Morgunblaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 56
TRATTO model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 83 Verð 395.000,-
L 215 cm Leður ct. 25 Verð 585.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
KIPLING model 3088
L 214 cm Áklæði ct. 70 Verð 345.000,-
L 180cm Áklæði ct. 70 Verð 325.000,-
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-
Kammersveitin Elja heldur tónleika
í Iðnó 30. desember kl. 20. Á efnis-
skránni eru Some Reasons for
Hesitating eftir J. Hodkinson;
Kammerkonsert fyrir píanó og fiðlu
með 13 blásurum eftir A. Berg og
Sinfónía nr. 4 í A-dúr eftir F. Mend-
elssohn. Ungir hljóðfæraleikarar á
Íslandi stofnuðu Elju 2017 með það
að markmiði að flytja fjölbreytta og
áhugaverða kammertónlist og leika
sér með kammersveitarformið.
Elja leikur í Iðnó
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 362. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Ég komst að samkomulagi við for-
ráðamenn félagsins og við töldum
að best væri í stöðunni að þeir
myndu finna sér annan markmann
og ég myndi finna mér annað lið. Ég
fæ þá tækifæri til að takast á við
nýjar áskoranir og þroskast frekar
sem markvörður,“ segir Ágúst Elí
Björgvinsson, markvörður Sävehof
og íslenska landsliðsins í hand-
bolta. »45
Ætlar að takast á
við nýjar áskoranir
Stjórnin og Herra Hnetusmjör
halda áramótaballið 2019 í
Austurbæ í kvöld, laugardags-
kvöld. Húsið verður opnað kl. 23
og mun tónlistin óma frá mið-
nætti til kl. þrjú um nóttina.
Stjórnina skipa þau Sigríður Bein-
teinsdóttir, Grétar Örvarsson, Eið-
ur Arnarsson, Kristján Grétarsson
og Sigfús Óttarsson. Rúm 30 ár
eru síðan Stjórnin var stofnuð.
Hún hefur tvisvar tekið þátt í
Eurovision með góðum árangri og
átt prýðilegum vin-
sældum að fagna í
gegnum tíðina.
Miðar fást á tix.is
en aðeins 20
ára og eldri
komast
inn.
Stjórnin og Herra
Hnetusmjör með ball
ÍÞRÓTTIR MENNING
Belgíu. Hún vinnur á vöktum, er
þrjár vikur ytra og þrjár vikur
heima á Íslandi, og gerir ráð fyrir að
taka sveinsprófið eftir tæplega tvö
ár. „Þetta er mjög skemmtilegt, góð-
ir samstarfsmenn og áhugavert
starf,“ áréttar hún.
Diljá vinnur við Boeing 747-400-
vélar hjá Air Atlanta. Hún segist
ekki vera flugvélanörd en njóti þess
að sjá vélar á lofti og spennandi sé
að gera við þessar stóru vélar. „Dag-
urinn er fljótur að líða og ég bíð
spennt eftir hverjum degi.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Diljá Kristjánsdóttir og Erla Björg
Valþórsdóttir luku námi í flug-
virkjun í Tækniskólanum í Reykja-
vík á dögunum. Þær voru verð-
launaðar fyrir framúrskarandi
árangur en þetta er í fyrsta skipti
sem tvær konur brautskrást sem
flugvirkjar frá skólanum á sama
tíma.
Þegar Diljá var í Mennta-
skólanum í Reykjavík ætlaði hún sér
að verða ljósmóðir. „Mér fannst það
eitthvað svo spennandi,“ rifjar hún
upp. Hún byrjaði því í hjúkrunar-
fræði í Háskóla Íslands, en hætti því
eftir eitt ár. „Eftir á að hyggja
fannst mér ekki þess virði að fara í
fjögurra ára nám í hjúkrun til þess
að útskrifast sem ljósmóðir tveimur
árum seinna. Ég held reyndar að
það eigi að breyta fyrirkomulaginu
og ef það gerist má vel vera að ég
eigi eftir að verða ljósmóðir. Ég hef
ekki lokað á það en eins og stendur
hugsa ég bara um flugvirkjunina,
enda er starfið mjög skemmtilegt.“
Krefjandi nám
Vinna í skólafríi hjá Air Atlanta í
sjö sumur og um jól kveikti áhugann
á flugvirkjun hjá Diljá, sem var með
besta sameiginlegan árangur í bók-
legu og verklegu námi í flugvirkjun.
„Ég vann meðal annars við að skrá
inn það sem flugvirkjar fást við og
það varð til þess að ég ákvað að fara
í þetta nám,“ segir hún.
Námið reyndist erfiðara en Diljá
átti von á. „Skóladagurinn var mjög
langur og 7,5 var lágmarkseinkunn
til þess að ná prófum,“ segir hún.
„Ég var í raun í skólanum frá klukk-
an átta á morgnana til tíu eða ellefu
á kvöldin og líka alltaf að læra um
helgar. Þetta var ekki auðvelt en
mér finnst gaman að læra og þetta
gekk vel.“
Diljá lauk bóklegum hluta náms-
ins síðastliðið vor og hefur verið í
verklega náminu síðan. Frá því í
haust hefur hún unnið við flug-
virkjun hjá Air Atlanta í Liége í
Ljósmóðir draumur
hjá dúx í flugvirkjun
Vinnur hjá Air Atlanta í Belgíu og hlakkar til hvers dags
Dúx Diljá Kristjánsdóttir hlaðin verðlaunum eftir útskriftina.