Morgunblaðið - 16.12.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2019
Það ráku margir upp stór augu þeg-
ar Gylfi Þór Sigurðsson var ekki í leik-
mannahópi Everton þegar liðið heim-
sótti Manchester United á Old Trafford
í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
gær. Leiknum lauk með 1:1-jafntefli en
Duncan Ferguson, tímabundinn stjóri
liðsins, greindi frá því í viðtali við fjöl-
miðlamenn fyrir leik að Gylfi Þór hefði
verið sendur veikur heim af liðshóteli
félagsins í gærmorgun þar sem hann
hafði fundið fyrir slappleika um nótt-
ina.
Jón Dagur Þorsteinsson var á skot-
skónum fyrir AGF þegar liðið vann 3:1-
útsigur gegn toppliði Midtjylland í
dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
gær. Jón Dagur skoraði annað mark
AGF í stöðunni 1:1 og kom sínu liði yfir á
52. mínútu. Jón Dagur lék fyrstu 70
mínútur leiksins en Mikael Neville And-
erson lék allan leikinn fyrir Midtjylland
sem er í efsta sæti deildarinnar með 50
stig. FCK er í öðru sætinu með 43 stig
og AGF er í því þriðja með 36 stig.
Handknattleikskappinn Viggó Krist-
jánsson var á meðal markahæstu leik-
manna Wetzlar þegar liðið vann 29:26-
útisigur gegn Leipzig í þýsku 1. deild-
inni í gær. Viggó skoraði fimm mörk úr
fimm skotum, líkt og Olle Schefvert í
liði Wetzlar, og voru þeir tveir marka-
hæstu leikmenn liðsins. Wetzlar er í ní-
unda sæti deildarinnar með 16 stig eftir
16 leiki.
Knattspyrnukonan Jasmín Erla
Ingadóttir heldur áfram að gera það
gott með Apollon Limassol á Kýpur.
Hún skoraði eitt mark í 10:0-útisigri
liðsins gegn Lefkothea en þetta var
sjötta mark Jasmínar á tímabilinu.
Apollon Limasol er með 36 stig og fullt
hús stiga í efsta sæti 1. deildarinnar og
hefur þriggja stiga forskot á Pyrgos Li-
massol eftir tólf umferðir.
Íslendingarnir í GOG voru í stórum
hlutverkum þegar liðið vann 26:25-
heimasigur gegn Mors-Thy í dönsku úr-
valsdeildinni í handknattleik á laug-
ardaginn. Viktor Gísli Hallgrímsson
varði alls þrettán skot í marki GOG og
var með rúmlega 36% markvörslu. Þá
skoraði Óðinn Ríkharðsson fjögur
mörk úr fjórum skotum og Arnar Freyr
Arnarsson skoraði eitt mark. GOG er í
áttunda sæti deildarinnar með 18 stig.
Körfuknattleikskonan Sara Rún
Hinriksdóttir fór mikinn fyrir Leicester
Riders í efstu deild Englands um
helgina. Á laugardaginn skoraði hún 18
stig og var stigahæsti leikmaður liðsins
í 73:68-tapi gegn Manchester Mystics.
Þá tók hún einnig fimm fráköst í leikn-
um á þeim tæpu 35
mínútum sem hún
lék. Í gær skoraði
hún svo 19 stig og
var næststigahæsti
leikmaður liðsins í
74:68-sigri gegn
Sheffield Hatters.
Sara lék í tæpar 32
mínútur gegn
Sheffield en
Leicester Riders
er í fimmta
sæti deild-
arinnar með
12 stig eftir
átta leiki.
Eitt
ogannað
SELFOSS/AKUREYRI
Guðmundur Karl
Einar Sigtryggsson
Valsmenn fögnuðu 33:31-sigri gegn
Selfossi í úrvalsdeild karla í hand-
knattleik, Olísdeildinni, í Hleðslu-
höllinni á Selfossi í fjórtándu umferð
deildarinnar í gær en þetta var átt-
undi sigur liðsins í röð í deildinni.
Leikurinn byrjaði ekki gæfulega
hjá Selfyssingum, Valur hafði frum-
kvæðið á upphafsmínútunum og ekki
bætti úr skák að Atli Ævar Ingólfs-
son, línumaður Selfoss, fékk að
ósekju rautt spjald strax á 6. mínútu.
Strax í kjölfarið sveiflaðist leik-
urinn Íslandsmeisturunum í hag.
Einar Baldvin Baldvinsson kveikti í
húsinu með frábærri markvörslu í
næstu sókn og Guðni Ingvarsson átti
frábæra innkomu á línuna og sýndi
mögnuð tilþrif.
Allur þessi hamagangur innan
vallar varð til þess að stuðnings-
menn Selfoss trylltust af gleði í stúk-
unni og er alveg óhætt að segja að
þeir hafi fleytt sínu liði yfir erfiðustu
kaflana.
Valur keyrði mjög hraðar sóknir í
upphafi leiks en þeir voru feikilega
öruggir í aðgerðum sínum og ógnuðu
úr mörgum áttum en breiddin var
augljóslega minni hjá Selfyssingum.
Þannig skoruðu Haukur Þrastarson
og Hergeir Grímsson samtals fjór-
tán af átján mörkum Selfyssinga í
fyrri hálfleik.
Seinni hálfleikurinn var stál í stál.
Selfoss hélt forskoti sínu fram í miðj-
an seinni hálfleikinn en þá skaut
Agnar Smári Jónsson Valsmönnum
aftur inn í leikinn. Fjórar sleggjur í
röð út við stöng og Valsmenn voru
mættir.
Í svona jöfnum leik ráðast úrslitin
á fáum atriðum. Selfoss gerði fleiri
mistök á lokakaflanum en Valsmenn
flugu áfram og fögnuðu sigri.
Haukur Þrastarson var algjör
yfirburðamaður á vellinum í gær-
kvöldi, skoraði níu mörk og sendi sjö
stoðsendingar auk þess sem hann
var sterkur í vörninni. Valsmenn
brugðu á það ráð að taka Hauk úr
umferð á lokakaflanum og það skil-
aði sínu. Sóknir Selfoss urðu ekki
eins markvissar og menn fóru að
reyna skot úr erfiðum stöðum auk
þess sem Daníel Freyr Andrésson,
markvörður Vals, náði að klukka
nokkra bolta en markmennirnir
voru ekki í stuði í gærkvöldi.
Markahríð á Akureyri
KA og Fjölnir áttust við í snjónum
á Akureyri í gær en fyrir leik var
Fjölnir með fimm stig í næstneðsta
sætinu. KA var tveimur sætum ofar
með níu stig. Leikurinn var því mik-
ilvægur í baráttu liðanna við að
halda sér í deildinni en jafnframt að
koma sér í úrslitakeppnina. Eftir
gríðarlegan markaleik, sem sveifl-
aðist til og frá, voru það KA-menn
sem fögnuðu sigri, 35:32. KA eltir
því Stjörnuna og er með 11 stig en
staða Fjölnis versnaði töluvert við
þetta tap.
Það sem einkenndi leikinn var
hversu snöggir Fjölnismenn voru að
saxa niður það forskot sem KA var
búið að byggja upp. Gerðist það
nokkrum sinnum í leiknum að gott
forskot KA hvarf að hluta eða að
fullu á augabragði. Bæði lið blésu í
sóknarlúðra en varnarleikur var
lagður til hliðar á meðan. Það var
rétt í byrjun leiks sem KA spilaði al-
mennilega vörn og kom sér þá í 5:0.
Það bil var aldrei brúað fyllilega þótt
Fjölnismenn hafi náð að jafna leik-
inn sjö sinnum í seinni hálfleiknum.
Sigþór Gunnar Jónsson var í
fantaformi hjá KA ásamt Daníel
Griffin en aðrir voru nokkuð frá sínu
besta. Hjá Fjölni steig Goði Ingvar
Sveinsson upp í seinni hálfleiknum
og raðaði inn mörkum. Breki Dags-
son og Brynjar Óli Kristjánsson
voru einnig drjúgir en aðrir sýndu
ekki neinn stórleik.
Fyrsta tapið í Garðabænum
Stjarnan gerði sér lítið fyrir og
vann sjö marka sigur gegn toppliði
Hauka í TM-höllinni í Garðabæ en
leiknum lauk með 31:24-sigri
Garðbæinga.
Jafnfræði var með liðunum á
fyrstu tíu mínútum leiksins en eftir
það náðu Stjörnumenn frumkvæð-
inu í leiknum. Garðbæingar náðu
mest fimm marka forskoti í fyrri
hálfleik, 14:9, en Haukum tókst að
laga stöðuna fyrir hálfleik. Stjarnan
leiddi með þremur mörkum í hálf-
leik, 15:12, og náði snemma fjögurra
marka forskoti í seinni hálfleik.
Haukum tókst ekki að laga stöðuna
og Stjarnan hélt áfram að auka for-
skot sitt og fagnaði sannfærandi
sigri í leikslok.
Tandri Már Konráðsson skoraði
sjö mörk fyrir Stjörnuna og Leó
Snær Pétursson sex. Þá varði Ólafur
Rafn Gíslason tólf skot í marki
Garðbæinga og var með 34% mark-
vörslu. Orri Freyr Þorkelsson var
markahæstur Hauka með átta mörk
en aðrir leikmenn náðu sér ekki á
strik.
Stjarnan fer með sigrinum upp í
áttunda sæti deildarinnar í ellefu
stig en Haukar eru sem fyrr í efsta
sætinu með 23 stig, einu stigi meira
en Afturelding.
Ósigraðir í síðustu sex leikjum
Afturelding er á miklu skriði en
liðið gerði góða ferð í Safamýrina á
laugardaginn og vann eins marks
sigur, 23:22. Afturelding var með yf-
irhöndina allan leikinn en Fram
tókst að gera leikinn spennandi á
lokamínútum leiksins þegar þeir
minnkuðu muninn í eitt mark, eftir
að hafa verið mest sjö mörkum undir
í seinni hálfleik. Birkir Benediktsson
var markahæstur í liði Mosfellinga
með sjö mörk en Afturelding er
ósigrað í síðustu sex deildarleikjum
sínum. Liðið tapaði síðast deildarleik
hinn 3. nóvember síðastliðinn gegn
Haukum en Afturelding er með 22
stig í öðru sæti deildarinnar og
Fram er í tíunda sætinu með átta
stig.
ÍBV jafnaði FH að stigum
Dagur Arnarson reyndist hetja
ÍBV gegn FH í Kaplakrika í Hafn-
arfirði í gær. Leiknum lauk með
33:32-sigri ÍBV en Dagur tryggði
Eyjamönnum sigur með sirkus-
marki á lokasekúndum leiksins.
Mikið jafnfræði var með liðunum all-
an leikinn en staðan í hálfleik var
16:14, FH í vil. Hákon Daði Styrm-
isson átti stórleik fyrir ÍBV og skor-
aði tíu mörk og Kári Kristján Krist-
jánsson skoraði sex mörk. Einar
Rafn Eiðsson var markahæstur í
liði Hafnfirðinga með tíu mörk og
Ásbjörn Friðriksson skoraði sjö.
ÍBV er með 16 stig í sjötta sæti
deildarinnar, líkt og FH , en Hafn-
firðingar hafa nú tapað tveimur
leikjum í röð.
Þá vann ÍR átta marka sigur gegn
HK í Kórnum í Kópavogi á laug-
ardaginn, 34:26. ÍR er í fjórða sæti
deildarinnar með 18 stig en HK er
sem fyrr í neðsta sætinu með tvö
stig.
Deildin er nú komin í frí og hefjast
leikar að nýju hinn 28. janúar næst-
komandi á nýju ári.
Valur á miklu flugi
Óvænt fyrsta tap toppliðsins í Garðabæ Dagur tryggði Eyjamönnum sigur í
Hafnarfirði með sirkusmarki Loksins unnu Akureyringar eftir fjóra tapleiki í röð
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Öflugur Fjölnismenn réðu illa við KA-manninn Daníel Örn Griffin á Akureyri í gær en hann skoraði sjö mörk.
Knattspyrnukonan Anna Rakel
Pétursdóttir er gengin til liðs við
sænska úrvalsdeildarfélagið Upp-
sala en félagið greindi frá þessu á
heimasíðu sinni í gær.
Anna Rakel kemur til félagsins,
sem er nýliði í sænsku úrvalsdeild-
inni, frá Linköping sem endaði í
fimmta sæti sænsku úrvalsdeild-
arinnar á síðustu leiktíð.
Anna Rakel lék átján leiki með
Linköping á síðustu leiktíð en hún
er uppalin hjá Þór/KA á Akureyri.
Hún að baki sex leiki fyrir íslenska
kvennalandsliðið. bjarnih@mbl.is
Anna skipti um
félag í Svíþjóð
AFP
Ung Anna Rakel er 21 árs en hún
lék sinn fyrsta landsleik árið 2018.
Aron Pálmarsson og liðsfélagar
hans í spænska handknattleikslið-
inu Barcelona eru spænskir deilda-
bikarmeistarar eftir 30:22-sigur
gegn Bidasoa í úrslitaleik í Polide-
portivo-höllinni í Valladolid í gær.
Aron komst ekki á blað í leiknum
en þetta er í þriðja sinn á þremur
árum sem Barcelona vinnur deilda-
bikarinn. Í keppninni mætast fjög-
ur efstu lið spænsku 1. deildarinnar
en Barcelona hefur unnið keppnina
oftast allra eða 15 sinnum frá því
hún var haldin fyrst, tímabilið
1990-91. bjarnih@mbl.is
Sá þriðji á þrem-
ur árum hjá Aroni
Barcelona
Sigursæll Aron gekk til liðs við
Barcelona árið 2017 frá Veszprém.