Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.12.2019, Blaðsíða 29
Ég er þarna að kvöldi fimmtu-
dags. Tvær sveitir hita upp; ég
sleppi Blóðmörnum enda er hann
alla jafna betri á þorranum en að-
ventunni, en næ Finntroll, aldavin-
um Skálmaldar, sem höggva þannig
lagað séð í sama knérunn. Kem
ferskur að þeirri upplifun og líst alls
ekki illa á. Getur finnskur þjóðlaga-
pönkmálmur geigað? Tröllin eru
taktföst á sviðinu og heildaráferð
sveitarinnar sannfærandi. Veit að
vísu ekki með þessi álfaeyru.
Soga til sín salinn
Skálmeldingar birtast upp úr klukk-
an tíu og eru í sínu allra besta formi.
Keyra prógrammið með látum í
gang og soga salinn til sín. Skálmöld
spilar ekki fyrir gesti, hún spilar
með þeim. Vont er að átta sig á því
hvar sexmenningunum sleppir og
við tökum við, málmþyrstur pöpull-
inn. Vart má til dæmis á milli sjá
hvort Bibbi spilar kvöldlangt meira
á bassann eða lýðinn. Í miðjum klíð-
um býr hann með markvissum bend-
ingum til hít í miðjum salnum, eða
pytt, eins og það heitir á málmmáli
(hvað eru mörg emm í því?). Hít þar
sem allt má, eins og í stríði. Þar fær-
ist hratt og örugglega fjör í leikinn
og Bibbi glottir í kampinn. Það vek-
ur kátínu viðstaddra að hann skuli
plokka bassann berfættur; kallast
það ekki að láta fætur standa fram
úr skálmum? Látið ekki svona!
Fimmeyringurinn er aldrei gjald-
gengari mynt en einmitt á þessum
árstíma. Það eru að koma jól.
Hver hefur sinn sjarma
Nýtt efni rennur ljúflega saman við
gamalt og lög af Sorgum, plötunni
sem kom út í fyrra, gera sig vel.
Raunar hefur hver plata haft sinn
sjarma og erfitt að gera upp á milli
þeirra. Baldur var hvellurinn, Börn
Loka aðgengilegust, drunginn mest-
ur á Með vættum, Vögguvísur
Yggdrasils tápmest og Sorgir þrosk-
uð og beitt. En fyrst þið stillið mér
upp við vegg þá segi ég: Með vætt-
um. Það er einhver dýptarauki þar.
Skyndilega titrar síminn í vas-
anum. Það er djassgeggjarinn Ómar
Friðriksson, kollegi minn á blaðinu,
að biðja um fóður fyrir texta með
forsíðumynd föstudagsins. Á svona
kvöldi eru allir þungarokkarar.
Og þá sem trúa því enn að málm-
hausar séu upp til hópa ekki frið-
elskandi og gjafmilt fólk get ég upp-
lýst um að kona sem ég hef aldrei
áður séð á ævinni splæsir á mig app-
elsíni. Bara sísona. Að vísu ekki al-
veg af handahófi, hún er vinkona
sonar míns. En svona er andinn há-
tíðlegur í málmmessum þessa lands.
Þúsund þakkir
Skálmeldingar gefa sig alla í verk-
efnið enda fæddir til að standa á
sviði og maður hefur á tilfinningunni
að þeir nálgist hvert gigg eins og það
sé þeirra síðasta. Nú þegar þeir
leggjast í hlé um stund er Björgvin
söngvari uppfullur af „þúsund þökk-
um“ (gott ef þær enduðu ekki í millj-
ón!) enda veit hann sem er að án
okkar, dauðlegra manna í salnum,
væri tómahljóð í endurvarpinu. Og
hann meinar hvert orð, eins og
Skálmöld meinar hverjar nótu.
Eftir uppklapp og -stapp endar
veislan, eins og lög gera ráð fyrir, á
Kvaðningu og gamla óperubíóhúsið
skíðlogar, eins og bálköstur á Sturl-
ungaöld. Svo streymum við sátt og
glöð út í vetrarkuldann.
Kærar þakkir, Skálmöld, fyrir
þennan eftirminnilega áratug, þann
fyrsta af mörgum. Við sjáumst í
næsta stríði!
Fóstbræðurnir Björgvin
Sigurðsson og Snæbjörn
Ragnarsson í ham í Gamla
bíói á fimmtudagskvöldið.
Morgunblaðið/Eggert
22.12. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Gæðaskór
undir jólatréð
5.995 kr.
Stærðir 18-24
4 Litir
Inniskórnir frá Biomecanics eru
með stuðning við hælinn sem bætir
jafnvægi og eykur stöðugleika.
Börnin komast auðveldar
áfram og af meira öryggi
þökk sé sveigjanlegum
sóla og sérstyrktri tá.
ROKK „Ég vil ekki ljóstra of miklu upp
vegna þess að við eigum enn þá langt í
land en við erum klárlega á rokkboms-
unum. Það er dimma og drungi yfir
þessu,“ segir Amy Lee, söngkona Eva-
nescence, í samtali við tónlistar-
tímaritið Billboard, en rokkbandið
vinsæla vinnur nú að sinni fyrstu
plötu með nýju efni frá árinu 2011.
„Við erum komin með dágóðan slatta
af lögum og ákveðin stemning og
þema eru að verða til. Ég er mjög
spennt yfir því hvert við stefnum,“
bætir hún við.
Amy Lee, söngkona
Evanescence. AFP
BÓKSALA 11.-17. DESEMBER
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Tregasteinn Arnaldur Indriðason
2 Um tímann og vatnið Andri Snær Magnason
3 Innflytjandinn Ólafur Jóhann Ólafsson
4 Þinn eigin tölvuleikur Ævar Þór Benediktsson
5 Hvítidauði Ragnar Jónasson
6 Þögn Yrsa Sigurðardóttir
7 Aðferðir til að lifa af Guðrún Eva Mínervudóttir
8
Orri óstöðvandi
– hefnd glæponanna
Bjarni Fritzson
9
Vigdís – bókin um fyrsta
konuforsetann
Rán Flygenring
10 Tilfinningabyltingin Auður Jónsdóttir
1 Þinn eigin tölvuleikur Ævar Þór Benediktsson
2
Orri óstöðvandi
– hefnd glæponanna
Bjarni Fritzson
3
Vigdís – bókin um fyrsta
konuforsetann
Rán Flygenring
4 Draumaþjófurinn Gunnar Helgason
5 Leikskólalögin okkar Jón Ólafsson og fleiri
6 Slæmur pabbi David Walliams
7 Dagbók Kidda klaufa Jeff Kinney
8
Kjarval – málarinn sem
fór sínar eigin leiðir
Margrét Tryggvadóttir
9 Langelstur að eilífu Bergrún Íris Sævarsdóttir
10 Kennarinn sem hvarf Bergrún Íris Sævarsdóttir
Allar bækur
Barnabækur
Þessa dagana er ég að lesa próf-
örk að Sögu Félags verslunar- og
skrifstofufólks á Akureyri og ná-
grenni, sem Jón Þ. Þór skrifar.
Þetta er vandað rit sem segir
mikla sögu en ætlunin er að það
komi út næsta haust. Ég hygg að
þetta sé 147. bókin sem ég próf-
arkales um dagana. Sá lestur er
mjög frábrugðinn hefðbundnum
bóklestri því prófarkalesarinn þarf
að stauta sig í gegnum sérhvert
orð, leita að innsláttar- og staf-
setningarvillum og gæta fyllsta
samræmis í hvívetna. Ef honum
yfirsést, rata villurnar alla leið til
lesandans – sem er ekki æskilegt!
Á náttborðinu
hvíla ávallt nokkrar
bækur og það fer
eftir hugarfari og
orkustigi hver
þeirra verður fyrir
valinu. Ein þeirra er
eigin bók, Limrur
fyrir land og þjóð, sem kom út
fyrr á þessu ári. Hana kann ég að
vísu utan að en finnst gott að hafa
hana nærri ... Þar er líka nýút-
komið limrusafn, Bestu limr-
urnar, sem bragfræðijöfurinn
Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá
Vaðbrekku tók saman. Ég mæli
hiklaust með báðum! Þarna eru
fleiri ljóðabækur, m.a. eftir Jó-
hannes úr Kötlum, Þórarin Eld-
járn og Jónas Svafár.
Ég las nýverið bókina Tom Jon-
es: Over the top and back – The
Autobiography sem hefur að
geyma ævisögu stórsöngvarans.
Ég hef verið einlægur aðdáandi frá
barnsaldri, og tróð meira að segja
upp í útvíðum, hvítum terlín-
buxum og svartri blúnduskyrtu í
Tónabæ í gamla daga, 14 ára gam-
all, og söng lögin hans og annars
meistara, Elvis Presley. Sá kappi
kemur líka mikið við sögu í þess-
ari einlægu og vel skrifuðu ævi-
sögu.
Ég las á dögunum bókina Dead
heat eftir feðgana
Dick og Felix Franc-
is. Dick Francis, sem
nú er fallinn frá, hef-
ur mjög lengi verið
minn uppáhalds
spennusagnahöf-
undur enda var
hann kallaður „The
Grand Master of Crime Fiction“ í
Bretlandi. Síðustu bækurnar skrif-
aði hann í samvinnu við son sinn,
Felix. Einhverra hluta vegna höf-
um við Íslendingar ekki metið
gamla meistarann
að verðleikum en
mér finnst hann frá-
bær.
Ég vil að lokum
nefna bók sem allir
ættu að eiga. Hún
heitir Taktu til í lífi
þínu og ber undirtitilinn: „Listin
að grisja og endurskipuleggja með
japönsku Kon-Mari-aðferðinni.“
Höfundurinn, Marie Kondo, hefur
gert vinsæla sjónvarpsþætti á Net-
flix og hugmyndafræði hennar er
heillandi. Við hjónin höfum þegar
grisjað duglega í geymslunni, fata-
skápunum og víðar. Við höfum
einfaldað líf okkar til muna – með
boðskap Marie að leiðarljósi – og
erum hvergi nærri hætt!
BRAGI V. BERGMANN ER AÐ LESA
Limrubækur, tiltekt
og Tom Jones
Bragi V. Berg-
mann er fram-
kvæmdastjóri
Fremri – al-
mannatengsla.
Dimma og drungi yfir þessu