Fréttablaðið - 17.02.2020, Side 40
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg. ehf
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Guðmundar
Brynjólfssonar
BAKÞANKAR
Þjónustuver 519 1919 | www.nova.is
Snjalltækjum fylgir ekki tilkynningaskylda. Prófaðu að slökkva
á áreitinu og nndu frelsið sem fylgir lí án rauðu deplanna.
Hugsaðu um tilnningar en ekki tilkynningar.
Vertu á staðnum.
Tilkynningafrí
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is
SPORT
LUNCH
199
KR/STK
Þrátt fyrir að vera nokkuð framsettur hef ég engar kjaftasögur heyrt um að ég
sé óléttur. Reyndar heyri ég aldrei
neinar kjaftasögur um mig og
finnst það nokkuð merkilegt því
ég veð frægðarelginn upp undir
efstu höku.
Mér finnst raunar að kjafta-
sögum sé svo misskipt að jaðri
við stjórnarskrárbrot því eins
og þar stendur: „Allir skulu vera
jafnir fyrir lögum og njóta mann-
réttinda án tillits til kynferðis,
trúarbragða, skoðana, þjóðernis-
uppruna, kynþáttar, litarháttar,
efnahags, ætternis og stöðu að
öðru leyti.“
Þegar horft er til þessa og rýnt í
kjaftasögudreifingu og skoðaðir
kjaftasöguþegar þá kemur í ljós
hróplegt misrétti. Það er alltaf
sama fólkið sem sagðar eru af
kjaftasögur. Og það sem meira
er, það er alltaf sama fólkið sem
heyrir kjaftasögur um sjálft sig.
Stundum er eins og Borgar-
skjalavörður hafi um mig allar
upplýsingar í PDF-skjali sem ekki
er hægt að opna. Um mig ríkir
stæk þögn. Ég gerði mitt besta til
þess að opinbera sjálfan mig með
því að deila persónuleikaprófinu
frá Kára á Facebook. En þar var
engin tíðindi að sjá, - bara það að
ég er gjörbrjálaður maður.
Ég hef oft hugsað um þetta „...
og stöðu að öðru leyti“ sem lokar
þessari mannréttindaklásúlu
stjórnarskrárinnar. Ætli ég sé
þarna? Í þessari ókennilegu stöðu
sem ekki er hægt að orða nema
svona vítt og almennt – og því fari
ekki af mér neinar kjaftasögur?
Ég gæti auðvitað gert eins og svo
margir aðrir sem brotið er á með
svipuðum hætti á degi hverjum, ég
gæti sagt óljósar fréttir af sjálfum
mér sem ég þættist hafa heyrt hér
eða þar – utan af mér. Ég gæti ...
- þar missti ég vatnið.
Söguburður