02.2020, Blaðsíða 12
1 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Son Heung-Min var hetja
helgarinnar þegar hann skoraði
sigurmark Tottenham gegn Aston
Villa þegar nokkrar sekúndur voru
eftir. Son skoraði eftir skelfileg mis-
tök Björn Engels í vörn Aston Villa
og kom Kóreumaðurinn boltanum
fram hjá Pepe Reina. Örskömmu
síðar var leikurinn f lautaður af.
Þetta var áttunda mark Son í deild-
inni en hann hefur skorað 51 mark
og gefið 26 stoðsendingar síðan
hann kom til Totten ham fyrir fimm
árum. Enginn frá Asíu hefur skorað
meira en hann í enska boltanum.
Son kom upp í gegnum aka-
demíuna í FC Seoul en faðir hans,
Son Woong-jung, þótti liðtækur
fótboltamaður og spilaði einn
landsleik með Suður Kóreu. Þegar
hann var aðeins 16 ára gekk hann í
raðir Hamburger SV í Þýskalandi.
Þegar hann mátti loks skrifa undir
atvinnumannasamning gerði hann
það með bros á vör. Hann var fljótur
að skapa sér nafn í búndeslígunni
og spáðu fjölmiðlar að hann gæti
fetað í fótspor Cha Bum-kun, goð-
sagnarinnar frá Kóreu ef hann héldi
áfram á sömu braut.
Bayer Leverkusen tilkynnti 2013
að það hefði keypt Son á 10 millj-
ónir evra og varð hann þar með
dýrasti leikmaður félagsins. Honum
tókst að enda í tveggja stafa tölu
þegar kemur að mörkum. Síðasta
tímabilið sitt með Leverkusen
skoraði hann 17 mörk og Totten-
ham bankaði á dyrnar. Splæsti 22
milljónum punda í guttann árið
2015 og varð hann þar með dýrasti
leikmaður Asíu frá upphafi.
Það gekk reyndar ekkert of boðs-
lega vel að aðlagast enska boltanum
og skoraði Son aðeins fjögur mörk
í 28 leikjum fyrsta tímabilið. Hann
byrjaði aðeins 13 leiki og vildi fara.
Suðaði víst mikið í Mauricio Poc-
hettino stjóra liðsins að fá að yfir-
gefa Lundúnaliðið og fara aftur
til Þýskalands. En hann ákvað að
berjast fyrir sæti sínu og tók stakka-
skiptum tímabilið eftir.
Fyrir þetta tímabil var hann
kominn með 41 mark fyrir Totten-
ham og var af f lestum talinn einn
mikilvægasti leikmaður liðsins.
Hann hefur þó ekki beint verið í
fréttum bara fyrir markanef sitt
og gæði, bros og almenna kurteisi.
Hann náði þeim vafasama heiðri að
vera rekinn af velli þrisvar sinnum
á árinu 2019. Það er jafn oft og Eric
Cantona tókst að láta reka sig útaf
á sínum ferli í enska boltanum.
Samt er ekki eins og Son sé grófur.
Séu rauðu spjöldin skoðuð kom
það fyrsta gegn Bournemouth þar
sem Son brást við grófri tæklingu.
Það seinna kom gegn André Gomez
leikmanni Everton. Flestir þekkja
það spjald og fundu margir til með
Son þegar hann gekk grátandi af
velli. Það þriðja var svo gegn Chel-
sea þegar hann var sakaður um að
sparka í Antonio Rudiger. Stuðn-
ingsmenn Tottenham og aðrir
áhugamenn muna samt meira eftir
sprettum hans og mörkum. Hann á
væntanlega mark tímabilsins eftir
ótrúlegan sprett gegn Burnley og
það munu fleiri rifja upp gæði hans
en grófleika.
Son er stærsta stjarna lands-
ins. Andlit kóreska fótboltans út á
við. Hálfgerður Ronaldo þeirra og
eftir viðureignir Tottenham eru
sérþættir um Son sýndir þar sem
allar hreyfingar hans eru krufðar
til mergjar. Ungir krakkar í Kóreu
fara svo út á götu og reyna að herma
eftir honum. Hann lifir líka eins og
stjarna. Er með módelum og leik-
konum frá heimalandinu en ætlar
þó ekki að gifta sig fyrr en skórnir
eru farnir upp í hilluna. Son hefur
verið í samböndum með kóresku
poppstjörnunum Bang Min-ah og
Yoo So-young en er nú maður ein-
samall.
Ástin í lífi hans eru því bílarnir
hans því bílasafn hans telur ansi
fallega bíla og er metið á mörg
hundruð milljónir samkvæmt The
Sun. Þar má finna Ferrari LaFerrari
en aðeins 499 slíkir bílar voru gerð-
ir. Það gat ekki hver sem er keypt
sér slíkan bíl og þurfti Son ásamt
hinum kaupendunum að uppfylla
ströng skilyrði. Hann þurfti reynd-
ar að sprauta sinn bíl svartan því
Totten ham bannar honum að eiga
rauða bíla vegna rígsins við Arsenal.
Þá er að finna í skúrnum hans
Bentley, Range Rover og Maserati
sport jeppa svo nokkrir séu nefndir.
benediktboas@frettabladid.is
Kátur, glaður
og geggjaður
frá Kóreu
Son Heung-Min var hetja Tottenham þegar
hann skoraði sigurmark liðsins í uppbótartíma
gegn Aston Villa. Son elskar sportbíla, ætlar
ekki að gifta sig fyrr en ferillinn er búinn og er
þekktur fyrir brosmildi sína. Samt er hann einn
grófasti leikmaður enska boltans.
Son Heung-min er einn fyrsti leikmaðurinn sem Jose Mourinho, nýr stjóri Tottenham, setur á blað. Son er orðinn
markahæsti Asíumaðurinn eftir að hafa skorað tvö í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
Ég elska hann,
svo ég get rétt
ímyndað mér hvernig
fólki sem hefur verið
með honum hérna í
fjögur eða fimm ár
líður. Hann er frábær
strákur.
Jose Mourinho
Ég sendi honum
skilaboð og hann
sendi mér skilaboð til baka.
Mér líður enn mjög, mjög
illa yfir þessu. Síðustu dagar
hafa verið mjög erfiðir. Ég
sendi honum skilaboð og
óskaði honum þess besta og
bað hann, fjölskyldu hans
og liðsfélaga afsökunar.“
Son Heung-Min um André Gomez
HETJA HELGARINNAR
Son Heung-Min
Son Heung-Min er fæddur 8. júlí
1992 í borginni Chuncheon í Suður
Kóreu. Foreldrar hans eru Won Jung
Son og Eun Ja Kil. Hann ólst upp í
Nýja Sjálandi fyrstu árin en snéri
til baka um níu ára aldurinn. Faðir
hans lék einn landsleik fyrir Suður
Kóreu og fór að einbeita sér að
þjálfun eftir ferilinn. Hann þjálfaði
Son fyrstu árin og leyfði honum
ekki að spila leiki fyrr en hann var
búinn að fullkomna tæknina.
Síðan Son kom inn í
deildina hefur hann
spilað 151 leik í deild-
inni og skorað í þeim 51
mark. Hann er ekki fræg-
astur fyrir sín skallamörk
en hefur sett þrjú slík, 28
hafa komið með hægri og
20 með vinstri.