Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.01.2020, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 03.01.2020, Qupperneq 14
Smassaði sjö stigum til Dýrðlinganna Árni Þór Helgason, stuðningsmaður Southampton, hefur séð viðsnúning liðsins með eigin augum en liðið er taplaust frá því hann fór út á öðrum degi jóla. Aðrir stuðningsmenn liðsins hrópa á hann og fjölskylduna og biðja hann um að fara aldrei aftur til Íslands. Ég var nú að vona að maður myndi ná einu jafntefli eða einu stigi en þau eru orðin sjö, sem er ekkert minna en stórkost- legt. Þetta byrjaði á því að þeir gerðu búningana og settu Stjörnu- merkið á. Síðan töluvert síðar byrjaði fyrirtækið að senda okkur sérreikninga fyrir merkingu. FÓTBOLTI Árni Þór Hallgrímsson, margfaldur Íslandsmeistari í bad­ minton og núverandi badminton­ þjálfari hjá TBR, er staddur í South­ ampton þessa dagana þar sem hann hefur horft á sitt lið vinna hvern sigurinn á fætur öðrum. Hann ætlar að framlengja ferðina til að horfa á bikarleik liðsins gegn Hudders­ field um helgina og ef hann vinnst er spurningin hvort honum verði almennt hleypt heim. Hvort hann sé ekki orðinn lukkutröll liðsins, en liðið hefur farið á f lug eftir að Árni birtist og ekki tapað leik. „Ég var nú að vona að maður myndi ná einu jafntef li eða einu stigi en þau eru orðin sjö, sem er ekkert minna en stórkostlegt,“ segir Árni kampakátur. Árni og fjölskylda fóru utan 25. desember og byrjuðu á að sjá liðið mæta á Stamford Bridge í Lundún­ um þar sem óvæntur en öruggur 0­2 sigur kom í hús gegn Chelsea. Síðan kom 1­1 jafntefli við Crystal Palace og á nýársdag var sjálfur José Mour­ inho og hans menn í Tottenham lagðir 1­0. Árni segir að stuðnings­ menn Southampton hafi gólað oft á eftir sér eftir leikinn gegn Totten­ ham um að hann fái ekkert að snúa heim til Íslands. „Þeim finnst þetta vera mikið happ að ég sé hérna. Ég er nú búinn að fara svo oft á leiki án þess að sjá sigur þannig að það var kominn tími á að sjá sigurleik. Ég hef eiginlega alltaf séð jafntefli eða tap.“ Þrír sigurleikir á The Dell Árni byrjaði að halda með liðinu fyrir margt löngu. Frændi hans var í háskóla í borginni og fólkið sem hann dvaldi hjá kom til Íslands þar sem Árni kynntist því. Þegar hann var svo 15 ára fór hann og dvaldi hjá fjölskyldunni og skellti sér fjórum sinnum á gamla góða The Dell þar sem hann sá liðið vinna þrisvar og gera eitt jafntefli. Liðið endaði í öðru sæti, þremur stigum á eftir Liverpool sem varð meistari. „Þarna voru Steve Moran og Danny Wallace, Peter Shilton var í markinu og fleiri góðir. Það er besti árangur liðsins frá upphafi í deildinni. Ég hef farið á nokkuð marga leiki í gegnum tíðina og verið í sambandi við þessa fjöl­ skyldu síðan.“ Southampton situr nú í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með jafn mörg stig og Everton og Newcastle og viðsnúningurinn eftir niður­ lægjandi 0­9 tap gegn Leicester Eftir leikinn gegn Tottenham hitti Árni Þór markaskorarann og gæðablóðið Danny Ings og smellti af mynd. Sigríður og Árni Þór kominn á Stamford Bridge í London. Fyrir leikinn gegn Crystal Palace sem fór fram 28. desember. Daníel, Jóhannes, Sigríður, Sigurbjörg, Árni Þór, Ingibjörg og Þorkell. hefur verið magnaður. Næst er það bikarkeppnin en þar fær liðið Hudd­ ersfield í heimsókn sem Árni ætlar ekki að missa af. „Það var ekki búið að draga í bikarnum þegar ég keypti ferðina og vissi ekkert hvernig það myndi enda. En fyrst við fengum heimaleik þá lætur maður sig ekki vanta. Það er bónusleikur.“ benediktboas@frettabladid.is 3 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT ÍÞRÓTTIR Eftir tæpar tvær vikur verður fyrirtaka í máli Namo ehf., sem hefur umboð fyrir Jako­ íþróttavörur, gegn Stjörnunni. Málið verður tekið fyrir í héraðs­ dómi Suðurnesja. Málið snýst í grunninn um merkingar á fatnaði Stjörnunnar, samkvæmt upplýs­ ingum frá formanni Stjörnunnar, Sigurði Bjarnasyni. „Þetta fjallar um Stjörnumerkið sjálft. Þeir vilja meina að Stjörnu­ búningurinn innihaldi ekki merkið sjálft. Þeir sendu okkur sérreikning fyrir því – löngu eftir að samningur­ inn tók gildi – en við viljum meina að í Stjörnubúningnum felist það að það sé merking á búningnum með Stjörnumerkinu sjálfu,“ segir Sigurður. Málið hefur verið töluvert lengi að veltast um á milli aðila. Þann­ ig var í febrúar í fyrra tekið fyrir í fundargerð félagsins erindi sem hafði borist frá lögfræðingi Namo vegna deilunnar. Kristján Thorla­ cius, hæstaréttarlögmaður hjá Fortis og stjórnarmaður í Stjörn­ unni, tók málið að sér fyrir hönd aðalstjórnar Stjörnunnar. Jako var með samning við allar deildir félagsins fyrir utan fótbolt­ ann og var með utanyfirgalla alls félagsins. „Þetta byrjaði á því að þeir gerðu búningana og settu Stjörnu­ merkið á. Síðan töluvert síðar byrjaði fyrirtækið að senda okkur sérreikninga fyrir merkingu. Þetta fjallar aðallega um búninga meist­ araflokkanna,“ bætir Sigurður við. Stjarnan er ekki lengur í Jako. „Það var engin riftun eða neitt slíkt. Samningurinn rann bara út og við erum núna með annan aðila,“ segir hann. Ekki náðist í forsvarsmenn Jako en búðin var lokuð í gær. – bb Stjarnan dregin fyrir dómstóla vegna merkinga á búningnum Hlynur Bæringsson segir mönnum til í Jako-búningi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.