Fréttablaðið - 05.12.2002, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 5. desember 2002
Við erum hætt að nota rauða
vaxið utan um Brauðostinn.
Það var vissulega góð vörn á
sínum tíma en með fullkomnari
pökkunar- og geymslu-
aðferðum er það óþarfi.
Aukin hagkvæmni skilar sér
einnig í lækkuðu útsöluverði.
Brauðostur er hollur,
bragðgóður og ákaflega
notadrjúgur.
Við erum vaxin upp úr vaxinu!
Þýskur prestur í herferð:
Jólasveinninn
er markaðstól
JÓL Þýskur prestur hefur hafið
herferð gegn jólasveininum.
Eckhard Bieger, prestur í
jesúitareglu í Frankfurt, hef-
ur látið prenta límmiða sem á
stendur „Weinachts Mann
Freie Zone“ eða „Jólasveinalaus
staður.“ Merkið lítur út eins
og umferðarmerki. Á því er
mynd af jólasveini þar sem
búið er að draga línu þvert
yfir andlit hans.
Bieger sagði í samtali við þýska
blaðið Frankfurter Rundschau
að hann væri að reyna að
sýna muninn á hinum eina
sanna Sankti Nikulási og
jólasveinum sem mark-
aðstóli. Samkvæmt þýskri
hefð fer Sankti Nikulás á milli
húsa aðfaranótt 5. desem-
ber og gefur góðu og stilltu
krökkunum sælgæti í skó-
inn. Hefðin er frá fjórðu
öld og kennd við Nikulás
sem var biskup í bænum Myra. ■
Bush-fjölskyldan:
Tileinka jólin dýrum
JÓL George W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, ætlar að fagna
sögu dýra um þessi jól ásamt fjöl-
skyldu sinni. Jólatréð í Hvíta hús-
inu verður skreytt með 400 fugl-
um sem ættaðir eru frá Banda-
ríkjunum. Slagorð jólanna hjá
Bush er: „Öll dýr, stór og smá.“
„Bandaríkjamenn njóta sam-
vista og hafa gaman af að fylgjast
með dýrum, hvort sem er í náttúr-
unni eða heima fyrir,“ sagði Laura
Bush, eiginkona forsetans. Bush-
fjölskyldan á sjálf þrjú gæludýr,
hundana Barney og Spot og kött-
inn India.
„Dýrin hafa huggað okkur frá
hryðjuverkaárásunum 11. sept-
ember í fyrra,“ sagði forsetafrú-
in. „Þau hafa glatt okkur og feng-
ið okkur til að dreifa huganum.
Þau gera Hvíta húsið að heimili.“
Aðspurð hvað hún hygðist gefa
forsetanum í jólagjöf sagði hún.
„Það er leyndarmál, auk þess á ég
eftir að velja gjöfina.“ ■
JÓLASVEINA-
LAUS STAÐUR
Límmiðinn sem
Bieger hefur látið
prenta.
FORSETAHJÓNIN HRIFIN AF DÝRUM
Þegar Bush-fjölskyldan fagnaði Þakkargjörðarhátíðinni í búgarði í Texas tók hún gæludýrin
með sér.