Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.12.2019, Blaðsíða 19
Hárgreiðsla
með skrauti
Fyrirsæta: Hildur
Hilmarsdóttir
Hydrate.Me Wash og
Hydrate.Me Rinse notað til
að þvo og næra hárið. Smo-
oth.Again var sett í hand-
klæðaþurrt hárið og það
blásið og sléttað með Glam
Palm-sléttujárninu. Shim-
mer.Shine var svo úðað yfir
hárið til að fá aukinn glans og
sléttara yfirbragð. Katrín tók
hárið í tagl og vafði hárlokk
utan um. Næst skipti hún
taglinu í tvennt, vafði lokk-
unum saman hringlaga og
festi saman. Hárlokki vafið
yfir festinguna svo hún sjáist
ekki. Katrín límdi perlur á vír
og notaði sem skraut í hárið.
um jólin fer lítið fyrir veiðinni um þessar
mundir.
En við sjáum hvað gerist á næstu árum, það
er ofboðslega gaman að ganga á rjúpu.“
Sagan um Ellu Fitzgerald og jólin
Þegar kemur að jólahefðum segir Vala að tón-
list með Ellu Fitzgerald skipti miklu máli á
þessum tíma.
„Ég eyddi löngum tíma í það sem barn og
unglingur að fela eða rispa rækilega Ellu Fitz-
gerald-jóladiskinn hennar mömmu sem hún
spilaði alltaf á aðfangadag. Okkur systrunum
þótti þetta alveg ferleg hefð hjá henni. Við
vissum meira að segja klukkan hvað á að-
fangadag mamma færi að spila diskinn. Ég
held að hún hafi átt stafla af þessum diskum,
því sama hvernig við földum þá var Fitzgerald
kom á fóninn á réttum tíma.
Í dag er þessi tónlist orðin fastur liður í
mínu jólahaldi líka. Eins er ég með fastar
hefðir eins og að setja pakka undir tréð í
Kringlunni með dóttur minni. Við höfum einn-
ig farið með pakka í jólahús í Lettlandi þar
sem krakkar hafa sent óskalista í jólahúsið og
maður getur þá keypt það sem er á honum og
pakkað inn svo þau fá oft það sem þau langar
í, það finnst mér ótrúlega fallegt og dýr-
mætt.“
Fullkomnu jólin sem aldrei komu
Vala er mikið jólabarn og skreytir vanalega
mikið fyrir jólin.
„Ég reyni svo oft að klára ýmislegt heima
sem ég hef ætlað að klára í einhvern tíma.
Ætli það tengist ekki líka því að byrja nýtt ár
með hreint borð. Svo finnst mér gaman að
dunda mér við að hugsa um hvernig ég vil
hafa matarborðið á aðfangadag og búa til
skreytingar. Annars er ég búin að læra af
reynslunni að jólin koma hvort sem maður er
undirbúinn eða ekki. Við vorum í fyrsta skipti
með alla heima hjá okkur síðustu jól, en þar
áður vorum við bara þrjú. Við ætluðum svo-
leiðis að taka þetta með trompi og flug-
eldasýningu – sem varð vægast sagt ekki
raunin. Við bentum tengdamömmu á að þau
yrðu að vera komin vel fyrir sex því jólin yrðu
sko haldin tímanlega og hátíðlega klukkan
sex! Þegar þau mættu vel tímanlega klukkan
fimm vorum við öll fjögur í náttfötunum –
Gabríel gleymdi sósunni fyrir hamborgar-
hrygginn og ég var í símanum að reyna að fá
besta vin hans til að deila vegan-jólahnetu-
steikinni sinni með mágkonu minni, því ég
hafði gleymt að kaupa hana! Þetta var auðvit-
að allt annað en lagt var upp með en við náð-
um öll samt einhvern veginn að hlæja að
ástandinu og áttum yndislegan tíma saman.
Það var margmennt í húsinu og foreldrar
mínir bættust við um kvöldið og þó að svo
margt færi úrskeiðis eru þetta örugglega jól-
in sem mér á eftir að þykja hvað vænst um.“
Valgerður lýsir jólunum þannig að fjöl-
skyldan byrji á því að lesa texta úr Biblí-
unni.
„Svo er möndlugrauturinn borðaður og þá
kemur vanalega fljótt í ljós hver hreppir
möndlugjöfina. Eftir það taka við langar
rökræður um það hver hefur fengið hana oft-
ast. Það er svo humarsúpa í forrétt, hamborg-
arhryggur í aðalrétt og svo skiptum við um
eftirrétt árlega. Mér finnst svolítið gaman að
hugsa um eftirréttinn yfir árið ef ég dett nið-
ur á skemmtilegan eftirrétt og velja svo fyrir
aðfangadag af þeim sem ég hef smakkað.
Eins vanaföst og ég er og vil vera um jólin
finnst mér þetta ágætt til að breyta aðeins
til.“
Hvernig og hvar kaupirðu jólagjafir?
„Ég var ótrúlega heppin í ár með gjafirnar
og rakst á margar á ótrúlegasta verði í ýmsum
búðum. Ég var svolítið tímanlega með þær
núna og sankaði að mér gjöfum þegar ég fann
eitthvað sem minnti mig á viðkomandi. Mér
finnst líka búðareigendur heima búnir að vera
mjög duglegir að vera með alls konar tilboð
eða markaði. Sem dæmi var ég mjög ánægð
með Mathildu-markaðinn og þjónustuna þar,
sem var alveg yndisleg. Að fá góða og vin-
gjarnlega þjónustu í dag er gulls ígildi, það fær
maður heldur ekki á netinu! Mér finnst
minnka jólastressið að klára pakkana
snemma.“
Að kasta af sér skónum og
fara í eitthvað þægilegt
Áttu gott ráð fyrir þær konur sem vilja vera
vel tilhafðar um jólin?
„Það er til fatnaður sem er fallegur og ekki
óþægilegt að klæðast. Svo mæli ég með því að
fara úr hælaskónum eftir matinn, skipta um
föt og fara í eitthvað þægilegra þegar líður á
kvöldið. Við klæðum okkur upp á fyrir okkur.
Ef ég ætti að deila einu góðu ráði væri það að
hafa sig til fyrr um daginn, jafnvel í hádeginu.
Þá er hægt að skipta um föt og aðeins fríska
sig til fyrir kvöldmatinn,“ segir Valgerður og
ítrekar að þegar mömmunni líði vel eigi hún
meira að gefa.
Er eitthvað sem þú gerir um jólin sem kem-
ur fólki á óvart?
„Ég set oft skóinn út í glugga og horfi á
When Grinch stole Christmas á aðfangadags-
morgun.“
Það sem Valgerður reynir að forðast að
gera um jólin er að leyfa stressinu að
skemma þau.
„Jólin eru yndislegur tími og þótt allt fari
úrskeiðis skiptir það engu máli svo fram-
arlega sem maður er með fólkinu sem maður
elskar.“
’ Það er auðvitað gamanað finna sér jólakjól svojólakötturinn nái manni ekki.Ætli það sé ekki hugmynd
sem er innprentuð í mann
ennþá frá barnæsku.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
22.12. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19