Morgunblaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019 Morgundagurinn verður betri með After Party™ Amínósýrur, Rósepli, Cactus extract, öflug blanda af B-vítamínum og Magnesíum. Virkar vel gegn þynnku 2 töflur fyrir fyrsta drykk 2 töflur fyrir svefn Fæst í apótekum og heilsuhillum verslana I www.artasan.is Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur saman, sýnir stuðning og samhug eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur JÓLASÖFNUN Karlakórinn Heimir í Skagafirði efn- ir í kvöld til árlegrar áramótagleði í Miðgarði. Hefst dagskráin kl. 20:30. Stjórnandi kórsins sem fyrr er Stefán R. Gíslason og Thomas R. Higgerson undirleikari. Munu ungir söngvarar í kórnum m.a. stíga á svið og syngja nokkur vel valin lög. Gísli Einarsson, fréttamaður og „tengdasonur Skagafjarðar“, verður ræðumaður kvöldsins. Í samtali við Morgunblaðið sagðist Gísli m.a. ætla að fjalla um „hina þekktu ferða- menn“, Jósep og Maríu. „Vandræði þeirra varðandi gisti- húsapláss eru talandi dæmi um gildi bókunarkerfa. Á móti kemur að kol- efnisspor þeirra skötuhjúa var með lægsta móti. Að öðru leyti verður þetta á ljúfum og hátíðlegum nótum enda fer maður ekki að bjóða Skag- firðingum upp á neinn dónaskap. Þetta er líka það hæsta sem ég get náð á mínum ferli að vera þarna einn í Heimi. Verður ekki toppað,“ sagði Gísli um erindi sitt í kvöld, léttur í bragði að vanda. Gunnar Rögnvaldsson, staðar- haldari á Löngumýri, skellti í bundið mál um tónleika Heimis í kvöld og hafði þetta að segja: Þarna verður hlegið hátt, hraustir menn á sveimi. Gamla árið gengið brátt og Gísli í eigin „heimi“. Ljósmynd/Heimir Heimir Ungir kórfélagar munu leika stórt hlutverk á tónleikunum í kvöld. Gísli í eigin Heimi  Heimismenn verða með árlega ára- mótatónleika í Miðgarði í kvöld Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þrátt fyrir að mjólkurkúm hafi fækkað um 2% á þessu ári er útlit fyrir að innvegin mjólk til mjólk- ursamlaganna verði sú sama og á síðasta ári, um 152,5 milljónir lítra. Ástæðan er sú að nytin eykst að meðaltali. Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði reikna með örlitlum samdrætti í framleiðslunni á næsta ári. Framkvæmdanefnd um bú- vörusamninga leggur til að heild- argreiðslumark næsta árs verði það sama og í ár, 146 milljónir lítra. Mjólkurframleiðslan hefur auk- ist verulega undanfarinn áratug. Hún náði sögulegu hámarki á síð- asta ári, þegar hún var 152,5 millj- ónir lítra. Bjarni Ragnar Brynj- ólfsson, skrifstofustjóri Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði, segir að innvigtun fyrri hluta ársins hafi verið nokkuð undir því sem var á sama tíma árið áður. Þetta hafi snúist við seinni hluta ársins, og þá verið aukning miðað við sömu mánuði árið á undan. Þegar litið er á árið í heild hefur gripum fækkað um 2%. Samt hefur innvigtun hald- ist svipuð í heildina og árið áður. Það þýðir að framleiðslan eftir hverja kú að meðaltali hefur aukist um 2%. Vegna aukningarinnar síðari hluta ársins varð ekki sú minnkun í framleiðslu sem SAM hafði spáð. Framleiðslan er því enn talsvert yfir sölu á innanlandsmarkaði. Hún var rúmlega 146 milljónir lítra á fitugrunni á tólf mánaða tímabili, miðað við lok október og tæplega 127 milljónir lítra á pró- teingrunni. Offramleiðslan sam- svarar því 6 milljónum eða 26 milljónum lítra, eftir því við hvort efnið er miðað. Ástandið orðið stöðugt SAM spáir því að gripum haldi áfram að fækka og að nytin aukist eitthvað á móti, þó þannig að fram- leiðslan dragist aðeins saman, verði 148 til 149 milljónir lítra. Tekur Bjarni fram að litlu megi skeika á áætlunum til að fram- leiðslan verði einhverjum millj- ónum lítra meiri eða minni. „Stóru tíðindin í þessu eru þau að við erum komin í stöðugt ástand í stað þeirrar miklu aukningar í framleiðslu og sölu á mjólk sem við höfum séð undanfarin 10 til 15 ár,“ segir Bjarni. Breytingar með kvótanum Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda, hefur góða tilfinningu fyrir komandi ári. „Ég reikna með að framleiðslan verði svipuð og verið hefur. Það er hugur í mönnum. Búast má við breytingu með endurvakningu kvótakerfisins á næsta ári. Ein- hverjir smáir framleiðendur hætta og aðrir bæta við sig.“ Arnar á von á að framkvæmda- gleðin haldi áfram, margir bændur endurnýi fjós sín eða byggi ný. Þá telur hann að margir séu að bæta sig í ræktun og fóðuröflun. Það skili betri afurðum þegar fram í sæki. Bendir hann á að veðurfarið hafi minni áhrif á gæði heyjanna en áður var. Bændur séu orðnir það vel tækjum búnir og hafi bætt þekkingu sína, þannig að óþurrka- sumur eða góð þurrkasumur hafi ekki sömu áhrif á framleiðsluna og áður var. Sala á mjólk samsvarar nú 145-146 milljónum lítra, ef reiknað er út frá fituinnihaldi. Á þeim forsendum lagði SAM til að heildargreiðslumark mjólkur á næsta ári yrði aukið í 145,5 millj- ónir lítra. Framkvæmdanefnd bú- vörusamninga samþykkti hins veg- ar tillögu búnaðarstofu Mast um að kvótinn yrði óbreyttur á næsta ári, 145 milljónir lítra. Búist er við að landbúnaðarráðherra birti ákvörðun sína fyrir áramót. Salan minnkar Jón Baldur Lorange, fram- kvæmdastjóri búnaðarstofu, segir áætlað að 3% samdráttur verði í sölu mjólkur á fitugrunni til við- bótar 2% samdrætti á árinu 2018. Þá hafi birgðir aukist, miðað við stöðuna í lok nóvember, en tekur fram að þá hafi ekki verið búið að ljúka útflutningi vegna umfram- mjólkur á árinu 2018, samkvæmt upplýsingum stjórnar SAM. Gert hafi verið ráð fyrir að það mál yrði í höfn fyrir lok þessa árs. „Að öllu þessu samanlögðu var það mat búnaðarstofu að skyn- samlegt væri að leggja til óbreytt greiðslumark mjólkur á næsta verðlagsári, en ekki auka það eins og stjórn SAM lagði til,“ segir Jón Baldur. Meira framleitt þótt gripum fækki  Útlit fyrir að innvegin mjólk til mjólkursamlaganna verði sú sama og á síðasta ári  Framleiðslan jókst á síðari hluta ársins og er meiri en nemur innanlandssölu  Kvótinn verður 145 milljónir lítra Morgunblaðið/Eggert Á beit Kýrnar mjólkuðu vel á síðari hluta ársins. Góð beit átti þátt í því. Mjólkurframleiðsla orðin stöðug Innvegin mjólk, milljónir lítra *Áætlun. Heimild: SAM. 150 125 100 75 50 25 0 152,5 125,6 123,2 124,8 125,1 122,9 133,5 146,0 150,2 151,1 *152,5 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.