Morgunblaðið - 16.12.2019, Side 1
M Á N U D A G U R 1 6. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 295. tölublað 107. árgangur
Askasleikir kemur í kvöld
8 dagartil jóla
jolamjolk.is
ÁRNESSÝSLA
MEÐ STERKA
TÓNLISTARHEFÐ ÞRENNIR TÓNLEIKAR
DOKTORSÚTSKRIFTIR
HAFA ALDREI
VERIÐ FLEIRI EN NÚ
KARLAKÓR REYKJAVÍKUR 29 SKÓLARNIR ERU MIKILVÆGIR 6JÓN ORGANISTI Í 10 KIRKJUM 10
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Tengivirki Landsnets í Hrútatungu í
Hrútafirði leysti nokkrum sinnum út
í gær vegna seltu og ísingar. 25
manna hópur átti að hefja hreinsun á
einangrurum í tengivirkinu á mið-
nætti, að sögn Steinunnar Þorsteins-
dóttur, upplýsingafulltrúa Lands-
nets. Reiknað var með að það tæki
allt að fjórar stundir. Á meðan var
rafmagn tekið af í Vestur-Húna-
vatnssýslu og Hvammstanga. Hætta
var á að truflanir gætu orðið á raf-
magni á Ströndum, í Dölum og Reyk-
hólasveit vegna þessa.
Vel gekk að gera við Dalvíkurlínu í
gær. Viðgerð á vírum var nánast lok-
ið í gærkvöld. Eftir var að reisa fjór-
ar stæður eða átta staura og setja
upp krossa og slár. Reiknað er með
að viðgerð ljúki á miðvikudag.
Kópaskerslína er í rekstri frá Laxá
að Lindarbrekku og að fiskeldisstöð-
inni í Öxarfirði. Í dag hefst viðgerð á
línuhlutanum næst Kópaskeri þar
sem brotnuðu fjórtán stæður og mun
20 manna hópur vinna við það.
Reiknað er með að viðgerð taki
nokkra daga. Viðgerð hófst á Húsa-
víkurlínu í gær og er reiknað með að
henni ljúki á morgun.
Kröflulína I var tekin úr rekstri í
gær vegna þess að brjóta þurfti ís-
ingu af leiðurum þar sem hún þverar
Eyjafjarðará. Það gekk vel. Beðið
verður með viðgerð á Laxárlínu á
meðan gert er við aðrar línur.
Varaafl var á Hvammstanga
Vararafstöð var við heilbrigðis-
stofnunina á Hvammstanga á árum
áður. Guðmundur Haukur Sigurðs-
son var við stofnunina í nærri 30 ár,
fyrst sem framkvæmdastjóri til 2010
og svo svæðisfulltrúi HVE til 2017.
Hann sagði að vararafstöðin hefði
verið í bílskúr á lóð heilbrigðisstofn-
unarinnar. Hún var sjaldan notuð
nema snjóaveturinn mikla 1995.
Gerðar voru miklar endurbætur á
lóð og húsnæði stofnunarinnar frá
því um 1992 og fram yfir 2000. Skúr-
inn þurfti að víkja og sagði Guð-
mundur að ekki hefði verið vilji í
ráðuneytinu fyrir því að byggja ann-
an skúr yfir stöðina. „Það var nið-
urstaða yfirmanna í heilbrigðisráðu-
neytinu þá að það væri ekki ástæða
til að vera að reka þessa varaaflvél,“
sagði Guðmundur. Hún var því fjar-
lægð. Það þótti óhætt því Rarik var
með varaaflstöð á staðnum og sagði
að hún myndi duga.
Nokkrum árum síðar ákvað Rarik
að fara með varaaflstöðina frá
Hvammstanga. Því var meðal ann-
ars mótmælt af sveitarstjórninni.
„Nú vakna menn upp við vondan
draum,“ sagði Guðmundur.
Línuviðgerðum miðar vel
Vinnuhópar Landsnets víða að störfum Varaaflstöð var við heilbrigðisstofnunina á Hvammstanga
Hún var fjarlægð og átti varaaflstöð Rarik að nægja „Nú vakna menn upp við vondan draum“
Morgunblaðið/Eggert
Dalvíkurlína Viðgerð sóttist vel í gær við raflínur sem skemmdust í ofsaveðrinu mikla. Viðgerð á línum Dalvíkurlínu var nær lokið í gærkvöld.
MAfleiðingar ofsaveðurs » 4 & 14
„Þarna er
verið að skipta
takmörkuðum
gæðum og
veita ein-
hverjum for-
göngu en
þetta er nauð-
synlegt til þess að fyrirætlanir um
orkuskipti nái fram að ganga.
Annars er tómt mál að tala um
þau,“ segir Sigurður Helgi Guð-
jónsson, formaður og fram-
kvæmdastjóri Húseigendafélags-
ins, um frumvarp til laga sem
miðar að því að auðvelda ein-
staklingum að setja upp raf-
hleðslustöðvar við fjöleignarhús.
Sigurður hafði talað fyrir breyt-
ingunum í rúm tvö ár áður en við
óskum hans var brugðist. »2
Skipta gæðum í
þágu orkuskipta
Nefnd um hæfni umsækjenda um
dómarastarf hefur með nýrri um-
sögn sinni alfarið hafnað þeim
vinnubrögðum er hún viðhafði sjálf í
Landsréttarmálinu. Þetta segir Sig-
ríður Á. Andersen, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, í aðsendri grein í
Morgunblaðinu í dag.
Nefndin skilaði í síðustu viku um-
sögn sinni um umsækjendur um
lausa stöðu hæstaréttardómara.
Bendir Sigríður á að nefndin sjái
þar ekki ástæðu til að gera upp á
milli þeirra þriggja umsækjenda
sem metnir eru hæfastir, í samræmi
við reikniformúlur, á þeim forsend-
um að „eðli máls samkvæmt [sé]
samanburður á
verðleikum
þeirra flókinn og
að þeir hafi á
löngum ferli get-
ið sér góðs orð-
spors hvert á
sínu sviði svo
ekki verði með
góðu móti greint
þar á milli“.
Segir Sigríður
að þessi rökstuðningur sé nokkurn
veginn samhljóða rökstuðningi
hennar í Landsréttarmálinu, er hún
lagði fram tillögu um að skipa fjóra
dómara sem ekki höfðu verið metnir
meðal þeirra fimmtán hæfustu í
stöðurnar fimmtán. Þeir þrír um-
sækjendur sem metnir voru hæfastir
nú voru einnig meðal umsækjenda
um stöðu landsréttardómara árið
2017. Þá var fjórði umsækjandinn
um stöðuna nú, en sem er ekki met-
inn meðal hæfustu, með 0,20 hærri
einkunn en einn af þremenningunum
sem metnir eru hæfastir nú. Til sam-
anburðar munaði einungis 0,03 stig-
um á umsækjandum um stöðu lands-
réttardómara sem höfnuðu í 15. og
16. sæti en nefndin hafi ekki talið
sambærilega hæfa. Ljóst megi því
vera að nefndin hafi nú hafnað fyrri
niðurstöðu sinni » 15
Ósamræmi hjá hæfnisnefnd
Nefnd um skipan dómara telur ekki tilefni til að greina á
milli álíka hæfra umsækjenda Hæfnismat er alltaf huglægt
Sigríður Á.
Andersen