Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.12.2019, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.12. 2019
Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Traust og fagleg
starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum
fyrirtækjum í áraraðir
08.00 Strumparnir
08.25 Blíða og Blær
08.45 Stóri og Litli
08.55 Skoppa og Skrítla á
póstkorti um Ísland
09.05 Mæja býfluga
09.15 Dóra og vinir
09.40 Latibær
10.05 Nilli Hólmgeirsson
10.15 Lukku láki
10.40 Ævintýri Tinna
11.05 Ninja-skjaldbökurnar
11.30 Friends
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.00 Nágrannar
13.20 Nágrannar
13.45 Friends
14.10 Jamie Oliver’s Christ-
mas Cookbook
15.00 The Great Christmas
Light Fight
15.45 Aðventan með Völu
Matt
16.15 Framkoma
16.45 Leitin að upprunanum
17.40 60 Minutes
18.28 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Sportpakkinn
19.10 Jólaþáttur Gumma og
Sóla
20.35 Aðventumolar Árna í
Árdal
20.45 Just Getting Started
22.20 Shameless
23.15 Watchmen
00.10 Silent Witness
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
18.00 Jólakveðjur
Endurt. allan sólarhr.
15.30 Charles Stanley
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Omega
21.00 Tónlist
22.30 Gegnumbrot
23.30 Tónlist
20.00 Mannamál (e)
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
21.00 Stóru málin (e)
Endurt. allan sólarhr.
12.00 Með Loga
13.00 Lambið og miðin
13.30 Kokkaflakk
14.05 The Voice US
14.50 The Voice US
16.20 Everybody Loves
Raymond
16.45 The King of Queens
17.05 How I Met Your Mother
17.30 Happy Together (2018)
17.50 Solsidan
18.15 Superstore
18.35 American Housewife
19.00 Four Weddings and a
Funeral
20.00 Jólagestir Björgvins
2019 BEINT
22.30 Catch Me If You Can
06.45 Morgunbæn og orð
dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Vídal-
ínskirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Útvarpsleikhúsið: Litlu
jólin.
15.00 Skyndibitinn.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Jólatónleikar Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Ymur 2.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Jólakveðjur.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Jólakveðjur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Begga og Fress
07.29 Lalli
07.36 Tulipop
07.39 Sara og Önd
07.46 Minnsti maður í heimi
07.47 Hæ Sámur
07.54 Hrúturinn Hreinn
08.01 Letibjörn og læmingj-
arnir
08.08 Stuðboltarnir
08.19 Alvin og íkornarnir
08.30 Ronja ræningjadóttir
08.55 Disneystundin
08.56 Dóta læknir
09.18 Sígildar teiknimyndir
09.25 Sögur úr Andabæ –
Skuggastríðið seinni
hluti : Dagur andanna!
09.45 Krakkafréttir vikunnar
10.05 Pabbar í náttúrunni
11.00 Jólavaka RÚV 2014
13.25 Lestarklefinn
14.20 Menningin – samantekt
14.50 Jólaóratoría J.S. Bachs
– Ballett eftir John
Neumeier
17.35 Jólatónar í Efstaleiti
17.45 Táknmálsfréttir
17.53 KrakkaRÚV
17.54 Jólasveinarnir
18.01 Stundin okkar
18.25 Jóladagatalið: Jóla-
kóngurinn
18.50 Landakort
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Jólaveröld sem var
20.45 Verksummerki
21.45 Maigret – Líkið
23.20 Vinabönd
14 til 16 Tónlistinn Topp40
Eini opinberi vinsældalisti Íslands er sendur út á
K100 alla sunnudaga. Siggi Gunnars telur niður 40
vinsælustu lög landsins.
16 til 19 Pétur Guðjóns
Pétur Guðjónsson hækkar í gleðinni og fylgir hlust-
endum K100 síðustu metrana í fríi helgarinnar síð-
degis á sunnudögum. Góð tónlist og létt spjall á
K100.
Star wars: Rise of
skywalker dæmd rotin
Rotten Tomatoes greindi frá því á dögunum að Star
Wars: The Rise of Skywalker væri ekki góð kvikmynd. Í
umfjölluninni segir að aðeins 58% gagnrýnenda finn-
ist eitthvað varið í myndina. Hún fær því skorið „rot-
ten“ sem þýðir að hún fær verstu dóma sem mynd í
þríleiknum hefur fengið.
Nú bý ég ekki að sérfræði-þekkingu á jólalögum oghef þaðan af síður lagst í
skipulagðar rannsóknir en mér segir
eigi að síður svo hugur að obbi þeirr-
ar ágætu tónlistar feli í sér fallegan
boðskap um fjölskylduhygli og frið
og almenna jákvæðni í garð lifenda
og dauðra.
En ógæfufólk þarf líka að halda
jólin og hvers á það eiginlega að
gjalda þegar kemur að hátíðlegri
tónsköpun?
Auðvitað má segja að Shane gamli
Patrick Lysaght MacGowan úr
pönkbandinu Pogues hafi neglt þá
hlið mála í eitt skipti fyrir öll í Fairy-
tale of New York árið 1987, tannlaus
og fínn, enda þótt ennþá sé deilt um
hvort það feikivinsæla lag sé yfir höf-
uð jólalag eða bara saga sem gerist
um jól. Þar er sem kunnugt er hermt
af umrenningum og fíklum á götum
stórborgarinnar sem ausa svívið-
ingum hver yfir annan. Ekki dró það
úr dramatíkinni þegar söngkonan,
sem deilir dúettnum með MacGow-
an, Kirsty MacColl, fórst með voveif-
legum hætti, þegar hraðbátur sigldi
yfir hana, laust fyrir jólin árið 2000.
Áður náði hún þó að bjarga syni sín-
um frá bráðum bana.
Ísmeygileg biksvört kímni
Það lag þekkja allir en færri hafa lík-
lega heyrt um jólalag annars kelt-
nesks pönkbands, Dropkick Murph-
ys, sem kom út fyrir jólin 2012. The
Season’s Upon Us kallast það og lýs-
ir af ísmeygilegri biksvartri kímni
jólahaldi afar óvenjulegrar fjöl-
skyldu sem ljóðmælandi á aðild að.
„Haldirðu að þín fjölskylda sé gal-
in, sjáðu þá mína,“ segir hann og
syngur á víxl hástöfum um hrekki og
limlestingar. Systur hans eru upp til
hópa mislukkaðar og óskar okkar
maður þess að hann ætti engar slík-
ar. Ekki eru eiginmenn þeirra skárri,
viðrini allir sem einn, eins synir
þeirra. Þannig leika tveir barnungir
frændur ljóðmælanda lausum hala í
húsinu um jólin, spræna í jólasokk-
ana, færa fólki saursýni í jólagjöf og
mála í framan eldri mann, sem liggur
áfengisdauður þar álengdar.
Ekki er sérstaklega gerð grein
fyrir þeim ágæta manni; raunar
streymir fólk inn á heimilið, af öllum
stærðum og gerðum, og menn hafa
engan hemil á gleði sinni – og
drykkju. Og bæta í frekar en hitt
þegar bæði lögreglan og sóknar-
presturinn slást í hópinn.
Úti í horni drekkur faðir söguhetj-
unnar frá sér ráð og rænu ásamt
heimilishundinum undir snjáðri
veggmynd af Kennedy forseta.
„Svona eru jólin í minni sveit,“ syng-
ur okkar maður og þakkar fyrir að
hin helga hátíðin gangi aðeins einu
sinni á ári í garð. „Mér væri betur
borgið einmana og þunglyndum úti í
bæ.“ orri@mbl.is
Frændurnir eiturhressu gera jólasokkum heimilisins skil.
SUNGIÐ UM JÓLAHALD ÓLÁNSMANNA
Haldirðu að þín
fjölskylda sé gal-
in, sjáðu þá mína
Smáskífualbúmið nær andanum í The Season’s Upon Us ágætlega.