Fréttablaðið - 17.02.2020, Page 4
Það er líka ágætis
áminning um það
að það á að taka kjaravið-
ræður við opinbera starfs-
menn alvarlega.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir,
formaður BSRB
40” BREYTTUR
MEGA CAB
HÖRKUTÓL SEM ENDIST
GLÆSILEGT ÚTLIT, NÝJAR ÚTFÆRSLUR
OG FJÖLMARGAR TÆKNINÝJUNGAR Í BOÐI.
EIGUM TIL CREW CAB BIG HORN, LARAMIE, SPORT OG LIMITED ÚTFÆRSLUR
TIL AFGREIÐSLU STRAX.
EINNIG MEGA CAB Í LARAMIE OG LIMITED ÚTFÆRSLUM .
BJÓÐUM UPP Á 35”, 37” OG 40” BREYTINGAR
RAM 3500 VERÐ FRÁ: 6.967.745 KR. ÁN VSK.
RAM 3500 VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK.
ramisland.is
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
RAM 3500
STJÓRNMÁL „Sveitarfélögin leggj-
ast gegn framgangi frumvarpsins í
núverandi mynd,“ segir í sameigin-
legri umsögn fjögurra sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra um frumvörp
um Hálendisþjóðgarð og um Þjóð-
garðastofnun.
„Svæði sem lagt hefur verið til
að falli innan þjóðgarðs hafa verið
í umsjón sveitarfélaganna vegna
nálægðar og stöðu afréttarmálefna
síðustu árhundruð,“ segir í umsögn
Húnavatnshrepps, Húnaþings
vestra, Sveitarfélagsins Skagafjarðar
og Akrahrepps. „Sveitarfélögin eru
landstór. Mörk þeirra liggja á Lang-
jökul, Hofsjökul og Kjöl og ná yfir
víðáttumikil landsvæði innan mið-
hálendisins,“ segir í umsögninni.
Í byggðaráði Skagafjarðar lét full-
trúi VG, Bjarni Jónsson, flokksbróð-
ir umhverfisráðherra sem stendur
að baki frumvörpunum, bóka að
hann standi ekki að umsögninni.
„Miðhálendisþjóðgarður sem
er í stjórnarsáttmála núverandi
ríkisstjórnar stuðlar að náttúr-
vernd á einstöku svæði sem geymir
ósnortnar vistgerðir, fágætan
gróður og dýralíf og sérstæðar
jarðmyndanir. Hann yrði sá stærsti
í Evrópu með tilheyrandi aðdrátt-
arafli,“ bókaði Bjarni. „Ástæða er þó
til að leggja áherslu á að skipulags-
vald sveitarfélaga og aðkoma þeirra
að ákvarðanatöku verði styrkt enn
frekar og tryggt í lögum og reglu-
gerðum sem á þeim byggja, forræði
heimamanna á svæðum sem um
ræðir og að stjórn, stjórnsýsla og
störf sem af starfsemi þjóðgarðs
leiða, verði að mestu leiti staðsett
í þeim héruðum sem land eiga að
þjóðgarðinum,“ bókaði byggðaráðs-
fulltrúi VG. - gar
Fjögur sveitarfélög nyrðra sameinuð gegn hálendisþjóðgarði
Mörk sveitarfélaganna ná yfir svæði á miðhálendinu. FRÉTTBLAÐIÐ/VILHELM
1 Með mikla á verka eftir við-skipti við lög reglu í nótt
Læknir telur rúmlega tvítugan
mann kjálkabrotinn eftir að lög
regla skellti honum í jörðina í mið
borg Reykjavíkur í nótt.
2 Lést af slys förum eftir fall úr stiga Kona lést af slys förum
þegar hún féll úr stiga á Akra nesi á
fimmtu dag. Hún var á fer tugs aldri.
3 Fjóla fann sporð dreka inni á baði: „Ekki hug mynd um
hvaðan hann hefur komið“
Tveggja barna móðir fann sporð
dreka á heimili sínu á Akur eyri í
gær kvöldi.
4 Um 300 manns mót mæla brott vísun Maní fyrir utan
dóms mála ráðu neytið Um 300
manns mættu fyrir utan dóms
mála ráðu neytið í dag til að
mót mæla brott vísun Maní, 17 ára
trans drengs, og fjöl skyldu hans
úr landi.
5 Borguðu 265 milljónir fyrir hús Sól veigar: Svona lítur það
út að innan Ein stakt heimili Sól
veigar Péturs dóttur fyrrum dóms
mála ráð herra að Fjólu götu 1 er
loksins selt.
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
K JARAMÁL „Við vonuðumst auð-
vitað til þess að vera löngu komin
með kjarasamning á þessum tíma-
punkti. Við sýndum þessu mikla
þolinmæði en nú er hún alveg á
þrotum og þess vegna er þessi
atkvæðagreiðsla að hefjast hjá 17
aðildarfélögum sem taka til um 18
þúsund félagsmanna,“ segir Sonja
Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Atkvæðagreiðsla um verkfallsað-
gerðir félagsmanna BSRB hjá ríki,
borg og sveitarfélögum hefst í dag
og stendur til miðvikudagskvölds.
Verða niðurstöður atkvæðagreiðsl-
urnar kynntar á fimmtudaginn.
Verði aðgerðirnar samþykktar
munu tilteknir hópar fara í ótíma-
bundið verkfall frá og með 9. mars
næstkomandi. Þar er meðal annars
um að ræða starfsmenn BSRB hjá
Skattinum, Sýslumannsembættum,
grunnskólum og frístundaheim-
ilum borgarinnar.
Þar fyrir utan munu stórir hópar
félagsmanna fara í nokkur eins til
tveggja sólarhringa verkföll sem
myndu enda með ótímabundnu
verkfalli frá 15. apríl.
Samningsaðilar hafa því um þrjár
vikur til að landa samningum áður
en fyrstu aðgerðir bresta á. Sonja
býst við því að komi til verkfallsað-
gerða muni þær hafa víðtæk áhrif.
„Þetta eru 18 þúsund manns
sem eru að sinna grunnþjónustu
samfélagsins. Það er líka ágætis
áminning um það að það á að taka
kjaraviðræður við opinbera starfs-
menn alvarlega. Þetta eru mikilvæg
störf og það er ekki hægt að hunsa
okkur.“
En er Sonja bjartsýn á að samn-
ingar náist á þeim tíma sem er til
stefnu áður en verkföll hefjast?
„Miðað við seinaganginn og
biðina sem hefur stundum verið
eftir einfaldlega svörum eða það sé
tekin alvöru umræða um stór mál
þá er ég ekkert allt of bjartsýn á að
þetta takist á þessum tíma þótt ég
auðvitað voni það. Við eigum enn
þó nokkur stór mál eftir eins og
jöfnun launa milli markaða og svo
er launaliðurinn hjá aðildarfélög-
unum,“ segir Sonja.
Hún segir að þó hafi verið settur
aukinn kraftur í viðræður eftir
áramót. Meðal annars hafi verið
rætt um styttingu vinnuvikunnar í
vaktavinnu og mál þokast þar.
„Ég upplifi það hins vegar þann-
ig að þegar við höfum bent á að það
hafi verið allt of mikill seinagangur
í viðræðunum og fólk hafi beðið of
lengi eftir kjarasamningum, að það
hafi ekki verið tekið alvarlega.“
Samkvæmt könnun sem Sam-
eyki, sem er fjölmennasta aðildar-
félag BSRB, lét framkvæma styðja
um 90 prósent verkfallsaðgerðir.
„Auðvitað hefði aldrei verið farið
í það að undirbúa aðgerðir nema
vegna þess að við heyrðum það
mjög skýrt hjá félagsmönnum. Það
er mjög skýr niðurstaða um að það
eigi að grípa til aðgerða ef það miðar
ekkert áfram í viðræðunum.“
sighvatur@frettabladid.is
Ekki allt of bjartsýn á að það
takist að afstýra verkföllum
BSRB, BHM og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stóðu fyrir baráttufundi í lok janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Atkvæðagreiðsla um
verkfallsboðun um 18
þúsund félagsmanna
BSRB hefst í dag. For-
maðurinn segir að að-
gerðirnar myndu hafa
mikil áhrif á grunn-
þjónustu samfélagsins.
1 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð