Fréttablaðið - 05.12.2002, Síða 6

Fréttablaðið - 05.12.2002, Síða 6
6 5. desember 2002 FIMMTUDAGUR SJÁVARÚTVEGUR VEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 30 1. 2. 3. Hvað heitir bæjarstjórinn í Seltjarnarnesbæ? Hvaða leikhúsmaður er höfuð- paur Egg-leikhússins? Whitney Houston er að fara að gefa út nýja plötu. Hvað hét hennar fyrsti smellur? LEIKSKÓLAR „Ég hef hitt fjöldann allan af foreldrum og þetta mál er rætt hvar sem tveir eða fleiri koma saman þessa dagana. Flest- ir þeir sem ég hef rætt við hafa verið sammála um að þetta sé skref aftur á bak og mjög margir eru reiðir,“ segir Guðrún Sævarsdóttir eðlisfræðingur, sem á tvö börn á leikskóla. Guðrún bendir á að ekki búi allir við það að geta tek- ið sér frí á þeim tíma sem leik- skólar loki. Einstæðar mæður séu þar verst settar. „Á Íslandi er slysatíðni mjög há hjá börnum og það hefur tíðkast í gegnum árin að börn passi börn. Það er ekki hægt að ætlast til að unglingsstúlkur geti brúað það bil sem kemur til með að myndast þarna, sama hve ábyrgar og góðar þær eru.“ Guðrúnu telur viðmið- un við nágrannasveitarfé- lögin ekki lýsa miklum metnaði til að gera vel. „Markmiðið ætti að vera að gera betur en sá sem þú miðar þig við.“ ■ Listasafn Reykjavíkur: Bænakalli ekki hætt MIÐBÆRINN Yfirstjórn Listasafns Reykjavíkur í Tryggvagötu hefur ákveðið að hverfa ekki frá flutn- ingi á islömsku bænakalli sem ómað hefur á tveggja tíma fresti innan húss sem utan í tengslum við sýningu á arabískri nútíma- list sem þar er nú sýnd. Að und- anförnu hefur starfsfólk safnsins orðið fyrir aðkasti, skömmum og svívirðingum vegfarenda og starfsfólks í fyrirtækjum í ná- grenninu sem sættir sig ekki við bænakall múslimanna, sem er leikið af diski sem hluti af arab- ísku sýningunni. Hafa mótmælin verið kröftug og skotið starfs- fólki Listasafnsins skelk í bringu. Það ætlar þó ekki að gefa sig. ■ AKUREYRARKIRKJA Bænakall múslima kallaðist á við klukkur kirkjunnar í sumar og enginn hreyfði and- mælum. Akureyri: Bærileg sátt um bænakallið LISTSÝNING „Við settum þessa arabasýningu fyrst upp hér á Ak- ureyri og í tengslum við hana ómaði bænakall múslima yfir all- an bæinn. Við fengum engar kvartanir líkt og dunið hafa á starfsfólki Listasafns Reykjavík- ur. Norðlendingar eru samkvæmt þessu umburðarlyndari gagnvart öðrum trúarbrögðum en Reykvík- ingar. Það er ekki bara veðrið sem er betra hjá okkur,“ sagði Hannes Sigurðsson, forstöðumaður Lista- safnsins á Akureyri. Bænakall múslima ómaði á Ak- ureyri frá 27. júlí til 8. september og mæltist vel fyrir. Það hljómaði á tveggja klukkustunda fresti frá 10 til 18, þrjár mínútur í senn og kallaðist á við klukkur Akureyrar- kirkju. „Ég fór til Amman og fékk þessa hugmynd þar. Ég sá að þetta gæti virkað vel sem kynning og ekki síður myndi það leiða hugann að þessum heimi. Enda kom á dag- inn að mjög margir höfðu sam- band og sögðu að þetta hefði opn- að augu þeirra fyrir trúabrögðum þessa heims, það er vel,“ sagði Hannes. ■FASTEIGNIR Fasteignasalar verða að skoða sinn gang og endur- meta stöðu sína og vinnulag, að sögn Sigurðar Helga Guðjóns- sonar, formanns Húseigenda- félagsins. Þann 21. nóvember dæmdi Hæstiréttur seljendur íbúðar í Safamýri og fasteignasöluna Húsvang til að greiða kaupend- um rúmlega eina milljón króna í skaðabætur vegna gólfhalla sem talinn var galli. Seljendurnir og fasteignasalan höfðu áður verið sýknuð í Héraðsdómi Reykjavík- ur. Sigurður segir þennan dóm marka þáttaskil og að þau sjón- armið sem hann byggi á verði örugglega skoðuð í kjölinn sam- fara endurskoðun á löggjöfinni um fasteignasala, sem er að hefjast. Eins hljóti tryggingarfé- lögin, sem fasteignasalar hafi sínar ábyrgðartryggingar hjá, að velta þessari auknu ábyrgð og áhættu fyrir sér. Sigurður Helgi segir að sam- kvæmt dómnum sé fasteignasala ekki stætt á því að byggja á upp- lýsingum frá seljanda eða öðrum um ástand eignar. Fasteignasali skuli fara sjálfur á stúfana og framkvæma sjálfstæða skoðun og rannsókn. „Söluyfirlit á að vera ná- kvæmt, vandað og byggt á sjálf- stæðri rannsókn fasteignasala,“ segir Sigurður Helgi. „Ef hann framkvæmir ekki slíka skoðun bakar hann sér ábyrgð gagnvart kaupanda á þeim göllum sem slík rannsókn hefði leitt í ljós.“ ■ DÓMSTÓLAR Málafjöldi dómstólanna hefur stóraukist á síðustu árum. Í ár stefnir í 17 milljóna króna tap dóm- stólanna. Sigurður Tómas Magnús- son, formaður dómstólaráðs og dóm- ari í Héraðsdómi Reykjavíkur, segir að dómurum blöskri þetta því sam- fara gríðarlegri fjölgun mála séu gerðar kröfur um meiri afköst. „Þetta er á mjög viðkvæmu stigi núna,“ segir Sigurður Tómas. „Í árs- lok 2001 þá var 48 milljóna króna uppsafnaður halli sem við fáum bættan í fjáraukalögum núna, en á þessu ári stefnir í 17 milljóna króna halla. Við erum að biðja um viðræð- ur við dómsmálaráðuneytið um lausn á þessu máli. Það er farið að hægja á afgreiðslu erfiðustu mál- anna en ekki þó þannig að það horfi til vandræða.“ Frá árinu 1998 hafa þingfesting- ar í einkamálum þrefaldast. „Þetta hefur alltaf gengið í bylgjum og fylgir þróun efnahagsmála. Þegar bjartsýnin eykst í þjóðfélaginu aukast skuldir og síðan þegar aðeins hægir á koma vanskilin. Þetta er sveifla sem átti sér líka stað á tíma- bilinu 1987 til 1989. Bara við Hér- aðsdóm Reykjavíkur eru þegar komin inn 16.745 einkamál í ár. Árið 1998 var þessi tala á milli 5 og 6 þús- und.“ Í Héraðsdómi Reykjavíkur hefur gjaldþrotamálum fjölgað um 41% miðað við árið í fyrra. Um 35% aukning hefur orðið á þingfesting- um einkamála og sakamálum hefur fjölgað um 44%. Þar af eru 7% ákærumál. Sigurður Tómas segir að til að sporna gegn fjárhagsvanda dóm- stólanna hafi dómstólaráð lagt fram tillögur um fækkun starfsmanna dómstólanna. Ef litið sé á fjölgun mála þyrfti hins vegar að fjölga um fimm dómara og fimm aðstoðar- menn. „Við höfum ekki getað fjölgað um einn einasta starfsmann síðan árið 1992. Við erum með nákvæm- lega sama starfsmannafjölda og þá. Íbúum hefur fjölgað um 12% og málum hefur einnig fjölgað gríðar- lega.“ Í rekstraráætlun dómstólanna er einnig lögð fram hugmynd um að fækka dómstólunum á lands- byggðinni. „Fækkun dómstóla er kannski ekki pólitískt raunhæf hugmynd í ljósi byggðastefnu stjórnvalda, en faglega er hún al- veg raunhæf.“ trausti@frettabladid. Útkall á Ísafirði: Sjómaður lést ANDLÁT Björgunarskipið Gunnar Friðriksson á Ísafirði fékk útkall í gærmorgun að sækja veikan sjó- mann um borð í togarann Akureyr- ina, sem staddur var úti af Vest- fjörðum. Með í för voru læknir og sjúkraflutningsmenn. Þar sem vont var í sjóinn og veður óhagstætt var ákveðið að björgunarfólk héldi áfram með varðskipi sem statt var í Ísafjarðardjúpi. Þegar varðskipið kom að togar- anum var maðurinn látinn. Akureyrin hélt áleiðis með hinn látna til heimahafnar fyrir norðan en varðskipið sneri með björgunar- mennina til Ísafjarðar. ■ SIGURÐUR HELGI GUÐJÓNSSON Formaður Húseigendafélagsins segir að samkvæmt dómnum sé fasteignasala ekki stætt á því að byggja á upplýsingum frá seljanda eða öðrum um ástand eignar. Löggjöfin um fasteignasala endurskoðuð: Hæstaréttardómur markar þáttaskil Fjárhagsvandi og aukinn málafjöldi Fjöldi einkamála hefur þrefaldast síðan árið 1998. Dómstólaráð gerir til- lögu um fækkun starfsmanna og fækkun dómstóla á landsbyggðinni. HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Sigurður Tómas Magnússon segir að til að sporna gegn fjárhagsvanda dómstólanna hafi dómstólaráð lagt fram tillögur um fækkun starfsmanna dómstólanna. ADSL mótald • Stofngjald • Músarmotta Samtals verðmæti 18.125 kr. Aðeins 5.900 kr. Hver býður betur? Start- pakkinn - allt sem til þarf ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I SS 1 94 98 11 /2 00 2 islandssimi.is 800 1111 Tillaga um sumarlokun leikskóla: Foreldrar eru reiðir EINSTÆÐAR MÆÐUR VERST SETTAR Þær eiga ekki möguleika á öðru en að fá unglingsstúlkur eða leita á náðir ættingja ef þær komast ekki í frí á sama tíma. MIKLAR ANNIR Í FISKI- MJÖLSVINNSLU Mikið hefur verið að gera hjá mjöl- og lýsisvinnslu Hraðfrystihúss Eskifjarðar við útskipun á fiskimjöli. Í vikunni gerðist það að skipað var mjöli í tvö skip samtímis og er það í fyrsta skipti í sögu fyrirtækisins sem það gerist. GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 85.12 -0.25% Sterlingspund 133.87 0.33% Dönsk króna 11.48 0.22% Evra 85.22 0.20% Gengisvístala krónu 127,43 -0,13% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 335 Velta 4.112 milljónir ICEX-15 1.321 -0,13% Mestu viðskipti Sæplast hf. 591.979.220 Flugleiðir hf. 259.971.882 Jarðboranir hf. 234.189.580 Mesta hækkun Íslenska járnblendifélagið hf. 37,50% Sæplast hf. 21,88% Íslandssími hf. 5,00% Mesta lækkun Íslenski hugbúnaðarsjóðurinn hf. -2,86% Vinnslustöðin hf. -2,44% Líf hf. -1,89% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8718,2 -0,3% Nasdaq*: 1422,4 -1,8% FTSE: 4048,6 -0,7% DAX: 3320,9 0,5% Nikkei: 9006,7 -2,2% S&P*: 915,8 -0,5%

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.