Fréttablaðið - 17.02.2020, Qupperneq 35
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Mánudagur
hvar@frettabladid.is
17. FEBRÚAR 2020
Hvað? Wuwei í Ferlinu og dygðinni
(Daodejing – Bókin um veginn
Hvenær? 12.00-13.00
Hvar? Veröld - hús Vigdísar, 2. hæð
Konfúsíusarstofnun og Heimspeki-
stofnun standa að heimsókn Douglas
Berger, samanburðarheimspekings
og prófessors við Leiden-háskóla,
sem fjallar um áskoranir þvermenn-
ingarlegrar heimspeki.
Hvað? Pallborðsumræður um Vanja
frænda
Hvenær? 17:00
Hvar? Veröld – húsi Vigdísar
Brynhildur Guðjónsdóttir leik-
stjóri, Valur Freyr Einarsson leik-
ari, Rebekka Þráinsdóttir, aðjunkt
í rússnesku og Gunnar Pétursson
þýðandi verksins ræða um sýningu
Borgarleikhússins á Vanja frænda.
Guðrún Kristinsdóttir, doktors-
nemi í frönskum fræðum, stýrir
umræðum.
Hvað? Kórperlur úr austri og íslensk
verk
Hvenær? 21.00
Hvar? Hjallakirkja Kópavogi
Kórinn Ægisif með síðustu tónleika
vetrarins. Stjórnandi Hreiðar Ingi
Þorsteinsson. Yngsta verkið á efnis-
skránni, O magnum mysterium,
eftir Hjálmar H. Ragnarsson, er a
cappella-kaf li úr kantötunni Lau-
dem Domini, sem kórinn frum-
f lutti í Landakotskirkju, ásamt
Íslenskum strengjum í nóvem-
ber 2019.
Hvað? Almennt danskvöld
Hvenær? 21.00-22.30
Hvar? Iðnó
Sveif ludansinn Lindy hop. Kostar
ekkert inn.
Brynhildur Guðjóns tekur þátt í um-
ræðum um uppsetninguna á Vanja
frænda í Veröld - húsi Vigdísar.
Undirbúningur fyrir nýja námsbraut; kjörnámsbraut með áherslu á sviðslistir, er
hafinn en um samstarf Mennta-
skólans á Akureyri og Leikfélags
Akureyrar er að ræða.
Vala Fannell, verkefnastjóri
brautarinnar, segir gott að finna
metnaðinn og viljann hjá Leik-
félagi Akureyrar og Menntaskólans
á Akureyri. „Við höfum fundið fyrir
töluverðum áhuga frá ungu fólki,
námsráðgjöfum grunnskólanna og
fólki alls staðar að af Norðurlandi,“
segir Vala sem segir brautina ekki
einungis fyrir þá sem vilja verða
leikarar. „Þessi braut er fyrir krakka
sem eru í leiklist, dansi, tónlist,
tækni eða hönnun en hafa einnig
áhuga á leikhúsi. Eftir námið hafa
nemendur fengið sterkan grunn
til að mennta sig áfram í list sinni
en eru einnig vel undirbúnir fyrir
almennt háskólanám.“
Jón Már Héðinsson, skólameistari
Menntaskólans, er spenntur fyrir
nýju brautinni. „Okkur í MA fannst
vanta námsframboð í sviðslistum
og vildum auka úrval skapandi
greina. Nemendur hafa kallað eftir
þessu og þetta er spennandi verk-
efni.“-gun
Nám í sviðslistum í undirbúningi
Vala Fannell, Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdarstjóri Menningarfélags Akureyrar, Jón Már Héðinsson,
Marta Nordal leikhússtjóri og Alma Oddgeirsdóttir áfangastjóri MA. MYND: AUÐUNN NÍELSSON
ÞESSI BRAUT ER FYRIR
KRAKKA SEM ERU Í LEIKLIST,
DANSI, TÓNLIST, TÆKNI EÐA
HÖNNUN.
Látum ekki gerræði borgaryfirvalda eyðileggja hann með víðtækum götulokunum
allt árið hvernig sem viðrar, gegn vilja afgerandi meirihluta rekstraraðila og íbúa.
Við viljum vera í miðbænum og halda áfram að þjónusta ykkur.
Án verslunar er ekkert mannlíf.
Við treystum á ykkar stuðning í baráttunni.
Aðgerðarhópurinn Björgum miðbænum.
BORGARBÚAR
Við eigum aðeins
einn Laugaveg og einn miðbæ
Opnum Laugaveginn og Skólavörðustíginn
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19M Á N U D A G U R 1 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0