Morgunblaðið - 16.12.2019, Page 2

Morgunblaðið - 16.12.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2019 Söfnum í neyðarmatar- sjóð fyrir jólin til matarka hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp slands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í fyrir jólin Guð blessi ykkur öll Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Stjórnarfrumvarp sem miðar að því að auðvelda einstaklingum að setja upp rafhleðslustöðvar í fjöleignar- húsum var birt á vef Alþingis í síð- ustu viku. Sigurður Helgi Guðjónsson, for- maður og framkvæmdastjóri Húseig- endafélagsins, sat í nefndinni sem vann að frumvarpinu en hann telur að það sé mikil réttarbót og framför. Sömuleiðis getur frumvarpið leitt til þess að rafbílaeigendum sé gert hærra undir höfði en öðrum. Hingað til hafa þröngar reglur um breyting- ar á bílastæðum gert orkuskiptum bílaflotans erfitt fyrir. „Með þessu er verið að opna fjöl- eignarhús fyrir rafbílum, þarna er verið að taka burt flöskuháls sem ella hefði staðið þessum orkuskiptum fyr- ir þrifum,“ segir Sigurður. Eins og staðan er í dag þarf sam- þykki allra eigenda að húsnæði að liggja fyrir svo hægt sé að ráðast í uppsetningu á hleðslustöð fyrir raf- bíla á sameiginlegri lóð þótt bílastæð- ið sé eftir sem áður notað sem al- mennt bílastæði. Ef einskorða á notkun tiltekins bílastæðis við hleðslu rafbíla þarf samþykki allra eigenda til. Sé frumvarpið samþykkt breytist þetta og húsfélagi fjöleign- arhúss verður skylt að úthluta sér- stökum bílastæðum undir hleðslu- búnað fyrir rafmagnsbíla. Slys er nú tímaspursmál Að sögn Sigurðar er staðan eins og hún er í dag stórhættuleg þar sem rafbílaeigendur sem búi í fjöleignar- húsum þurfi að fara krókaleiðir til þess að tengja bíla sína við rafmagn en það geti skapað hættu. Sigurður flutti nýverið erindi á ráðstefnu verk- fræðistofunnar Verkís um þessi mál. „Þar var sagt frá dæmum um það að bílar hefðu brunnið og kviknað í húsum. Þeir töldu að það væri bara tímaspursmál hvenær kviknaði í bíl í stórum bílakjallara og þá væri voðinn vís,“ segir Sigurður. Hingað til hefur skortur á hleðslu- stöðvum einnig getað staðið í vegi fyrir fasteigna- og/eða bílakaupum, að sögn Sigurðar. „Þetta er farið að standa í vegi fyrir fasteignakaupum, þú kaupir ekki eign vegna þess að það eru ekki hleðslumöguleikar þar eða þú kaup- ir ekki rafbílinn sem þig langar í. Það er náttúrlega óþolandi að svona hindranir standi í vegi fyrir fólki sem á að hafa frjálst val.“ Aðrir eigendur en sá sem óskar eftir hleðslustöð munu í einhverjum tilfellum þurfa að greiða hluta kostnaðarins. Sigurður segir að vissulega sé með þessu verið að veita einum hópi, rafbílaeigendum, for- réttindi umfram aðra hópa. „Þarna er verið að skipta tak- mörkuðum gæðum og veita ein- hverjum forgöngu en þetta er nauð- synlegt til þess að fyrirætlanir um orkuskipti nái fram að ganga.“ Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir því að virðisaukaskattur vegna upp- setningar hleðslustöðva verði end- urgreiddur að fullu. Fjarlægja flöskuháls rafbílanna  Frumvarpi ætlað að auðvelda einstaklingum uppsetningu hleðslustöðva  Nauðsynlegt vegna fyrir- hugaðra orkuskipta, að sögn formanns Húseigendafélagsins  Rafbílaeigendur fá ákveðin forréttindi Morgunblaðið/Hari Hleðslustöð Sigurður hafði reynt að fá fram breytingar á löggjöfinni í rúm tvö ár en talaði fyrir daufum eyrum þar til nýlega þegar nefnd var stofnuð. Jólatrjáasala Skógræktarfélags Reykjavíkur hefur farið vel af stað. Selt er á tveimur stöðum; við Elliða- vatn í Heiðmörk, þar sem fólk getur keypt tré með hefðbundna laginu, og á Hólmsheiði, þar sem fólki gefst kostur á að velja sér tré úr jólaskógi félagsins og höggva sjálft. Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélagsins, hafði í nógu að snúast er blaðamaður náði tali af hon- um síðdegis í gær. „Þetta gengur al- veg frábærlega og ekki skemmir veðr- ið fyrir. Fólk nýtur sín algjörlega hér í náttúrunni og fallegri vetrarsólinni,“ segir hann. Hann segir að sú hefð hafi skapast hjá mörgum fjölskyldum að höggva eigið tré í jólaskóginum og að ívið fleiri tré séu seld þar en í Heiðmörk. „Þetta er ákveðið hópefli því fólk þarf auðvitað að koma sér saman um tré og hjálpast að,“ segir Helgi enn fremur. Öll tré Skógræktarfélagsins eru innlend og mestmegnis greni úr Heið- mörk, en til að anna eftirspurn fékk félagið einnig hundrað grenitré frá Þorgerðarstöðum í Fljótshlíð. Björgunarsveitir láta ekki sitt eftir liggja á jólatrjáamarkaðnum. Hjá Hjálparsveit skáta í Garðabæ hefur salan einnig gengið vel, en þar er seldur danskur normannsþinur. Stríður straumur hefur verið í versl- un hjálparsveitarinnar á Garðatorgi um helgina og opið til níu öll kvöld til jóla. „Eða þar til síðasta tréð selst,“ segir Íris Dögg Sigurðardóttir, for- maður hjálparsveitarinnar. Hún seg- ir að jólatrjáasalan sé kærkomin við- bót við fjáröflun sveitarinnar, en standi þó flugeldasölunni langt að baki. „Flugeldarnir eru langstærsta fjáröflunin. Það er ekkert að breyt- ast,“ segir hún. alexander@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Jólaskógur Menn hjálpast að við að koma böndum á nýhöggvið tréð. Höggva eigið tré í jólaskógi  Jólahefð margra fjölskyldna  Jólatrjáasala góð fjár- öflun fyrir björgunarsveitir, en ekkert á við flugeldasölu Jólavertíðin er hafin og þá glæðast viðskiptin hjá kaupmönnum lands- ins. Jólaafgreiðslutími tók gildi í stærstu verslunarmiðstöðvum lands- ins, Kringlunni og Smáralind, á laug- ardag og verða þær nú báðar opnar til klukkan 22 öll kvöld til jóla, nema á Þorláksmessu þegar opið er til 23. Sigurjón Örn Þórsson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar, segir að fyrsti dagur í jólavertíð hafi gengið vonum framar. Talið er inn í versl- unarmiðstöðina og á háannatíma milli klukkan þrjú og fjögur í eftir- miðdaginn hafi nær 5.000 manns ver- ið í húsinu samtímis. Yfir daginn hafi 35.000 manns heimsótt Kringluna. Aðsókn ræðst gjarnan af veðri Sigurjón segir aðsóknina ráðast töluvert af veðri. Þannig hafi síðustu dagar verið gjöfulir, en afar kalt hef- ur verið á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu. „Ef veðrið er ljúft skilar fólk sér kannski frekar annað, til dæmis niður í miðbæ, en annars leit- ar það í hlýjuna,“ segir Sigurjón. Spurður hvort einhver tími gefist til að sinna eigin jólaundirbúningi þegar stýra þarf heilli verslunarmið- stöð í jólaösinni viðurkennir Sigur- jón að hann lendi aðallega á konunni. „Ég var kaupmaður í mörg ár áður en ég tók við rekstri Kringlunnar svo hún er vön því að ég sé mikið frá fyr- ir jólin,“ segir Sigurjón, sem lofar um leið að hann muni koma sterkur inn í heimilishaldið í janúar. Svipaða sögu er að segja af keppi- nautunum í Smáralind. Þar má búast við 22-30.000 gestum upp á hvern dag til jóla, en í samtali við Morgun- blaðið segir Tinna Jóhannsdóttir, markaðsstjóri Smáralindar, að toppnum sé náð á Þorláksmessu. Tinna segir þó færast í vöxt að fólk undirbúi jólin snemma. „Margir eru farnir að nýta þessa tilboðsdaga, konukvöld, miðnæturopnun og svartan föstudag, til að hefja jóla- undirbúninginn.“ Morgunblaðið/Hari Örtröð Margt er um manninn í verslunarmiðstöðvum rétt fyrir jól. Um 5.000 á sama tíma í Kringlunni  Jólavertíð verslunarmiðstöðva hafin Messudagur heilagrar Lúsíu var sl. föstudag, 13. des- ember. Þá er til siðs í Svíþjóð og víðar á Norðurlöndum að efna til hátíðar. Lúsíudagsins var minnst í Seltjarn- arneskirkju og söng sjálf Lúsía með kertakórónu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Lúsía ber birtu inn í skammdegið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.