Fréttablaðið - 17.02.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.02.2020, Blaðsíða 6
Ef við skiljum ekki ógnina og bregð- umst ekki við henni þá gæti það að endingu sett NATO, farsælasta hernaðarbanda- lag sögunnar, í hættu Mark Esper, varn- armálaráðherra Bandaríkjanna Fjöldi smitaðra var í gær kominn upp í um 69 þús- und, langflestir í Kína. Verðtryggð skuldabréf Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. LSS040440 GB Lánasjóður sveitarfélaga ohf. kt. 580407-1100, hefur birt útgefandalýsingu og grunnlýsingu dagsettar 14. febrúar 2020 vegna nýs skuldabréfaflokks með auðkennið LSS040440 GB. Tilgangur skuldabréfaflokksins er að fjármagna verkefni sveitarfélaga sem hafa jákvæð umhverfisáhrif og sporna gegn loftslagbreytingum. Útgefanda lýsinguna og grunn lýsinguna ásamt gögnum sem vitnað er til í þeim er hægt að nálgast hjá Lána- sjóði sveitarfélaga ohf., Borgartúni 30, 105 Reykjavík og á vefsíðu Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. www.lanasjodur.is á meðan lýsingarnar eru í gildi. Skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf en þau bera fasta 1,50% ársvexti. Höfuðstóll og vextir eru greiddir með 41 jöfnum greiðslum. Gjalddagar höfuðstóls og vaxta eru tvisvar á ári, 4. apríl og 4. október. Fyrsta greiðsla höfuðstóls og vaxta er 4. apríl 2020 en lokagjalddagi höfuðstóls og vaxta er 4. apríl 2040 Auðkenni flokksins á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. er LSS040440 GB og ISIN númer IS0000031664. Reykjavík, 14. febrúar 2020. Lánasjóður sveitarfélaga ohf. 4 FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2017 Útlán til ferðaþjónustunn- ar nema rúmlega 14% af heildarútlánum viðskipta- bankanna til fyrirtækja. Hlutfallið telst nokkuð lágt og er það mat sérfræð- inga að félög utan hins hefðbundna bankakerfis og bankar utan lands- steinanna hafi að miklu leyti fjármagnað fjárfest- ingu í ferðaþjónustu. ÁSDÍS AUÐUNSDÓTTIR asdis@vb.is Útlán til ferðaþjónust-unnar nema rúmlega 14% af heildarútlán-um viðskiptabankanna til fyrirtækja og hefur hlutfall- ið aukist nokkuð milli ára. Hlut- fallið þykir þó ennþá nokkuð lágt, sérstaklega með tilliti til þess gríðar lega vaxtar sem orðið hef- ur í greininni undanfarin misseri. Bendir það að mati sérfræðinga til þess að félög utan hins hefð- bundna bankakerfis og bankar utan landsteinanna hafi að miklu leyti fjármagnað fjárfestingu í ferðaþjónustu. Engar tölur virð- ast hins vegar vera til sem gefa nákvæmlega til kynna hversu hátt það hlutfall raunverulega er. 27% ársvöxtur árinu 2016 Í Fjármálastöðugleika Seðlabank- ans fyrir árið 2017 kemur fram að útlán til ferðaþjónustu nema rúm- lega 14% af heildarútlánum við- skiptabankanna til fyrirtækja og mældist ársvöxtur þeirra 27% á árinu 2016. Til samanburðar má sjá að í ítar legri úttekt sem greiningar- deild Arion banki gaf út í septemb- er í fyrra að útlán til ferðaþjón- ustunnar voru þá aðeins 10% af heildarútlánum. Samkvæmt upp- lýsingum frá bankanum var hlut- fall lána til aðila í ferðaþjónust- unni í árslok 2016 5% af lánasafni Arion banka en hafði verið 4% ári áður, þ.e. í árslok 2015. Bankinn hefur hins vegar ekki birt upplýs- ingar um þróunina það sem af er árinu 2017. Samkvæmt Seðlabankanum er ferðaþjónustan nú þriðji stærsti atvinnuvegaflokkurinn í útlána- safni bankanna á eftir fasteigna- félögum og sjávarútvegi. Útlán til greinarinnar nema um 8,5% af heildarútlánum viðskiptabank- anna til viðskiptavina. Bendir til fjármögnunar utan bankakerfisins Í greiningu Arion banka sem var birt á síðasta ári kemur fram að það komi höfundum í raun á óvart að vöxturinn sé ekki meiri sökum þess hversu hratt ferðaþjónustan hafði þá verið að vaxa og fjárfest- ingar að vaxa mikið. Velti grein- ingardeildin því upp þeirri spurn- ingu hvort gögn Seðlabanks gæfu þá ekki nægilega skýra mynd af stöðu mála. Eins var velt upp þeirri spurningu hvort félög utan hins hefðbundna bankakerfis og bankar utan landsteinanna hafi að miklu leyti fjármagnað fjár- festingu í ferðaþjónustu. Þrátt fyrir að sérstaka yfirsýni virðist skorta um slíkar fjárfest- ingar slær Seðlabankinn því hins vegar föstu í skrifum sínum að hin mikla uppbygging ferðaþjón- ustunnar sé að einhverju leyti fjármögnuð utan bankakerfisins, af einstaka fagfjárfestasjóðum eða með stofnun samlagshluta- félaga um einstaka fjárfestingar. Lífeyris sjóðirnir eru í mörgum tilfellum kjölfestufjárfestar þar. Fjármögnun utan bankakerfis Útlánaáhættan mikil Seðlabankinn dregur þá ályktun af framangreindum tölum að útlán beintengd ferðaþjónustunni vega enn sem komið er ekki mjög þungt í bókum viðskiptabankanna, útlánaáhætta þeim tengd gæti þó verið hlutfallslega nokkuð mikil. Segir í Fjármálastöðug- leikanum að komi til verulegs samdráttar í greininni gætu efnahagsaðstæður versnað og útlánatap aukist einnig í öðrum greinum líkt og álags- próf Seðlabankans hafi sýnt. Skilgreiningar á hvað séu útlán til ferðaþjónustu kunna í ein- hverjum tilvikum að vera mis- munandi á milli stóru viðskipta- bankanna þriggja en það breytir ekki heildarmyndinni. Í STUTTU MÁLI Afkomuspá í takt við væntingar Afkoma. IFS Greining gerir ráð fyrir að EBITDA Icelandair Group á öðrum ársfjórðungi muni nema 43,7 milljónum doll- ara samanborið við 52,4 milljónir á sama tímabili í fyrra sam- kvæmt afkomuspá sem IFS gaf út á dögunum. Samkvæmt spánni er gert ráð fyrir því að tekjur á tímabilinu muni nema 362,7 milljónum dollara og hækki um 31,3 milljónir frá sama tímabili í fyrra. Á sama tíma er gert ráð fyrir því að rekstrarkostnaður muni aukast um 40 milljónir dollara á tímabilinu miðað við árið í fyrra. Samkvæmt spánni fer launakostnaður félagsins yfir 100 milljónir dollara á ársfjórð- ungnum. Þá gerir IFS ráð fyrir því að EBITDA fyrir árið 2017 verði 159 milljónir dollara sem er í takt við spár stjórnenda Ice- landair Group sem gera ráð fyrir EBITDA verði á bilinu 145-155 milljónir dollara. 14 milljónir dollara Fjárfestingar. Vefmiðillinn Northstack hefur tekið saman tölur yfir fjárfestingar í sprota- fyrirtækjum á öðrum ársfjórð- ungi. Fjárfestingarnar voru fjórar talsins og námu þær alls 14 milljónum dollara eða því sem jafngildir um 1,5 milljörðum miðað við gengi dagsins í dag. Fyrirtækin fjögur voru Meniga, Takumi, TripCreator og Mink Campers. Fjárfest var í Meniga fyrir 8,3 milljónir dollara og í Takumi fyrir 4 milljónir dollara. Stærstur hluti fjárfestingarinn- ar kom frá útlöndum eða 70%. Talsverð aukning var í fjárfestri upphæð frá sama ársfjórðungi í fyrra, en hún jókst um 240% á milli ára, vegna tveggja stórra fjárfestinga, hjá Meniga og Tak- umi. „Það er mjög jákvætt hve mikið af erlendu fjármagni var að koma inn, og kemur upp á móti fækkun fjárfestinga þar sem íslenskir sjóðir eru í aðalhlutverki,“ segir Kristinn Árni L. Hró- bjartsson, ritstjóri Northstack, í samtali við Við- skipta- blaðið. Verðtryggð skuldabréf Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. LSS150434 Lánasjóður sveitarfélaga ohf. (LSS), kt. 580407-1100, hefur birt viðauka við grunnlýsingu dagsetta 28. mars 2014 vegna skuldabréfa- flokks með auðkennið LSS150434 sem skráður er á aðalmarkað Nasdaq Iceland kauphallarinnar. Viðaukann og gögn sem vitnað er til í honum er hægt að nálgast hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., Borgar- túni 30, 105 Reykjavík og á heimasíðu Lánasjóðs sveitarfélaga ohf., www.lanasjodur.is, fram til lokagjalddaga skuldabréfanna. Stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga hefur sam- þykkt hækkun á heildarheimild skuldabréfa- flokksins LSS150434 úr 30 milljörðum í 40 milljarða. Þann 13. júlí 2017 var heildarstærð flokksins 25.029.352.565 að nafnvirði. Heildarheimild útgáfu: Reykjavík, 18. júlí 2017. Lánasjóður sveitarfélaga ohf. Lítið virðist vera til af upplýsingum um útlán til íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja sem ekki koma frá viðskipta- bönkunum þremur. VB MYND/HAG ára Pólsku forsetakosningarnar af stað Andrzej Duda, núverandi forseti Póllands, ásamt eiginkonu sinni Agata Kornhauser-Duda, á framboðsfundi fyrir forsetakjör um helgina. Forsetakosningarnar fara fram 10. maí næst komandi. Hinn hægrisinnaði ríkis- stjórnarf lokkur, Lög og réttlæti, hefur lýst eindregnum stuðningi við framboð Duda. NORDICPHOTOS/GETTY KÍNA Stjórnvöld í Kína telja að aðgerðir eins og það að loka af Wuh- an-borg hafi skilað þeim árangri að hægt hafi á útbreiðslu kórónaveir- unnar. Reuters fréttastofan greinir frá því að í gær hafi verið tilkynnt um 2.009 ný tilfelli í Kína en þau voru rúmlega 2.600 á laugardag. Þá hófst brottflutningur farþega af skemmtiferðaskipinu Diamond Princess en skipið hafði verið í sóttkví í japönsku hafnarborginni Yokohama frá 3. febrúar. Um 3.700 farþegar voru um borð og er fjöldi smitaðra í hópnum kominn upp í 355. Þeir sem hafa greinst með veir- una hafa verið f luttir á sjúkrahús í Japan. Bandarísk stjórnvöld hyggj- ast f lytja 380 bandaríska farþega af skipinu til Kaliforníu. Búist er við að Kanada, Ítalía, Suður-Kórea og Hong Kong fylgi í kjölfarið og flytji sína ríkisborgara á brott. Fjöldi tilfella var í gær kominn upp í um 69 þúsund en þar af eru 500 utan meginlands Kína. Í gær bættust 143 við fjölda látinna en nú hafa alls 1.665 staðfest dauðsföll verið skráð. -sar Segja útbreiðsluna hægari DAG HVERN LESA 93.000 ÍSLENDINGAR FRÉTTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP OKT-DES 2019, 12-80 ÁRA, ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019FRÉTTABLAÐIÐ - MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS ÖRYGGISMÁL Bandaríkin auka enn þrýsting á evrópska bandamenn að byggja ekki á tækni kínverska fjarskiptarisans Huawei við upp- setningu 5G háhraðanets í álfunni. Tæknin væri öryggisógn sem gæti haft alvarlegar af leiðingar fyrir samstarf yfir Atlantshafið. Þetta kom fram á árlegri öryggis- ráðstefnu sem haldin var í München í Bæjaralandi um helgina. Hana sóttu stjórnmálamenn og herfor- ingjar vestan hafs og austan, sem og áhrifamenn í atvinnulífi, fræði- menn auk fjölda fréttamanna. Nancy Pelosi, ræðumaður full- trúadeildar demókrata, var harðorð í ræðu þar sem hún beindi orðum sínum til þeirra Evrópuríkja sem hyggjast nýta Huawei 5G farsíma- netstæknina og sagði ríkin vera komin á „mjög hættulega braut“. Með því væru Evrópuríkin að setja ríkislögreglu í vasa hvers neytenda,“ sagði hún í gær. Mark Esper, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, og Mike Pompeo, utanríkisráðherra, tóku í sama streng. Esper varaði við því að málið gæti haft áhrif á hernaðarsamstarf innan Atlantshafsbandalagsins. Hann sagði að samstarfsaðilar Bandaríkjanna yrðu að „vakna“ og sjá þá „óheiðarlegu stefnu“ sem Peking beitir til að grafa undan núverandi alþjóðlegu skipulagi. „Ef við skiljum ekki ógnina og bregðumst ekki við henni þá gæti það að endingu sett NATO, farsælasta hernaðarbandalag sögunnar, í hættu,“ sagði hann. Þessi þungu viðvörunarorð Espers um áhrif notkunar kín- verskrar 5G tækni eykur enn á togstreitu milli Bandaríkjanna og Evrópu vegna fjárfestinga Kínverja í innviðum Evrópu, í fjarskiptum, flutningum og orkuframleiðslu. Evrópusambandið hefur hafnað kröfum bandarískra stjórnvalda um að meina Huawei uppbyggingu í álfunni. Ríkjum sambandsins verð- ur gert skylt að deila gögnum sín á milli um netöryggisógnir við upp- byggingu 5G farsímanetkerfis og móta stefnu í meðferð slíkra ógna. Bretar samþykktu nýlega að Huawei kæmi að uppsetningu 5G háhraðanets landsins. Markaðs- hlutdeild fyrirtækisins verði þó tak- mörkuð við 35 prósent og búnaður útilokaður frá viðkvæmum „kjarna“ háhraðanetanna og viðkvæmum her- eða kjarnorkusvæðum. Líklegt verður að teljast að Evrópuþjóðir treysti á öryggismat Breta sem sagð- ir eru standa framarlega við mat á hinni kínversku fjarskiptatækni. david@frettabladid.is Enn va a B ndaríkin Ev ópu við Huawei Bandaríkin þrýsta á evrópska bandamenn að byggja ekki á tækni kínverska fjarskiptarisans Huawei. Varnarmál ráðherra Bandaríkjanna segir tæknina öryggisógn sem gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir NATO samstarfið. 1 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.