Fréttablaðið - 03.01.2020, Page 2
Þó að það væri
vissulega gott að
eiga auka mánuð þá er
breytingin ekki það stór-
vægileg að það hefði skipt
okkur einhverju máli.
Hildur Björk Margrétardóttir
Veður
Gengur í norðvestan 15-23 m/s
í dag, en mun hægari á SV- og
V-landi. Snjókoma fram eftir degi
N-lands, annars él, en léttskýjað
sunnan heiða. Fer að lægja seinni
partinn, áfram kalt í veðri.
SJÁ SÍÐU 18
Hreinsað til í miðbænum
Þessir tveir sjálf boðaliðar urðu á vegi ljósmyndara Fréttablaðsins í kuldanum í miðborg Reykjavíkur í gær en þeir voru sem betur fer vel búnir
fyrir vetrarveðrið. Fólkið, sem kemur frá Suður-Kóreu og Svíþjóð, var að tína rusl af götum og úr blómabeðum miðbæjarins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VERÐ FRÁ 97.900 KR.
Á MANN M.V. TVO FULLORÐNA SAMAN Í SVÍTU
18. - 25. JANÚAR
NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS
GARA SUITES 4*
SAMFÉLAG Ár hvert keppast fjöl-
miðlar við að greina frá fyrsta barni
hvers árs í góðu samstarfi við Land-
spítalann. Aldrei hefur þó tíðkast að
fjalla um síðasta barn ársins og skal
hér með bætt úr því.
„Fæðingin gekk eins og í sögu
og öllum heilsast vel,“ segir Hildur
Björk Margrétardóttir sem fæddi
síðasta barn ársins, jafnvel ára-
tugarins, að morgni gamlársdags.
Um drengbarn var að ræða og er
hann fjórða barn Hildar Bjarkar
en fyrsta barn barnsföður hennar,
Péturs Þormóðssonar.
„Hin börnin eru fædd 2010, 2012
og 2014 þannig að það er nóg að gera
á heimilinu okkar,“ segir Hildur
Björk. Hún segir að systkinin þrjú
hafi tekið drengnum fagnandi og
heimilisfólk sé alsælt með nýja fjöl-
skyldumeðliminn. „Fyrri fæðingar
hafa tekið langan tíma og reynt
mikið á. En núna var þetta allt öðru-
vísi. Hann var kominn í heiminn
um klukkustund eftir að ég fann
fyrir fyrstu hríðum og missti vatn-
ið,“ segir Hildur Björk.
Hinn 1. janúar gengu í gildi breyt-
ingar á lögum um fæðingarorlof
sem lengdu rétt foreldra til töku
orlofsins um einn mánuð, úr níu
mánuðum samtals í tíu mánuði.
Áður voru réttindin þrír mánuðir á
hvort foreldri auk þriggja mánaða
sem foreldrar gátu deilt á milli sín.
Breytingin um áramótin var sú
að nú fá foreldrar fjögurra mánaða
fæðingarorlofsréttindi á mann auk
tveggja mánaða sem hægt er að
deila á milli eins og fjölskyldunni
hentar. Hildur Björk hlær þegar
blaðamaður spyr hvort hún hafi
ekki leitt hugann að því að reyna
að bíða aðeins.
„Nei, ég leiddi nú ekki hugann að
því. Strákurinn átti að koma í heim-
inn á jóladag og því gekk ég aðeins
fram yfir með hann. Þó að það væri
vissulega gott að eiga auka mánuð
er breytingin ekki það stórvægileg
að það hefði skipt okkur einhverju
máli,“ segir Hildur Björk.
bjornth@frettabladid.is
Síðasta barnið fæddist
á gamlársdagsmorgun
Þau Pétur og Hildur eignuðust síðasta barn ársins 2019. MYND/ EMILÍA KRISTÍN
Síðasta barn ársins
2019 fæddist rétt fyrir
klukkan tíu að morgni
gamlársdags. Um dreng
var að ræða sem bættist
í hóp þriggja systkina.
Móðir hans segir að
breytingar á reglum
fæðingarorlofssjóðs
sem gengu í gegn um
áramót hafi ekki verið
henni ofarlega í huga í
fæðingunni.
STJÓRNSÝSLA Helga Jónsdóttir lög-
fræðingur hefur verið sett tíma-
bundið í embætti ríkissáttasemjara.
Bryndís Hlöðversdóttir, fráfarandi
sáttasemjari, tók um áramót við
stöðu ráðuneytisstjóra í forsætis-
ráðuneytinu.
Helga tekur við
tímabundið
JAFNRÉTTISMÁL Rétt tæplega helm-
ingur þeirra fyrirtækja og stofnana,
sem samkvæmt lögum bar að öðlast
jafnlaunavottun fyrir lok ársins
2019, hefur hlotið vottun. Heim-
ilt er að beita þau fyrirtæki, sem
ekki hafa hlotið jafnlaunavottun
á tilsettum tíma, dagsektum að
hámarki 50.000 krónur á dag.
Í svari við fyrirspurn Fréttablaðs-
ins um beitingu dagsekta kemur
fram að Jafnréttisstofa muni beita
dagsektum í samræmi við nýlega
reglugerð. „Jafnréttisstofa mun
beita dagsektum í samræmi við
nýlega reglugerð þar um. Þar sem
um íþyngjandi ákvörðun er að
ræða verður heimildinni beitt að
vel ígrunduðu máli.“
Jafnlaunavottun var lögfest í
júní 2017 og felur hún í sér að öllum
fyrirtækjum og stofnunum þar
sem starfa fleiri en 25 manns á árs-
grundvelli beri að gæta þess að ekki
sé mismunun á launum eftir kyni.
Fyrsti áfangi laganna náði til fyr-
irtækja og stofnana þar sem starfa
250 manns eða f leiri og bar þeim
fyrirtækjum að öðlast jafnlauna-
vottun fyrir 31. desember 2019.
Fyrir nýliðin áramót bar einnig
opinberum aðilum sem eru meira
en að hálfu í eigu ríkisins og þar
sem 25 eða fleiri starfsmenn starfa
á ársgrundvelli að hafa hlotið jafn-
launavottun. Fyrirtæki af þeirri
stærðargráðu eru 269 talsins hér á
landi og einungis 134 þeirra hafa
öðlast vottunina.
Síðasti áfanginn verður við árslok
2022. – bdj
Dagsektum
verður beitt
Helga Jónsdóttir.
Umsóknarfrestur um stöðu ríkis-
sáttasemjara rann út 20. desember
og mun Helga gegna embættinu á
meðan unnið er úr umsóknum.
Helga sem er einn af tólf aðstoðar-
sáttasemjurum hefur þegar tekið til
starfa. Haustið 2018 var hún tíma-
bundið settur forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur. – sar
Konur berjast fyrir launajafnrétti.
3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð