Morgunblaðið - 31.12.2019, Blaðsíða 21
STJÓRNMÁL 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2019
Traustir skulu hornsteinar
hárra sala;
í kili skal kjörviður;
bóndi er bústólpi,
bú er landstólpi,
því skal hann virður vel.
Þ
annig hljómar annað erindi kvæðis Jónasar Hall-
grímssonar, Alþing hið nýja, frá árinu 1840. Jónas
var gjarnan kallaður listaskáldið góða og á mikil-
vægan sess í menningu okkar Íslendinga. Dagur
tungunnar okkar er enda á afmælisdegi skáldsins.
Jónas á nú eins og fyrr mikið erindi til okkar núlifandi Íslend-
inga enda var hann náttúrufræðingur og náttúruunnandi.
Sveitastrákurinn úr Öxnadalnum fylgdi honum alla tíð, alla leið
til Kaupmannahafnar. Það er líka einkennandi fyrir Íslendinga
að vera umhugað um landið sitt og uppruna hvar sem þeir ala
manninn. Jónas á líka sérstakan sess í hjarta framsóknar-
manna því orðið framsókn er nýyrði skáldsins sem kom fyrst
fram í þýðingu Jónasar á kennslubók í stjörnufræði. Nokkrum
áratugum síðar var orðið tekið upp við stofnun nýs flokks,
Framsóknarflokksins, sem er elsti starfandi stjórnmálaflokkur
landsins. Saga flokksins er samofin sögu þjóðarinnar og hefur
Framsókn komið að mörgum helstu framfara- og umbóta-
málum þjóðarinnar á þeirri rúmu öld sem liðin er frá stofnun
flokksins.
Nú er liðinn rúmur áratugur frá því að bankakerfi Íslands
hrundi. Margir eru enn brenndir af því enda fólst í þessu hruni
ekki síður áfellisdómur yfir framferði íslenskra viðskiptajöfra
og að mörgu leyti máttleysi kerfisins til að vernda hagsmuni al-
mennings gagnvart háttsemi þeirra. Þessi áratugur hefur ein-
kennst af sársaukafullu uppgjöri við þennan tíma og öllu því
vantrausti og tortryggni sem hruninu fylgdi. Það tekur langan
tíma að græða þau sár og lægja öldur tortryggninnar. Sú ríkis-
stjórn sem nú er við völd var mynduð til að ná sátt í samfélag-
inu, skapa jafnvægi og vinna að mikilvægum uppbyggingar-
málum á innviðum samfélagsins. Og nú þegar kjörtímabilið er
ríflega hálfnað hefur okkur miðað ágætlega.
Fyrir sléttu ári höfðu margir miklar áhyggjur af þeirri hörðu
kjarabaráttu sem við stóðum frammi fyrir. Undirritun Lífs-
kjarasamningsins var því stórt skref í að skapa jafnvægi í sam-
félaginu. Niðurstaða samningsins var mikið framfaraskref og
öllum sem þar komu að til mikils sóma. Samningsaðilar sýndu
að þeir gerðu sér grein fyrir þeirri miklu ábyrgð sem hvíldi á
þeirra herðum. Niðurstaða samninganna var hófsöm og hlúði
fyrst og fremst að kjörum þeirra lægst launuðu og þá ekki síst
með útspili ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum. Því öll viljum
við að fólk njóti almennilegra lífskjara á landinu okkar. Það
verður einnig að taka inn í reikninginn að á Íslandi er félags-
legur hreyfanleiki mikill, jafnvel einn sá mesti í heiminum. Þar
skiptir góður stuðningur við námsmenn miklu máli og eitt
mikilvægasta mál þingsins næstu mánuðina er frumvarp
mennta- og menningarmálaráðherra um nýjan menntasjóð
námsmanna þar sem mikilvægi menntunar fyrir þjóðfélagið
allt er undirstrikað. Ég vil einnig sérstaklega nefna að skömmu
fyrir jól var samþykkt frumvarp félags- og barnamálaráðherra
um lengingu fæðingarorlofs úr níu mánuðum í tólf.
Stjórnmál eru mikilvægur þáttur í samfélagsgerð okkar. Það
er í stjórnmálunum sem leikreglur samfélagsins eru settar.
Það er í stjórnmálunum sem tónninn er sleginn og drög lögð að
betra samfélagi. Það er því mikilvægt að fólk taki þátt í stjórn-
málum og starfi stjórnmálaflokkanna. Þar er grundvöllurinn
lagður að stefnu og sérstökum áherslumálum sem eru mismun-
andi eftir flokkum. Stjórnmálin eru litrík eins og lífið sjálft þótt
margir leitist við að gera þau svarthvít. Eitt er að hafa hug-
sjónir og stefnu, annað hvernig unnið er að framgangi þeirra.
Stjórnmál Framsóknar eru stjórnmál umbóta og sátta, ekki
byltinga. Fyrir mér eiga stjórnmál að gefa fólki von, þau eiga
að sameina fólk frekar en sundra. Það er líka augljóst í mínum
huga að sundrungin er af hinu illa og drepur niður þær fram-
farir sem samtakamátturinn kallar fram.
Stærsta verkefni samtímans snýr að loftslagsmálunum.
Skiptir þá engu hvort fólk talar um hamfarahlýnun, hlýnun
jarðar, súrnun sjávar eða neyðarástand í loftslagsmálum: verk-
efni okkar allra, ekki síst stjórnmálanna, er að taka með ábyrg-
um hætti á loftslagsvandanum. Þá er verkefni stjórnmála-
manna ekki hvort taka skuli á vandanum heldur hvernig það er
gert. Þar er að mörgu að hyggja, ekki síst þarf að huga að því
að það bitni ekki á þeim sem minna mega sín. Hagsmunir þjóð-
félagsins felast í því að gæta að hagsmunum komandi kynslóða.
Við sigrumst ekki á þessari ógn með því að láta hnútasvip-
una dynja á bakinu eða með skattlagningu eina að vopni. Við
þurfum að nýta almenna viðhorfsbreytingu til að leysa verk-
efnið með hjálp vísinda og tækni. Það er verkefni einstaklinga
og atvinnulífs en stjórnmálin þurfa að varða leiðina að mark-
miðinu. Það er ljóst að markmiðinu verður ekki náð nema með
samvinnu og sátt.
Ungt fólk, í sumum tilfellum á barnsaldri, hefur leitt um-
ræðuna um loftslagsmálin. Það er mikilvægt að þetta unga fólk
komi með sína sterku rödd inn í stjórnmálaflokkana og láti til
sín taka á þeim vettvangi. Íslensk stjórnvöld hafa lagt sig eftir
því að hlusta á áhyggjuraddir unga fólksins og því er jarð-
vegurinn innan flestra íslenskra stjórnmálaflokka góður fyrir
þetta öfluga hugsjónafólk.
Loftslagsváin er ekki eini vandinn sem við stöndum frammi
fyrir. Ríkisstjórnin steig mikilvægt skref síðastliðið vor þegar
því var lýst yfir að Ísland ætlaði fyrst þjóða að banna sölu og
dreifingu matvæla sem innihalda tilgreindar sýklalyfjaónæmar
bakteríur. Vísindamenn hafa bent á að ef ekki verði brugðist
við muni fleiri deyja af völdum sýklalyfjaónæmis árið 2050 en
deyja af völdum krabbameins.
Aðra aðsteðjandi hættu benti Þorgrímur Þráinsson, lýð-
heilsufrömuður og rithöfundur, á í pistli fyrr í vetur og það er
að samkvæmt tölum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar fái
fjögur af hverjum fimm börnum ekki næga daglega hreyfingu.
Það er því ekki síður mikilvægt að við, hin fullorðnu, hvetjum
börnin okkar til að hreyfa sig til að byggja sterkari grunn fyrir
heilsu fullorðinsáranna.
Fyrir skemmstu urðum við mörg fyrir áfalli þegar fárviðri
gekk yfir norðanvert landið með skelfilegum afleiðingum. Of-
viðrið leiddi í ljós brotalamir í kerfum okkar og þá sérstaklega
hvað viðkemur raforkuöryggi. Það er verkefni næstu vikna að
rannsaka hvað fór úrskeiðis og koma með tillögur að úrbótum.
Framsókn hefur alla tíð lagt mikla áherslu á að tækifæri séu
jöfn hvar sem fólk kýs að búa á okkar stóra landi. Þar er
grundvallaratriði að samgöngu-, fjarskipta- og raforkukerfi
séu öflug um allt land. Við höfum náð undraverðum og ein-
stökum árangri á heimsvísu þegar kemur að útbreiðslu há-
hraðanets og stórsókn í samgöngumálum er hafin. Greinilegt
er að við þurfum að horfa til eflingar raforkukerfisins á sama
hátt og samhliða vinna að jöfnum raforkukostnaðar – sami
dreifikostnaður um allt land enda auðlindin í eigu þjóðarinnar
allrar.
Framsókn hefur sýnt það í störfum sínum í ríkisstjórninni að
flokkurinn hugsar um hag almennings og hefur hugrekki og
kraft til að leysa erfið verkefni. Íbúar höfuðborgarsvæðisins
munu finna fyrir því þegar ráðist verður í framkvæmd sam-
göngusáttmálans en með gerð hans var áratuga frost í sam-
skiptum ríkisins og sveitarfélaganna úr sögunni. Því eins og
saga Íslands á lýðveldistímanum kennir okkur þá er sam-
vinnan lykillinn að því að bæta samfélagið.
Ég óska landsmönnum öllum gleðilegs árs. Ég hlakka til að
vinna áfram að umbótamálum með sterkri og framsýnni ríkis-
stjórn.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður Framsóknarflokksins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samvinnan er
lykill að framförum
Stjórnmál Framsóknar eru stjórnmál umbóta
og sátta, ekki byltinga. Fyrir mér eiga stjórnmál
að gefa fólki von, þau eiga að sameina fólk
frekar en sundra.