Morgunblaðið - 28.12.2019, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 2019
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga og 11-16 laugardaga. www.alno.is
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
ÚR BÆJARLÍFINU
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Veðurfar hefur örugglega verið þó
nokkuð til umræðu í nýliðnum jóla-
boðum, enda umræðuefni sem nýtur
vinsælda og gildir þá í raun einu
hvaða árstíð er ríkjandi. Snjómagn
norðan heiða er með mesta móti og
endalaust hægt að finna fleti til að
ræða um þegar að því kemur.
Og áfram gengur á með veður-
viðvörunum, í gærdag þegar þessi
pistill var skrifaður var í gildi gul við-
vörun fyrir Norðurland eystra og allt
eins gert ráð fyrir að vindhviður færu
upp í 40 metra á sekúndu. Vegfar-
endur því varaðir við að færð gæti
spillst, enda viðbúið að leysingar
gerðu að verkum að vegir á norðan-
og austanverðu landinu yrðu flug-
hálir. Ætli ekki sé best að búa sig
undir að á gangi með þessum gulu og
appelsínugulu viðvörunum fram eftir
öllum vetri.
Skuggahlið gríðarlegrar snjó-
komu er auðvitað sú að kostnaður við
snjómokstur fer upp úr öllu valdi
með tilheyrandi ama fyrir þá sem
gæta bæjarsjóðs. Fjárhagsáætlun
ársins gerði ráð fyrir 177 milljónum
króna í snjómokstur á Akureyri en
umfangsmikill mokstur í desember,
sem þó er ekki alveg búinn, mun ef-
laust fara langt yfir þá tölu. Stærstu
snjómokstursdagana eru um 50
manns að störfum og tækin um 40
talsins. Þeir kosta sitt, eða um 12
milljónir króna hver. Það safnast
fljótt saman. Tveggja metra jafnfall-
inn snjór er víða í Kjarnaskógi. Snjór
er enn mikill í trjákrónum og verður
hann verulega þungur þegar hann
blotnar, sver tré geta hæglega kubb-
ast í tvennt undan slíku fargi að sögn
Ingólfs Jóhannssonar, fram-
kvæmdastjóra Skógræktarfélags
Eyfirðinga.
Bogin og brotin tré eru úti um
allan skóg og má gera ráð fyrir að
þegar vorar verði mikil vinna að saga
og snyrta.
„Það er ljóst að mikil vinna er
fram undan við grisjun, hreinsun og
lagfæringar í Kjarnaskógi á komandi
ári, bæði mikið verk og kostnaðar-
samt þannig að það má alveg segja að
óveðrið hafi valdið okkur umtals-
verðu tjóni, segir hann.
Menningarlífið er að venju í
blóma í höfuðstað Norðurlands og
margt í boði þegar tónlist er annars
vegar svo dæmi sé tekið. Einn við-
burður verður í dag, laugardag,
sannkölluð tónlistarveisla þar sem
stórskotalið stígur á pall í
Akureyrarkirkju. Um er að ræða
tónleika til heiðurs þeim mæta manni
Ingva Rafni Jóhannssyni, sem fagn-
ar 90 ára afmæli sínu eftir fáeina
daga. Ingvi Rafn hefur sett svip á
bæjar- og tónlistarlífið um áratuga
skeið. Þeir sem heiðra kappann með
þátttöku sinni á tónleikunum í dag
eru Kristján Jóhannsson, Óskar Pét-
ursson, Alda Ingibergsdóttir, Gunn-
ar Björn Jónsson, Michael Jón
Clarke, Helena Guðlaug Bjarnadótt-
ir, Jana Salóme Ingibjargar Jós-
epsdóttir, Þóra Kristín Gunn-
arsdóttir og Karlakór Akureyrar
Geysir.
Björgunarsveitin Súlur opnar
flugeldasölu sína í dag, laugardag, en
félagar í björgunarsveitum um land
allt voru heldur betur í sviðsljósinu í
óveðurs- og rafmagnsleysistíð fyrr í
þessum mánuði. Sveitarfélög víða um
land hafa gaukað fé að sveitum í sinni
heimabyggð í þakklætisskyni og er
Akureyrarbær þar engin undantekn-
ing. Bærinn færði Súlum fjórar millj-
ónir króna fyrir framlagið en m.a. var
fyrir þeirra tilstilli hægt að sinna lág-
marksvelferðarþjónustu á svæðinu á
vegum ríkis og sveitarfélags meðan
óveður stóð.
Súlur sjá um flugeldasýningu á
áramótabrennu við Réttarhvamm við
Hlíðarfjallsveg á gamlárskvöld og er
margra ára hefð fyrir því að Akur-
eyringar safnist þar saman nánast
hvernig sem viðrar og fylgist með.
Áramótabrennan er á sínum stað og
hefst kl. 20.30. Einnig er áramóta-
brenna í Hrísey og kveikt upp í henni
kl. 17 á gamlársdag en í Grímsey
hefst áramótabrenna kl. 20.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Akureyri Súlur sjá um flugeldasýningu á áramótabrennu við Réttarhvamm við Hlíðarfjallsveg á gamlárskvöld.
Gengur á með gulu
og appelsínugulu
Sorpurðun Vesturlands ákvað fyrr í
þessum mánuði að hækka gjaldskrá
á móttöku heimilissorps um 29%.
Þessu var harðlega mótmælt á síð-
asta fundi bæjarráðs Akraness fyrir
jól og ályktun samþykkt þess efnis.
„Bæjarráð telur að ekki liggi fyrir
nægjanleg gögn til rökstuðnings
hækkuninni en þar sem um þjón-
ustugjöld er að ræða þarf slíkt ávallt
að liggja til grundvallar slíkri
ákvörðun og er einnig í andstöðu við
ákvæði lífskjarasamninganna,“ segir
m.a. í bókun bæjarráðs.
Bæjarráðið segist með þessu ekki
vera að gera lítið úr þörf á auknum
fjárfestingum í málaflokknum en
horfa þurfi til forgangsröðunar og
vinna áætlanir til lengri tíma sam-
hliða því.
Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, lagði fram sér-
staka bókun, þar sem hún tekur
fram að hún standi heilshugar að
baki bókun bæjarráðs. Fulltrúi
flokksins í stjórn Sorpurðunar
Vesturlands hafi greitt atkvæði gegn
tillögunni þar, en fulltrúar Samfylk-
ingarinnar og Framsóknar og
frjálsra samþykkt hækkunina, þvert
gegn vilja bæjarráðs.
„Sjálfstæðisflokkurinn harmar að
meirihluti stjórnar Sorpurðunar
Vesturlands hafi ekki stuðst við for-
sendur lífskjarasamninganna við af-
greiðslu gjaldskrárinnar eins og
bæjarstjórn Akraness hafði einsett
sér í fjárhagsáætlunargerðinni fyrir
árið 2020. Þessi ákvörðun kann að
fela í sér þörf á endurskoðun gjald-
skrár Akraneskaupstaðar varðandi
sorphreinsun og sorpeyðingu,“ segir
í sérbókun Rakelar.
Mótmæla 29%
hækkun á sorp-
urðunargjaldi
Gagnrýna Sorpurðun Vesturlands
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Akranes Bæjarráð mótmælir hækk-
un sorpurðunargjalds harðlega.
Heilsa ehf. af-
henti á dög-
unum Bleiku
slaufunni, átaks-
verkefni
Krabbameins-
félagsins, styrk
upp á 700 þús-
und krónur. Er
þetta afrakstur
styrktarátaks
Heilsu ehf. en
200 krónur af
hverju keyptu vítamínglasi frá
Gula miðanum, sem að gefnu til-
efni var merkt bleikum miða,
voru látnar renna til Bleiku slauf-
unnar.
„Við erum ákaflega stolt af því
að fá tækifæri til að styðja við
þetta góða starf sem unnið er hjá
Krabbameinsfélaginu og þakklát
þeim viðskiptavinum sem keyptu
Gula miðann á meðan söfnunin
var í gangi,“ er haft eftir Báru
Einarsdóttur, sölustjóra Heilsu, í
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Guli miðinn styrkir
Bleiku slaufuna
Bleikt Styrkurinn
var að upphæð 700
þúsund krónur.