Fréttablaðið - 17.02.2020, Page 8
✿ Stríð á streymismarkaði Bandaríkjanna
Áskriftarverð og leiðir
0$ 5$ 10$ 15$ 20$
0$ 5$ 10$ 15$ 20$
0$ 5$ 10$ 15$ 20$
0$ 5$ 10$ 15$ 20$
0$ 5$ 10$ 15$ 20$
0$ 5$ 10$ 15$ 20$
Sjónvarpsefni: Stranger Things, The Crown, Mindhunter, Narcos, Glow, The Irishman, RuPaul’s Drag race
Sjónvarpsefni: The Handmaid’s Tale, Castle Rock, Casual, The Path, The Looming Tower, Into the Dark
Sjónvarpsefni: The Morning Show, See, Dickinson, For All Mankind, Snoopy in Space, Oprah’s Book Club
Sjónvarpsefni: Friends, Game of Thrones, House of the Dragons, Green Lantern, Raised by Wolves
Sjónvarpsefni: The Marvelous Mrs. Maisel, The Grand Tour, Jack Ryan, Transparent, Fleabag, Good Omens
Sjónvarpsefni: The Mandalorian, Loki, High School Musical: The Series, Diary of a Future President
H
ei
m
ild
: Y
ah
oo
F
in
an
ce
.
Gæði
15.99$
Fylgir kaupum á
nýjum Apple tækjum
Apple TV+
4.99$
Auglýsingaáskrift
5.99$
Áskrift án auglýsinga
11.99$
HBO MAX
14.99$
Grunnáskrift
8.99$
Grunnársáskrift
9.92$
Disney+
6.99$
Disney+ og annað efni
12.99$
Grunnáskrift
8.99$
Venjuleg
12.99$
Mikil umbylting er að verða í miðlun mynd-efnis í heim-inum. Af þrey-i ng a r e f n i og
fréttum er æ oftar miðlað beint í
snjalltæki í stað myndlyklakerfa
sjónvarpsstöðva. Mynddeiliþjón-
usta samfélagsmiðla eykst enn og
stórir bandarískir efnisframleið-
endur eru æ meir í beinu viðskipta-
sambandi við alþjóðlega notendur.
Hefðbundnum sjónvarpsstöðvum
víða um heim er ógnað.
Stærstu streymisveiturnar
Framboði á sjónvarpsefni eykst
sífellt. Það eru einkum banda-
rísk fjölmiðlafyrirtæki sem sækja
á heimsma rk að. Ba nd a r ísk a
streymisveitan Netf lix sem er
Íslendingum vel kunn, náði í upp-
hafi miklum yfirburðum í streymi á
kvikmyndum og sjónvarpsefni. En
Netf lix fær æ harðari samkeppni
á streymismarkaðinum. Auk Net-
flix, eru stærstar streymisveiturnar
Amazon Prime Video, Hulu, Apple
TV+, HBO Max, og Disney+.
Á vormánuðum bætist síðar Pea-
cock við sem er á vegum NBC sjón-
varpsstöðvarinnar og Universal
kvikmyndaversins.
Harðasta samkeppnin við Netflix
mun væntanlega koma frá stærsta
fjölmiðlafyrirtæki veraldar, Walt
Disney og nýrri streymisþjónustu
þess, Disney+. Fyrirtækið á meðal
annars 21st Century Fox og streym-
isveituna Hulu.
Disney+ býður upp á barna- og
fjölskylduefni frá Disney sem og
Marvel, Pixar og Star Wars. Að
auki er fyrirtækið með ESPN+, sem
streymir íþróttum. Fyrirtækið
hefur boðið bandarískum áskrif-
endum streymi Disney+ á 7 banda-
ríkjadollara á mánuði eða um 874
krónur. Fyrirtækið býður einn-
ig pakka sem inniheldur Disney
+, ESPN+ og Hulu Live fyrir 12,99
bandaríkjadollara mánaðarlega,
eða um 1.622 íslenskar krónur.
Disney+ í boði hér á árinu
Von er á Disney+ hingað til lands á
þessu ári en Hulu kemur á alþjóða-
markaði árið 2021. Auk Netf lix
er Prime Video frá Amazon þegar
aðgengilegt hér á landi. Óvíst er
hvenær Apple TV+, Hulu og Peacock
verða aðgengilegar hér á landi.
Bandarísku fjölmiðlafyrirtækin
eru að sækja á alþjóðamarkað. Þar
er Evrópa umtalsverður mark-
aður, enda með tvöfalt f leiri íbúa
en Bandaríkin og fleiri en Norður-
Ameríka í heild sinni.
Í viðtali við franska tímaritið
Capital haustið 2018 sagði Kevin
A. Mayer, sem stýrir alþjóðadeild
Disney, fyrirtækið vera að undir-
búa alþjóðasókn. Þar skipti miklu
að samevrópsk löggjöf krefjist þess
að öll streymisþjónusta innihaldi
að lágmarki 30 prósent sjónvarps-
efnis sem unnið er í Evrópu.
Disney+, Netf lix, og aðrir þurfa
því að fjármagna og bjóða Evrópska
sjónvarpsþætti og kvikmyndir,
annað hvort með því að framleiðla
þar efni eða með kaupum á evr-
ópsku efni. Þessi krafa mun einnig
ná til EES ríkja, þar á meðal Íslands.
Með aðgengi íslenskra neytenda
að æ stærri erlendum streymis-
markaði verður auðveldara að sækja
afþreyingarefni beint í snjalltæki í
stað þess að fara í gegnum mynd-
lykla sjónvarpsstöðva. Íslenskir
fjölmiðlar munu þurfa að fóta sig í
þessu breytta umhverfi.
Stríð streymismarkaðarins harðnar
Streymisveitum bandarískra fjölmiðlafyrirtækja fjölgar enn. Þær eru yfirgnæfandi á alþjóðlegum streymismarkaði. Evrópusam-
bandið gerir þá kröfu að 30 prósent sjónvarpsefnis streymisveita á borð við Netflix og Disney+, sé evrópskt. Það mun gilda hér.
Breytingar á íslenskri
löggjöf um fjölmiðla
Breyting á íslenskum fjölmiðla-
lögum sem lögð var til kynn-
ingar í samráðsgátt stjórnvalda
í janúar fjallar um breytta
myndmiðlun sjónvarpsefnis
og markaðshlutdeild, einkum
bandarískra streymisveitna á
evrópskum markaði. Með því
verður komið í lög ákvæðum
er leiða af samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið.
Tækniþróun myndmiðlunar
undanfarin ár hefur verið gífur-
lega hröð. Framboð streymis-
veitna, einkum bandarískra,
hefur aukist gífurlega og á eftir
að margfaldast.
YouTube og Facebook verði
skilgreind sem fjölmiðlar
Flestum er kunnugt um breyttar
áhorfsvenjur á myndmiðla, sér-
staklega þeirra sem yngri eru.
Línulegt áhorf gærdagsins hefur
minnkað og meira er horft á
efni í ólínulegri dagskrá og á
myndstreymi.
Í auknum mæli sækir fólk
fréttir og upplýsingar til
mynddeiliþjónustu á borð
við YouTube, Facebook, eða
Insta gram. Slík fyrirtæki hafa
ekki verið skilgreind hér sem
fjölmiðlar en á því verður nú
breyting. Lagt er til að slíkir
miðlar geti fallið undir lögsögu
fjölmiðlanefndar. Þannig er
leitast við að koma á meira
jafnræði fjölmiðla óháð hvaða
miðlunarleið þeir kjósa.
Stöðva megi miðlun efnis
Í lagafrumvarpinu er einn-
ig kveðið á um lögsögureglur
mynddeiliveitna, það er undir
lögsögu hvaða EES-ríkis starf-
semi þeirra heyrir. Sett eru
inn ákvæði um upprunaland
fjölmiðlaþjónustu og hvernig
skuli bregðast við efni sem
sjónvarpað er frá einu ríki en
er beint til notenda í öðru ríki.
Að auki er heimild til að stöðva
miðlun efnis eða grípa til við-
eigandi aðgerða, ef það ríki
sem efninu er beint að telur
það brjóta gróflega gegn lögum
þess. Þá verða auglýsingareglur
miðlana rýmkaðar.
En langmikilvægasta breyt-
ingin krafa um að 30 prósent
af framboði myndefnis eftir
pöntun skuli vera evrópskt,
sýnilegt og fjölbreytt.
Ein umsögn í samráðsgátt
Drögin að breytingu á fjöl-
miðlalögum voru í samráðsgátt
stjórnvalda frá 28. janúar og
lauk umsagnarfresti 12. febrúar
síðast liðinn. Það vekur athygli
að einungis Félag heyrnarlausra
virðist hafa sent inn umsögn
um málið. Snéri það einkum að
textun efnis. Frumvarpið fer
fyrir þingið nú í vor og gert er
ráð fyrir afgreiðslu þingsins á
vormánuðum.
Davíð
Stefánsson
david@frettabladid.is
Netflix tryggði sér alheimssýningarréttinn á íslensku sjónvarpsþáttaröðinni Brot, sem heitir á ensku The
Valhalla Murders. Netflix er krafið um að 30 prósent alls myndefnis í Evrópu sé evrópskt. MYND/SKJÁSKOT
Breytingum á íslensk-
um fjölmiðlalögum um
myndmiðlun sjónvarps-
efnis og markaðshlutdeild
er ætlað að innleiða
evrópska löggjöf hér á
landi.
1 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð