Morgunblaðið - 16.12.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2019
Fallegar íbúðir frá 36m2 viðHverfisgötu 40-44 lausar til langtímaleigu.
Íbúðirnar verða afhentar fullbúnarmeðeldhústækjum.
Nánari upplýsingar í tölvupósti hjá thildur@egh.is
Langtímaleiga
Hverfisgata 40-44
Fyrir fundi Alþingis í dag ligg-ur tillaga um að fresta fund-
um þingsins til 20. janúar. Það
má því búast við að
þingið fari í jólafrí
í dag eða á morg-
un og almennt má
segja að þing-
störfin hafi gengið
þokkalega þó að
sumt hafi setið á
hakanum af óskilj-
anlegum ástæðum og annað feng-
ið meiri tíma en efni stóðu til.
En þó að þingstörf hafi al-mennt gengið bærilega hafa
þau ekki verið hnökralaus og
sumir þingmenn gerðu hvorki sér
né þinginu greiða með framferði
sínu. Í Viðskiptablaðinu í liðinni
viku nefndu hrafnarnir Huginn
og Muninn dæmi:
Dagskrá þingfundar riðlaðist íupphafi viku eftir að stjórn-
arandstöðuþingmenn létu sig
hverfa úr þingsal áður en til at-
kvæðagreiðslu um afbrigði kom
svo fundurinn taldist ekki álykt-
unarbær. Slík þingskapatrix eru
fátíð en þó ekki óþekkt. Hrafn-
arnir ætluðu hins vegar ekki að
trúa sínum eigin eyrum þegar
formaður Samfylkingarinnar,
Logi Már Einarsson, gaf þá skýr-
ingu að einhver kveisa – mögu-
lega sú sama og herjaði á flug-
umferðarstjóra hér um árið –
hefði skyndilega lagst á þing-
menn.
Að mati Hrafnanna hefði for-manninum verið nær að við-
urkenna klókindin opinberlega í
stað þess að skýla sér bak við
slíkan barnaskap. Með þessu
áframhaldi verður þess ekki
langt að bíða að skrifstofa þings-
ins biðji kjósendur um að sækja
þingmanninn sinn fyrr í leikskól-
ann við Austurvöll sökum þess að
hann hagi sér undarlega.“
Logi Már
Einarsson
Logi og
leikskólakveisan
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Um 350 jarðskjálftar höfðu riðið yf-
ir Reykjanesið þegar Morgunblaðið
fór í prentun seint í gærkvöld.
Á slaginu átta í gærmorgun gekk
skjálfti yfir sem var 3,5 stig að
stærð. Þá höfðu þegar nokkrir
minni skjálftar skekið Reykjanesið.
Kristín Jónsdóttir, jarðskjálfta-
sérfræðingur hjá Veðurstofu Ís-
lands, segir ekkert benda til þess að
eldgos verði vegna skjálftanna þótt
ekki sé hægt að útiloka það.
„Hins vegar er það þannig að
þegar þú ert með þennan óstöðug-
leika þá er talsvert meiri hætta á að
það komi meiri skjálftar og jafnvel
stærri skjálftar,“ segir hún.
Víða á höfuðborgarsvæðinu
fundu íbúar fyrir krafti skjálfta
morgunsins. Hann varð í Fagra-
dalsfjalli á Reykjanesi. Þessum
fyrsta stóra skjálfta dagsins fylgdi
tæplega 300 skjálfta hrina. Henni
lauk síðdegis í gær. Ný hrina hófst
svo í gærkvöldi.
Þá riðu tveir stærri skjálftar yfir
á Reykjanesi um klukkan 20, báðir
3,6 stig að stærð. Upptök beggja
skjálftanna voru skammt suðaustur
af Fagradalsfjalli.
Sex jarðskjálftar sem voru yfir
þrjú stig höfðu riðið yfir Reykja-
nesið þegar Morgunblaðið fór í
prentun. ragnhildur@mbl.is
Skjálftar nærri fjórum stigum
Fjöldi skjálfta reið yfir á Reykjanes-
inu í gær Hætta á stærri skjálftum
Kort/Veðurstofan
Reykjanes Skjálftarnir sem riðu yf-
ir á Reykjanesi í gær voru margir.
Fjölmiðlar verða undanþegnir
greiðslu tryggingagjalds launa,
samkvæmt frumvarpi sem fjórir
þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins
hafa lagt fram.
Undanþágan
mun gilda fyrir
laun í tveimur
neðri skattþrep-
um, þ.e. laun upp
að um 920 þús-
und krónum á
mánuði, fyrir
starfsmenn sem
vinna við fram-
leiðslu fréttaefnis, svo sem blaða-
menn og útvarpsmenn, en einnig
aðra starfsmenn sem styðja við þá
framleiðslu, svo sem starfsmenn
auglýsingadeilda og launabókhalds.
Óli Björn Kárason er fyrsti flutn-
ingsmaður frumvarpsins. Hann
segir frumvarpið lagt fram með það
fyrir augum að styrkja rekstrar-
grundvöll sjálfstæðra fjölmiðla með
skýrari og gagnsærri hætti en
frumvarp menntamálaráðherra,
sem ráðherra mun að öllum líkind-
um mæla fyrir í dag. Frumvarp ráð-
herra gerir ráð fyrir 18% endur-
greiðslu til fjölmiðla af
ritstjórnarkostnaði, að hámarki 50
milljónir króna til hvers fjölmiðils.
„Með því að styðja við miðla í
gegnum skattkerfið tryggjum við
að allir sitji við sama borð,“ segir
Óli Björn. Aðspurður segir hann að
ekki hafi verið ráðist í mat á áhrif-
um frumvarpsins á ríkissjóð, Talið
sé að 600-700 starfsmenn fjölmiðla
falli undir skilgreininguna og segir
Óli Björn því ljóst að fjárhæðin sem
um ræðir sé hærri en þær 400 millj-
ónir sem ráðgert er að frumvarp
menntamálaráðherra kosti árlega.
Frumvarp ráðherra hefur tekið
þó nokkrum breytingum frá fyrstu
drögum og hefur styrkhlutfall til að
mynda verið lækkað. Óli Björn seg-
ir þó óhjákvæmilegt að frekari
breytingar verði gerðar á frum-
varpinu eigi það að verða sam-
þykkt.
Spurður út í möguleika eigin
frumvarps viðurkennir Óli Björn að
þingmannafrumvörp eigi oft erfitt
uppdráttar. Hins vegar hafi flutn-
ingsmenn viljað bjóða fram valkost
við frumvarp menntamálaráðherra,
sem Óli Björn hefur ítrekað gagn-
rýnt og varað við afleiðingum þess
að fjölmiðlar séu háðir ógagnsæju
styrkjakerfi opinberrar nefndar.
Miðlar styrktir
með skattaafslætti
Bjóða valkost við frumvarp ráðherra
Óli Björn
Kárason