Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.12.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.12.2019, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.12. 2019 LESBÓK Íslenskt fóður - íslenskar afurðir. Við höfum val og við eigum samleið. Val um að standa saman um innlenda framleiðslu frá fóðri til fæðu. Vinnum saman - veljum íslenskt fóður. fodur.is POPP Írska söngkonan Sinéad O’Connor fær glimrandi dóma í dagblaðinu The Guardian fyrir fyrstu tónleika sína í Bretlandi í fjögur ár en þeir fóru fram í Shep- herd’s Bush Empire í Lundúnum fyrir skemmstu. „Þeg- ar hún er í formi, eins og í kvöld, þá geislar af henni. Því brotnara sem lagið er þeim mun betur nærist hún á því,“ segir gagnrýnandi blaðsins, Caroline Sullivan. Ný plata er á næstu grösum hjá söngkonunni sem ætlar í heims- túr í framhaldinu en athygli vakti að hún tók sinn vin- sælasta smell, Nothing Compares 2 U, á tónleikunum en O’Connor, eða Shuhada Sadaqat, eins og hún kallar sig eftir að hún gekk íslam á hönd, hét því fyrir nokkrum árum að syngja lagið aldrei framar fyrir þær sakir að hún tengdi ekki lengur við það tilfinningalega. Sinéad sögð í banastuði Sinéad O’Connor árið 2013. AFP HEILSA „Við skulum sjá til hvernig Vince kemur til með að syngja og líta út þegar túr- inn byrjar,“ sagði Allen Kovac, umboðs- maður glysmálmbandsins Mötley Crüe, við Fox Business á dögunum, spurður um stöð- una á Vince Neil söngvara, en svo sem fram hefur komið snýr bandið aftur á svið í júlí nk. Einhverjir hafa haft efasemdir um giggburði Neils, sem þykir hafa bætt talsvert á sig, auk þess sem dofnað hafi yfir röddinni. Kovac staðfesti á hinn bóginn að bandingjar ynnu nú á fullu með einkaþjálfurum og næring- arfræðingum til að verða í sem allra bestu formi þegar á hólminn kemur. Neil tekur sig í gegn fyrir túrinn Mötley Crüe. Vince Neil er annar frá hægri. AFP Ruth Wilson kappklædd og sátt. Vildi ekki koma nakin fram NEKT Ýmsir urðu undrandi þegar breska leikkonan Ruth Wilson sagði skilið við bandarísku drama- þættina The Affair, sem sýndir hafa verið í Sjónvarpi Símans, en bæði hafa þeir notið vinsælda og hún unnið til Golden Globe-verðlauna fyrir frammistöðu sína. Gerði það menn enn forvitnari þegar Wilson kvaðst ekki mega tala um það hvers vegna hún hvarf frá borði. Nú full- yrðir kvikmyndatímaritið Holly- wood Reporter á hinn bóginn að Wilson hafi hætt vegna þrýstings um að hún léki í nektaratriðum. Kveðst tímaritið hafa þetta eftir áreiðanlegum heimildum en annar höfunda þáttanna, Sarah Treem, mun hafa gengið harðast fram í þessum efnum. Hann stóð íbygginn við borðiðhjá mér. „Heyrðu,“ byrjaðihann með sinni alkunnu og óræðu hægð, „ertu ekki til í að skrifa stuttan dóm um þessa plötu?“ Ég tók við gripnum og starði á umslagið eins og naut á nývirki en það sýndi veinandi alblóðugan víga- mann með öxina hátt á lofti. Skálm- öld, las ég út úr skrautskriftinni. Baldur. Hvað er þetta eiginlega? „Íslenskur víkingamálmur,“ svar- aði hann og hvergi örlaði fyrir svip- brigðum. Íslenskur víkingamálmur!!? „Já, þetta er Bibbi úr Ljótu hálf- vitunum, Baldur bróðir hans og fleiri fínir músíkantar,“ hélt hann áfram í veikri von um að sannfæra mig. Og það tókst. Manni hafa svo sem boðist galnari verkefni hér á blaðinu um dagana. Eða hvað? Þetta var fyrir jólin 2010 en ég man eftir þessu samtali okkar Arn- ars Eggerts Thoroddsens eins og það hefði átt sér stað í gær. Þetta voru mín fyrstu kynni af Skálmöld. Kreppan var í algleymingi og var þetta ekki akkúrat það sem okkur, vesæla þjóð, vantaði í volæðinu, ís- lenskur víkingamálmur? Ekki að grínast Og stutta svarið er jú. Ég keyrði Bald- ur í gang í bílnum í Hádegismóum og þegar ég renndi í hlaðið heima á Kjal- arnesi var ég skálmaður. Fyrir lífstíð. Ballið byrjaði á forvitnilegum rímna- söng, Heima, en svo rak hver málm- slagarinn annan, Árás, Sorg, Kvaðn- ing, Hefnd og hvað þau öll heita. Ég man eftir að hafa skrúfað þetta í botn í Kollafirðinum og hugsað með mér: Þessir menn eru ekki að grínast. Frumlegir? Já og nei. Skálmöld er auðvitað með djúpar rætur í málm- verskum hljóðheimi níunda áratug- arins og meitlaður kveðskapurinn undir sterkum áhrifum Íslendinga- sagna og norrænnar goðafræði. En þeir gera þetta bara af svo miklum heilindum, metnaði og ómengaðri lífsgleði að erfitt er að hrífast ekki með. Auðvitað tala ég bara fyrir sjálfan mig en þegar fram líða stundir verður Skálmöld pottþétt eitt af því sem skilgreina mun ára- tuginn sem skilaði okkur upp úr kreppunni; plöturnar fimm, allir tón- leikarnir, þar sem reynt hefur verið á þanþolið, Rokkjötnar, með Sinfó, með trúðum og svo ófáir löður- sveittir óblandaðir þungarokks- tónleikar, þar sem lífið birtist manni í sinni heiðarlegustu og fegurstu mynd. Hvíla lúin bein Það er einmitt með þeim viðeigandi hætti sem Skálmöld kveður okkur í bili yfir þrjú kvöld í Gamla bíói. Eftir þeysireið í áratug ætla menn að hvíla lúin bein og safna kröftum fyrir komandi átök. Upp með skálmar! Stemningin var ósvikin á gólfinu og þakklætið sveif yfir vötnum. Mathias „Vreth“ Lillmåns, söngvari Finntroll, var hinn líflegasti á sviðinu. Af skálmi Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.