Fréttablaðið - 05.12.2002, Qupperneq 24
5. desember 2002 FIMMTUDAGUR
BÆKUR Þórunn Valdimarsdótt-
ir,sagnfræðingur hverfur rúm
hundrað ár aftur í tímann í nýj-
ustu bók sinni Horfinn heimur –
árið 1900 í nærmynd. Hún lagðist
yfir landsmálablöð aldamótaárs-
ins og fann þannig fréttalandslag
gamla samfélagsins og kemur
með nálæga og hversdagslega sýn
á viðfangsefnið. „Hugmyndin að
bókinni kviknaði hjá mér þegar ég
var að vinna önnur verkefni. Þá
hafði ég hraðflett gömlum blöðum
í leit að ákveðnum atriðum. Að-
dráttarafl þeirra var slíkt að mig
langaði hreinlega að hverfa inn í
þau og þegar færi gafst ákvað ég
að stíga inn í þennan heim,“ segir
Þórunn.
Það gekk ýmislegt á í kringum
aldamótin og lesandinn fær meðal
annars að kynnast tannheilsu
þjóðarinnar, dauðanum og stemn-
ingunni í kringum hann í minning-
argreinum og dánartilkynningum,
sjómönnum sem voru stimplaðir
landráðamenn fyrir að skipta á
sjávarfangi og viskíi og fleiri at-
vikum úr hversdagslífinu. „Það er
heilmikill fréttataktur í bókinni og
ég tel einn af kostum hennar vera
að það er nánast hægt að opna
hana hvar sem er og byrja að
lesa.“
Blöðin eru „tímavélar sem taka
mann aftur í tímann“ og til að
árétta það tók Þórunn þá „djörfu
ákvörðun“ að kynna sjö ritstjóra
fortíðarinnar til sögunnar með því
að bjóða þeim á tímaflakk. „Þessir
menn voru menningarfurstar síns
tíma enda voru blöðin stór hluti
hins prentaða máls. Það kom mér
á óvart hversu meðvitaður og upp-
lýstur fréttaflutningur þeirra að
utan var og ég held að það sé
óhætt að segja að það hafi gleymst
að þakka þessum mönnum fram-
lag þeirra til nútímans.“ ■
Blöðin eru tímavélar
Þórunn Valdimarsdóttir hefur brugðið upp lifandi mynd af árinu
1900 í nýrri bók. Fortíðina nálgaðist hún með því að gjörlesa lands-
málablöð þess tíma. Það var mikið „um að ske“ á aldamótaárinu og
fréttalandslag horfins heims blasir við lesandanum.
ÞÓRUNN VALDIMARSDÓTTIR
„Ævisaga Matthíasar Jochumssonar er aðalverkefni mitt um þessar mundir og mér sýn-
ist hann vilja fá tvö feit bindi. Ég hef þó ekki verið að halda fram hjá honum þar sem
ég skrifaði þessa bók árið 1999. Ég skrifa hins vegar svo hratt að það hlóðst upp hjá
mér efni sem ég þurfti að koma út á undan henni.“
TÓNLIST Tenórinn Gestur Guð-
mundsson hefur safnað saman
upptökum af söng sínum frá árun-
um 1963-2002 og gefið þær út á
geisladisknum Liðnar stundir.
„Elsta upptakan er frá 1963 en þá
nýjustu gerði ég í fyrra þegar ég
var 71 árs en mér fannst rétt að
slá botninn í þetta þannig,“ segir
Gestur. Flestar upptökurnar eru
úr safni Ríkisútvarpsins og Gest-
ur segir það ekki hafa verið nein-
um vandkvæðum bundið að nálg-
ast þær. „Það var af nógu að taka
en það er samt hellingur af upp-
tökum ónýtur og eitthvað hefur
týnst í gegnum árin.“
Gestur lauk söngnámi í Þýska-
landi árið 1966 og söng þar fyrir
nokkra umboðsmenn áður en
hann hélt heim til Íslands. Þeir
tjáðu honum að hann gæti valið
um nokkur lítil óperuhús haustið
eftir. Það varð þó ekkert úr því
þar sem hann stofnaði fjölskyldu í
Reykjavík og fór ekki aftur út.
Gestur segir að af efninu á
disknum þyki sér mest vænt um
Strauss og aríurnar. „Ég söng ekki
eitt einasta íslenskt lag um árabil
enda eru þau ekki eins góð.“ ■20%
afsláttur
af öllum
yfirhöfnum
Vinnufatabúðin
Laugavegi 76 • S. 551 5425
H a u k u r G u l l s m i ð u r
S m á r a l i n d
Íslensk-ítölsk skartgripahönnun og smíði
Sorg í ljósi jóla
Jólafundur Nýrrar dögunar, samtaka um sorg og
sorgarviðbrögð, og Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma
verður í Fossvogskirkju fimmtudaginn 5. desember kl. 20.
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona hugleiðir sorgina og jólin. Erna
Blöndal og Örn Arnarsson flytja tónlist.
Ókeypis aðgangur, allir velkomnir.
Rúmlega sjötugur tenór:
Rifjar upp
liðnar stundir
GESTUR GUÐNASON
„Ég hef verið óttalegur hrakfallabálkur í
sambandi við sönginn. Þegar ég var að syn-
gja um áramótin 1962-1963 velti ég bílnum
mínum í ísingu og endaði á toppnum og
nú nýlega handleggsbraut ég mig í útaf-
keyrslu með nýju diskana í farangrinum.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI