Fréttablaðið - 17.02.2020, Page 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
FERMINGARBLAÐ
FRÉTTABLAÐSINS
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um ferminguna
kemur út þriðjudaginn 10. mars.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Áhugasamir auglýsendur hafi samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson
Sími 550 5654
jonivar@frettabladid.is
Arnar Magnússon
Sími 550 5652
arnarm@frettabladid.is
Atli Bergmann
Sími 550 5657
atlib@frettabladid.is
Ruth Bergsdóttir
Sími 694 4103
ruth@frettabladid.is
Hjónin Hrannar og Halla eru alsæl í Kaupmannahöfn.
Halla og Hrannar á góðri stundu.
að Halla fór að vinna í Jónshúsi
vegna þess að við vildum kynnast
borginni betur, sögu borgarinnar
og ekki síst lífi Jóns Sigurðssonar
og tengingum borgarinnar við
Ísland í gegnum aldirnar, þann-
ig að við gengum um borgina,
tókum myndir og kynntum okkur
söguna.“ útskýrir Hrannar.
Hjónin ákváðu að deila ævintýr-
um sínum með vinum og vanda-
mönnum. „Við settum göngurnar
á Facebook, vildum athuga hvort
aðrir hefðu áhuga á að fylgjast
með, og það reyndist raunin,“ segir
Halla. „Við höfum því haldið áfram
og alls eru göngurnar á Facebook
orðnar 27. Við höfum gaman af
því að kynna Íslendingum gömlu
höfuðborgina, því áhuginn er
fyrir hendi, og staðreyndin er sú
að margir Íslendingar sem koma
til Kaupmannahafnar fara á mis
við margt það áhugaverðasta sem
borgin hefur upp á að bjóða.“
Viðbrögðin hafa verið framar
öllum vonum. „Algerlega frábær,
langt umfram væntingar. Mjög
margir fylgast með og margir hafa
haft samband, lýst yfir ánægju
og leitað ráða. Fólk hefur leitað
til okkar og það varð til þess að
við fórum að ganga og hjóla um
borgina með íslenska ferðamenn
og vinnuhópa, og aðra sem hafa
áhuga.“
Boltinn fór f ljótt að rúlla og
bjóða þau núna upp á skoðunar-
ferðir um borgina. „Ásta Stefáns-
dóttir, vinkona okkar, slóst í hóp-
inn og við buggum til „Ferðir um
Kaupmannahöfn“ sem hefur notið
mikilla vinsælda og við höfum
farið með fleiri hundruð manns
í ferðir um borgina, gangandi og
hjólandi, og erum rétt að byrja,“
segir Halla.
Líflegt og fjölbreytt mannlíf
Þegar Halla og Hrannar eru spurð
að því hvað sé skemmtilegast að
gera í Kaupmannahöfn stendur
ekki á svörum. „Fara í göngu eða
hjólaferð með okkur, að sjálf-
sögðu, kynnast borginni og því
sem hún hefur upp á að bjóða.
Heimsækja Jónshús. Fá sér smørre-
brauð á einum af fjölmörgum
góðum stöðum borgarinnar, fara
af Strikinu, kynnast lífsstílnum
og skoða til dæmis Pissurennuna,
Norðurbrú og Vesturbrú. Borða
á réttu veitingastöðunum. Fara í
Torvehallerne, út á Refshalaeyju, í
Kjötbæinn, og auðvitað kíkja við
á BoBi bar og fá sér harðsoðið egg
með sinnepi.“
Eitt frægasta kennileiti Kaup-
mannahafnar er að sjálfsögðu Litla
hafmeyjan en hversu spennandi
þykir fólk hún vera? „Við vitum
ekki um fólk almennt, en það eru
alla vega um þrjár milljónir sem
skoða hana ár hvert, svo ef marka
má það, þá já, hún heillar greini-
lega fólk. Hún er nú frekar lítil,
blessunin, en sagan um hana er
sorgleg og H.C. Andersen lík-
lega frægasti Daninn, svo það er
eitthvað sjarmerandi við hana,
sitjandi á steininum í f læðarmál-
inu,“ svarar Halla.
Þá segja þau hverfið sem þau búa
í vera í uppáhaldi ásamt fleirum.
„Já, f leiri en eitt, reyndar. Okkar
eigið hverfi, Nýja Kaupmanna-
höfn, er aldeilis ljómandi skemmti-
legt; frábær söfn og fallegir garðar.
Miðaldabærinn hefur söguna og
sjarmann, einnig Pissurennan.
Friðriksstaðir skarta ótrúlegum
byggingum og Norðurbrú er afar
líf leg og þar er mannlífið ótrúlega
fjölbreytt.“
Mikið úrval veitingastaða
Þau segja ekki auðvelt að velja
uppáhaldsveitingastað. „Við
hjónin borðum oft á veitinga-
stöðum, sér í lagi á sumrin. Í
Kaupmannahöfn er hægt að fá
allt sem hugurinn girnist, úrvalið
endalaust og gæðin mikil. Enda
matartúrismi orðinn big bisness
í borginni,“ segir Hrannar. „Við
höfum mjög gaman af því að fá
okkur smørrebrauð í hádeginu, og
af mörgum góðum smørrebrauðs-
stöðum getum við til dæmis nefnt
Nyboders Køkken, Husmanns
Vinstue og Aamanns1921. Þess
utan eru örugglega 50 veitinga-
staðir sem eru í uppáhaldi hjá
okkur, allt eftir því hverju er verið
að leita að.“
„Ravage við Kóngsins nýjatorg
er frábær á sumrin; Torvehallerne
hefur allt sem hugurinn girnist;
Llama og Pluto eru alger snilld
þegar verið er að fara út á lífið;
Friheden á Norðurbrú og H15
í Kjötbænum eru nýjir, cool og
frumlegir. Ravnsborg Vinbar á
Ravnsborggade er alltaf góður og
Red Box og Vietnamese á Stóru
Kóngsinsgötu eru frábærir. La
Veccia Signora og Fiat eru uppá-
halds Ítalirnir, Kødbyens Fiskebar
er geggjaður og Gasoline Grill býr
til bestu hamborgara í heiminum,“
segir Halla.
Úrvalið af börum er ekki síðra.
„Okkar hverfisbarir eru Svarti
Svanurinn og Borgarkráin, en
annars eru barirnir í borginni
bæði margir og breytilegir. Af
bjórbörum eru til dæmis Mikkeller
og Ölbarinn við vötnin, Søerne, í
uppáhaldi. Á sumrin eru Toldbo-
den við ströndina og Herkúles í
Kóngsins garði alltaf skemmtilegir.
Brúnu vertshúsin, bódegurnar, eru
einnig mörg, BoBi er bestur. Einnig
eru í Kaupmannahöfn verulega
margir góðir vínbarir, sem eru
jú allt öðruvísi en bjórbarirnir,
við förum stundum á Barlie, R og
Nærver, sem er við íslenska sendi-
ráðið.“
Sundsprettir, sólskin og saga
En hvaða barir og túristastaðir
eru vinsælastir meðal Íslendinga?
„Frægasti og klassískasti „Íslend-
ingabarinn“ er auðvitað Vínstofa
Hvíts, Hviids Vinstue, sem er alltaf
vinsæl, ekki síst meðal íslenskra
ferðamanna. Af öðrum Íslend-
ingabörum, meira fyrir „lókal“
Íslendinga, má nefna Café Salonen
í Pissurennunni, enda rekinn af
Íslendingi. Góð stemmning þar og
huggulegheit. Klassísku túrista-
staðirnir í Kaupmannahöfn sem
allir þekkja eru hugsanlega Tívolí,
Nýhöfn, Hafmeyjan, Amalíu-
borg, Kristjanía og Strikið,“ segir
Hrannar.
Það er margt um að vera í
borginni, allan ársins hring. „Á
Ofelíu ströndinni á sumrin er
mikið mannlíf, tónlist, sund-
sprettir og sólbað. Allir í stuði. Svo
má nefna Rósenborgargarðinn,
eða Kóngsins garðinn, Kongens
Have, sem er uppáhalds útiveru-
svæði Kaupmannahafnarbúa og
líka okkar, enda risastór, f lottur
og í næsta nágrenni við Jónshús.
Þar er hægt að hygge, lesa, prjóna,
slaka á, borða nesti, drekka vínglas
og sofa.“
Þá nefna þau nokkrar áhuga-
verðar sögulegar byggingar sem
vert er að skoða. „Svo er auðvitað
allt sem Kristján fjórði byggði, f lest
frá 1620 til 1650. Margar stórkost-
legar byggingar, eins og Rósen-
borgarhöll, Sívali turninn, Børsen
og Nýbúðir. Maður þreytist aldrei
á að skoða þær.“
Hægt er að fylgjast með og hafa
samband við þau hjón í gegnum
Facebook undir „Halla og Hrannar
á göngu um Kaupmannahöfn“ og
á: ferdirumkbh.dk.
Framhald af forsíðu ➛
Staðreyndin er sú
að margir Íslend-
ingar sem koma til
Kaupmannahafnar fara á
mis við margt það áhuga-
verðasta sem borgin
hefur upp á að bjóða.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U R