Morgunblaðið - 31.12.2019, Blaðsíða 20
20 STJÓRNMÁL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2019
K
refjandi, viðburðaríkt, árangursríkt. Öll þessi orð
koma mér í hug þegar árið 2019 er rifjað upp. Í
apríl voru lífskjarasamningarnir undirritaðir á al-
mennum vinnumarkaði en þeir mörkuðu ákveðin
tímamót. Þeir eru umbótasamningar sem fólu
annars vegar í sér nýja nálgun aðila vinnumarkaðarins á kjara-
samninga og hins vegar ríkari aðkomu stjórnvalda en áður hef-
ur tíðkast.
Ríkisstjórnin gaf út veigamikla yfirlýsingu um aðgerðir og
umbætur til að bæta lífskjör í landinu og studdi þannig við
samningana. Í lok árs voru samþykkt ýmis lög á Alþingi á
grundvelli yfirlýsingarinnar. Samþykkt var nýtt þriggja þrepa
skattkerfi sem er réttlátara og skilar skattalækkun sem verður
mest hjá tekjulægri hópum. Samhliða því hækka barnabætur
og hafa þær þá hækkað um 27% frá árinu 2018. Alþingi sam-
þykkti frumvarp um uppbyggingu almennra íbúða og á næsta
ári styrkja stjórnvöld byggingu tvöfalt fleiri íbúða en áætlað
var. Þá verður fæðingarorlof lengt í heilt ár, sem er risastórt
framfaramál fyrir allt barnafólk á Íslandi. Frekari aðgerðir eru
fram undan, þ.á m. fyrstu skrefin til afnáms verðtryggingar og
aðgerðir gegn félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á
vinnumarkaði sem er samfélagsleg meinsemd sem ekki getur
liðist.
Með lífskjarasamningunum er stigið mikilvægt skref til að
peningastefna, ríkisfjármálastefna og vinnumarkaðsstefna
vinni saman en frá undirritun hafa stýrivextir Seðlabankans
lækkað töluvert og eru nú 3%.
Samfélagsleg framfaramál
Komandi ár verður krefjandi á sviði efnahagsmála þó að góð-
ur árangur hafi náðst. Fram undan er verk að vinna við að auka
opinbera fjárfestingu og blása þannig byr í seglin án þess að
missa tökin á hagstjórninni. Þá þurfa samningar við opinbera
starfsmenn að takast. Undanfarin misseri hafa minnt á að hag-
stjórn snýst um að vera stöðugt á vaktinni og tryggja þetta við-
kvæma samspil með stóru myndina í huga: Að efnahagslegur
stöðugleiki þarf að fara saman við velsæld almennings og sjálf-
bæra nýtingu auðlinda án þess að gengið sé á umhverfisleg
gæði til framtíðar.
Samfélagsleg framfaramál hafa þó ekki verið bundin við úr-
lausnarefni á vinnumarkaði. Þannig hafa verið stigin stór skref
á undanförnum tveimur árum til að draga úr kostnaði sjúklinga
við heilbrigðisþjónustu en þar hefur sérstaklega verið for-
gangsraðað öryrkjum og öldruðum, fyrst hvað varðar tann-
læknakostnað, og í kjölfarið komugjöld á heilsugæslustöðvar.
Áform eru um að verja 3,5 milljörðum á komandi árum til að
draga enn frekar úr sjúkrakostnaði fólks. Um leið hefur verið
stóraukin þjónusta á sviði geðheilbrigðis innan heilsugæsl-
unnar auk ýmissa annarra umbótamála á þessu sviði.
Í sumar samþykkti Alþingi að draga úr skerðingum á
greiðslur til örorkulífeyrisþega sem hefur verið baráttumál
þeirra til margra ára. Það er fyrsta skrefið sem stigið hefur
verið í þeim efnum í áratug.
Réttindabarátta skilar árangri
Þau réttindi sem við teljum sjálfsögð hafa sjaldnast fengist
nema vegna mikillar baráttu. Sú barátta hefur skilað mikil-
vægum framförum á undanförnum tveimur árum. Tveir laga-
bálkar um jafna meðferð fólks tóku gildi í fyrra og nú á árinu
samþykkti Alþingi lög um kynrænt sjálfræði sem marka tíma-
mót fyrir þau sem vilja velja sér kyn og breyta kynskráningu
sinni. Það var sérlega gleðilegt hve breið pólitísk samstaða var
um málin á þingi. Á haustmánuðum rifjaðist hins vegar upp fyr-
ir mörgum að svo hefur ekki alltaf verið þegar hinir afbragðs-
góðu þættir Hrafnhildar Gunnarsdóttur, Svona fólk, voru sýnd-
ir í Ríkissjónvarpinu.
Fram undan er vinna við endurskoðun jafnréttislaga og á
þessu ári var mikilvægt skref stigið í jafnréttisátt þegar ný
þungunarrofslöggjöf var samþykkt sem styrkir sjálfsákvörð-
unarrétt kvenna yfir eigin líkama. Þegar kemur að jafnrétti
kynjanna er þó enn mikið verk óunnið, ekki síst á sviði kyn-
bundins ofbeldis, sem fjallað var um á Metoo-ráðstefnu stjórn-
valda í Hörpu í haust sem vakti athygli langt út fyrir landstein-
ana. Markmið okkar á að vera að útrýma meinsemdinni sem
kynbundið ofbeldi er, með skýrri stefnu og aðgerðum eigum við
að sýna í verki að það er hægt.
Tími aðgerða er kominn
Í haust sótti ég loftslagsfund Sameinuðu þjóðanna í New
York og var þar beðin að fjalla um aðgerðir Íslendinga í kolefn-
isbindingu. Þar höfum við ýmislegt fram að færa, hvort sem er í
hefðbundnum aðgerðum á sviði landgræðslu, skógræktar og
endurheimtar votlendis eða í nýsköpun á þessu sviði þar sem ís-
lenskir aðilar hafa verið að þróa nýja tækni í kolefnisbindingu.
Ísland stefnir að kolefnishlutleysi í síðasta lagi 2040 en við
verðum að sýna árangur strax í þeirri vegferð. Orkuskipti í
samgöngum og aukin kolefnisbinding eru lykilatriði í aðgerða-
áætlun stjórnvalda. Grænar ívilnanir og grænir skattar munu
flýta fyrir orkuskiptum – en nú um áramótin taka gildi nýjar
ívilnanir gagnvart rafhjólum og reiðhjólum – og eins mikil fjár-
festing í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu, í gegn-
um borgarlínuverkefnið. Með verkefnum í landgræðslu, skóg-
rækt og endurheimt votlendis sem eru þegar farin af stað
munum við binda 50% meira kolefni árlega árið 2030 en við ger-
um núna. Stjórnvöld og atvinnulíf tóku höndum saman um
stofnun Grænvangs, samráðsvettvangs um aðgerðir á sviði
loftslagsmála, og þegar opinberir styrkir til uppsetningar hrað-
hleðslustöðva um landið allt voru kynntir tók atvinnulífið ræki-
lega við sér en alls má gera ráð fyrir um hálfum milljarði í fjár-
festingu í hleðslustöðvum á komandi ári. Ákveðið var að
forgangsraða fjármunum í nýrri markáætlun í rannsóknir á
loftslagsmálum og sett var ný löggjöf um loftslagsmál.
Við munum ekki ná árangri í baráttunni gegn hamfarahlýnun
nema við tryggjum um leið velsæld fólks og blómlegt og sjálf-
bært efnahagslíf. Það er krefjandi úrlausnarefni en um leið eig-
um við alla möguleika á að ná góðum árangri. Á árinu sem var
að líða voru fimmtíu ár liðin síðan menn lentu á tunglinu. Ef
mannkynið gat leyst úr því viðfangsefni þá munum við líka geta
tekist á við loftslagsvána. Þar munum við hlusta á skýra leið-
sögn vísindanna sem hafa lagt staðreyndir á borðið en einnig
tillögur um aðgerðir.
Samheldni til framtíðar
Við sem hér búum ættum að vita það manna best hve miklu
veður og umhverfi skipta okkur öll. Óveðrið sem gekk yfir land-
ið í desember var okkur áminning um það hve háð við erum
náttúruöflunum og það tjón sem aldrei verður bætt er sá mann-
skaði sem varð í veðrinu norður í Sölvadal.
Vegir lokuðust og samgöngur stöðvuðust, foktjón varð veru-
legt og íbúar á Norðurlandi máttu þola umfangsmesta raf-
magnsleysi síðari tíma. Það minnti okkur líka á að líf okkar allt
er orðið mun háðara rafmagni en áður. Fjarskipti eru háð raf-
magni, fjós eru háð rafmagni og svo mætti lengi telja. Ríkis-
stjórnin ákvað því að setja á laggirnar átakshóp sem vinnur nú
hratt að því að skila tillögum til stjórnvalda um forgangsröðun
aðgerða og breytt skipulag til að tryggja betur þá innviði sem
við þurfum á að halda um land allt.
En slíkt veður minnir okkur líka á það sem við eigum hér á
Íslandi. Þann kraft sem býr í samfélaginu og birtist í fólkinu
sem tekst á við áföll og áskoranir, birtist í þeim 94 björgunar-
sveitum sem starfa um land allt, mannaðar þúsundum sjálf-
boðaliða, sem alltaf eru reiðubúnir til að standa vaktina og
leggja sjálfa sig í hættu við að bjarga fólki og veraldlegum
eigum. Þessi samfélagslegi kraftur er mestu verðmæti nokkurs
samfélags og birtist í samheldninni og samstöðunni á erfiðum
tímum. Við erum á slíkum stundum ein þjóð í einu landi, óháð
öllu öðru sem skilur okkur að. Fyrir það getum við verið þakk-
lát þegar við horfum fram á veg og höldum á vit nýrra verkefna
og nýrra áskorana.
Ég óska landsmönnum öllum gleðilegs árs.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ár framfara og áskorana
Þessi samfélagslegi kraftur er mestu verðmæti
nokkurs samfélags og birtist í samheldninni og
samstöðunni á erfiðum tímum. Við erum á
slíkum stundum ein þjóð í einu landi, óháð öllu
öðru sem skilur okkur að.