Morgunblaðið - 16.12.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2019
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
V
E
R
T
Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og
steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum.
- því að sumt virkar betur saman
Stundum
þarf tvo til
Að minnsta kosti einn þeirra sem
handteknir voru í Danmörku í síð-
ustu viku vegna gruns um að þeir
hefðu lagt á ráðin um hryðjuverk
hefur tengsl við lykilpersónur í
véum öfgasinnaðra íslamista í
Kaupmannahöfn. Frá þessu grein-
ir danska dagblaðið Berlingske
Tidende í gær. Segir blaðið mann-
inn hafa verið liðsmann íslamska
öfgahópsins Millatu Ibrahim, en
starfsemi hans hefur verið bönnuð
í Þýskalandi.
Auk þessa mun maðurinn hafa
verið í nánum tengslum við nokkra
aðila sem ferðast hafa frá Dan-
mörku til vígstöðva Sýrlands og
tilheyra hvort tveggja hópi liðs-
manna Millatu Ibrahim og hópi
sem kallar sig upp á dönsku Kaldet
til Islam eða Köllun íslams.
Hvorir tveggja þessara hópa eru
að sögn BT kunnir í Danmörku
fyrir andúð sína á lýðræðinu og
lögum mannanna auk þeirrar við-
leitni sinnar að stofna til svokall-
aðra sjaría-svæða í hverfum Kaup-
mannahafnar með það fyrir augum
að hvetja unga múslima til að fara
til Sýrlands og grípa þar til vopna.
Höfðu efni til sprengjugerðar
Danska öryggislögreglan, PET,
segir að frá árinu 2012 hafi um það
bil 150 manns ferðast frá Dan-
mörku til Sýrlands. Sumir þeirra
hafi snúið til baka, aðrir hafi týnt
lífinu í vopnuðum átökum en fáein-
ir séu enn á vígvellinum sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar.
Flemming Drejer, yfirmaður
PET, sagði á blaðamannafundi á
miðvikudaginn í síðustu viku að
kveikjan að stóraðgerð lögreglunn-
ar og 22 handtökum hefði verið að
hópur fólks hefði meðal annars út-
vegað sér hráefni til sprengjugerð-
ar og auk þess reynt að útvega sér
skotvopn. Norska ríkisútvarpið
NRK greindi frá því í síðustu viku
að þarlendur maður, sem norska
öryggislögreglan PST hefði í haldi,
hefði verið í samskiptum við ein-
staklinga úr hópnum í Danmörku.
Sögðu NRK og danskir fjöl-
miðlar enn fremur frá því að við
húsleitir í Danmörku hefði lög-
regla lagt hald á nokkurt magn
sprengiefnisins TATP sem einnig
er þekkt undir heitinu móðir djöf-
ulsins og er sama efni og Ibrahim
El Bakraoui beitti við hryðju-
verkaárásirnar í Brussel í Belgíu
22. mars 2016.
Af hinum handteknu í Dan-
mörku var 13 sleppt í kjölfar yfir-
heyrslna, níu úrskurðaðir til
gæsluvarðhaldsvistar en af þeim
þrír látnir lausir á ný.
Samkvæmt fréttum ísraelsku
sjónvarpsstöðvarinnar Keshet 12
hljóp ísraelska leyniþjónustan
Mossad undir bagga með dönsku
lögreglunni við rannsókn málsins
og afhjúpaði að minnsta kosti hluta
hóps sem grunaður er um að hafa
lagt á ráðin um hryðjuverk. Þetta
segist Berlingske Tidende þó ekki
hafa fengið staðfest þar sem
gæsluvarðhaldsúrskurðir yfir þeim
handteknu hafi verið kveðnir upp
fyrir luktum dyrum.
Danski dómsmálaráðherrann
Nick Hækkerup sagði í síðustu
viku að þjóðin skyldi aldrei láta
myrk öfl, sem illt eitt gengi til,
stjórna lífi sínu. Við skulum lifa
okkar lífi eins og við erum vön og
treysta því að lögreglan og örygg-
islögreglan vaki yfir okkur, sagði
ráðherra.
Með tengingar við innsta hring
Frá árinu 2012 hafa um 150 manns farið frá Danmörku til vígaslóða Sýrlands Minnst einn hinna
handteknu í Danmörku í síðustu viku hefur tengsl við öfgasinnaða íslamista í Kaupmannahöfn
AFP
Danmörk Umfangsmikil lögreglu-
aðgerð leiddi til handtöku margra.
Hópur leikara minntist í gær leiftursóknar Þjóðverja gegnum Ardenna-
skóginn, en um er að ræða síðustu stórsókn þeirra í síðari heimsstyrjöld og
átti hún að breyta gangi styrjaldar. Bandamönnum tókst þó að lokum að
berja þýskar sveitir á bak aftur með tilheyrandi mannfalli á báða bóga.
AFP
Sóttu inn í Ardenna-skóg
Alls eru 18 taldir
af eftir eldgosið
á eyjunni White
Island undan
ströndum Nýja-
Sjálands. Ekki
hefur tekist að
endurheimta lík
allra þar sem
sum eru grafin
undir ösku eða
horfin í sæ. Er
það lögreglan á Nýja-Sjálandi sem
greinir frá þessu við AFP.
„Björgunarmenn eru ekki sáttir
við stöðuna. Við skiljum vel hversu
erfitt þetta er fyrir aðstandendur
sem vilja endurheimta líkin,“ sagði
aðstoðaryfirlögregluþjónn við
AFP. Hinir látnu eru á aldrinum 13
til 53 ára og er um að ræða ríkis-
borgara frá Nýja-Sjálandi, Banda-
ríkjunum, Bretlandi og víðar. Alls
eru 26 á sjúkrahúsi, langflestir
þeirra alvarlega slasaðir með
brunasár víða um líkamann.
NÝJA-SJÁLAND
Munu ekki geta
endurheimt öll líkin
Hætta Gos hófst
mjög skyndilega.