Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.12.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.12.2019, Blaðsíða 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.12. 2019 Rauði kross Íslands hefurákveðið að efna til söfnun-arátaks vegna neyðar af völdum þurrka og skógarelda í Namibíu. Af þessu tilefni lögðu margir við hlustir. Kannski vegna þess að í ljós hefur komið að Íslendingar hafa verið að skrifa sögu sína í því landi á sambærilegan hátt og ný- lenduríki Evrópu skrásettu sína sögu með gjörðum sínum, einkum á nítjándu og tuttugustu öldinni, en einnig fyrir þann tíma og síðar, allt fram á okkar dag, um alla Afríku, víða í Asíu og Rómönsku Ameríku. Á nú að næla sér í syndaaf- lausn? Þetta voru viðbrögð ein- hverra þegar spurnir bárust af því að nokkrir einstaklingar undir for- ystu Hjálmars Árnasonar, fyrrver- andi alþingismanns, vildu rétta þessu söfnunarátaki hjálparhönd. Tilefni er svo sannarlega til þess að brennimerkt land leiti eftir friðþægingu og eru því vangavelt- ur í þessa veru engan veginn út í hött. En menn eru feimnir. Í klausu sem birtist á leiðarasíðu dagblaðs í vikunni er það sagt vera „sér- kennilegt að Namibía hafi orðið fyrir valinu. Namibía er langt frá því að vera verst statt meðal Afr- íkuríkja og fjöldi ríkja sem verr standa“. Það er mikið rétt að þar í álfu er víða örbirgð að finna, óbærilegar hitabylgjur, mann- skæða gróðurelda, sárt hungur og ágenga sjúkdóma. Þótt enginn sem til þekkir vé- fengi neyðina í Namibíu kann engu að síður að vera nokkuð til í þessu skrifi á sama hátt og til voru þjáðari þjóðir en Íslendingar árið 1973 þegar gosið varð í Heimaey og Vestmannaeyingar hröktust á brott frá heimilum sín- um. Þá misstu margir aleiguna. En þjóðin sjálf var ekki örsnauð, eins og Namibíumenn eru, og því í stakk búin að veita bágstöddum aðstoð, svara kalli um samstöðu. Og frá öðrum löndum barst líka hjálp. Hún var vel þegin. Gripdeildirnar í Namibíu, sem allir Íslendingar þekkja nú til, eru ekki einkamál nokkurra útgerð- armanna og vitorðsmanna þeirra. Í góðri trú veittu Íslendingar þró- unaraðstoð sem síðan var notuð sem leiktjöld fyrir miskunnarlaust arðrán. Rannsókn á því ráni er nú hafin og ástæða til að fylgjast vel með henni. Það er þó ekki almennings að gera upp sakir. Það eiga dóm- stólar að gera og síðan þarf að skila þýfinu aftur á heimaslóð. Fyrir Hjálmari og félögum vak- ir hins vegar að treysta á dóm- greind hjálparstofnunar um að beina hjálparfé þangað sem þess gerist þörf. Og nú segir Rauði kross Íslands okkur að með myndarlegu átaki megi gera brunna og leggja vatns- lagnir sem geri þurrkasvæði í Namibíu sjálfbær. Átakinu sé beint að svæðum sem þrjú hundr- uð þúsund manns byggi og sé í fyrstu horft til átján þúsund manna byggðar sem sé í mestri neyð. Þessar fólksfjöldatölur sam- svara annars vegar fólksfjölda Ís- lands og hins vegar Akureyrar. Þegar spurt er hvort Namibía sé nokkuð sérstök – hvort hún þurfi nokkuð á hjálp að halda um- fram önnur ríki, þá er svarið þetta: Namibía er vissulega sérstök vegna náttúruhamfara en einnig vegna þeirrar sögu sem Íslend- ingar eiga þar. Vissulega á það ekki að verða okkar eina takmark að sækjast eftir velvild í Namibíu, fremur en Færeyingar gerðu í Vestmanna- eyjagosinu, heldur er það velvildin innra með okkur sem öllu máli skiptir; velvild í garð þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á mann- gerðu kerfi sem við höfum smíðað, kerfi sem byggist á braski með auðlindir þjóðanna. Nú er þörf á skilningi og vel- vilja í garð þeirra sem svikult brask hefur leikið grátt. Og auðvitað er Namibía sérstök. Við vorum þar. Til hjálpar í Namibíu – til tilbreytingar Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’Og nú segir Rauðikross Íslands okkur aðmeð myndarlegu átakimegi gera brunna og leggja vatnslagnir sem geri þurrkasvæði í Namibíu sjálfbær. Kristinn Magnússon Ekki láta laktósaóþolið skemma jólin fyrir þér Ekki láta laktósaóþolið hafa áfhrif á þitt daglega líf. Laktase töflunar frá tetesept aðstoða við meltingu ámjólkursykri. Forðatöflurmeð virkni sem varir í 4 klukkustundir. Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is Fæst í öllum helstu Apótekum, Costco ogHeimkaup ÞÚ ÁTT SKILIÐ ÞAÐ BESTA www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi LauraStar Lift Létt og meðfærilegt Straujar – gufar – hreinsar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.