Fréttablaðið - 07.01.2020, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —5 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 7 . J A N Ú A R 2 0 2 0
Fagnaðu vetri
með Touareg
Verð frá
9.850.000,-
HEKLA · www.hekla.is/volkswagensalur
VIÐSKIPTI Til stendur að reisa
fyrsta hótelið á Norðurlöndum
undir merkjum Radisson RED á
horni Skúlagötu og Vitastígs. Það
er Rauðsvík ehf. í gegnum félag sitt
S26 Hotel ehf. sem stendur að upp-
byggingunni.
Fyrst var greint frá áformum um
byggingu hótelsins á fyrri hluta
árs 2018 og þá var ráðgert að hót-
elið myndi hefja rekstur nú í ár. Þær
áætlanir töfðust, meðal annars út af
skipulagsmálum en fyrri áform um
bygginguna þóttu ekki uppfylla
kröfur deiliskipulags. Þau vandamál
hafa nú verið leyst.
RED-vörumerki Radisson er ætlað
að ná til þúsaldarkynslóðarinnar
með frumlegri hönnun, óformlegri
þjónustu og mikilli fjölbreytni. Við
hönnun hótelsins mun það hafa
verið haft í huga. Göngustígur mun
liggja í gegnum hótelið og veitinga-
staður verður á jarðhæðinni við sér-
stakt götutorg á áðurnefndu horni
Skúlagötu og Vitastígs.
Krúnudjásn byggingarinnar verð-
ur þó barsvæði og útiverönd á efstu
hæð sem opin verður almenningi og
hótelgestum og þangað er hægt að
komast með sérstakri útsýnislyftu
sem liggur utan á byggingunni.
Arkitekt verkefnisins er hinn virti
breski arkitekt Tony Kettle en hans
þekktasta verk er Falkirk-hjólið svo-
kallaða, hringsnúandi skipalyfta
sem er eitt af helstu kennileitum
Skotlands. Að auki hefur hann
unnið mörg djörf verkefni í Mið-
Austurlöndum, Kína og Rússlandi.
Meðal annars við Lakhta-turninn,
höf uðstöðva r Ga z prom-stór-
veldisins í St. Pétursborg. Turninn
er hæsta bygging Rússlands, heilir
426 metrar.
Kettle segir að hönnun hótelsins
sé undir áhrifum frá náttúru Íslands
og arkitektúr höfuðborgarinnar,
sérstaklega Hallgrímskirkju og
Hörpu. „Ég varð fyrir sterkum áhrif-
um af heimsókn minni til landsins
enda er Ísland ótrúlega fallegt land,“
segir hann.
„Hönnun hótelsins dregur að ein-
hverju leyti innblástur frá þessum
tveimur byggingum og náttúrunni.
Markmið okkar er að skapa nýtt og
spennandi kennileiti fyrir Reykja-
vík og spennandi áfangastað fyrir
íbúa höfuðborgarinnar og ferða-
menn.“
Eins og áður segir kom hann
að verkefninu þegar áætlanir um
byggingu hótelsins voru í ákveðinni
pattstöðu hjá skipulagsyfirvöldum.
Kettle segir að ferlið við hönnun
hótelsins hafi verið ánægjulegt og þá
sérstaklega viðmót borgaryfirvalda.
„Það var mjög skemmtilegt hvað
skipulagsyfirvöld voru jákvæð
gagnvart hinum ýmsu hugmyndum.
Þau lögðu við hlustir en útilokuðu
ekki neitt fyrirfram. Þannig náðist
lausn sem ég vona að allir geti verið
ánægðir með,“ segir Kettle.
Myndir af byggingunni er hægt að
skoða á frettabladid.is. – bþ
Nýtt kennileiti á að rísa við Vitastíg
Ráðgert er að nýtt 203 herbergja Radisson-hótel munu rísa á horni Skúlagötu og Vitastígs á næsta ári. Hótelið, sem verður sautján
hæða, er hannað af þekktum skoskum arkitekt sem hannaði meðal annars hæsta turn Rússlands og eitt helsta kennileiti Skotlands.
Fjöldi fólks kom saman á þrettándabrennu í Gufunesi í gær þar sem jólin voru kvödd að hefðbundnum sið. Meðlimir björgunarsveitanna sáu til þess að enginn kæmist of nálægt bálinu.
Skutu nokkrir upp f lugeldum í síðasta sinn í bili. Þá kom jólasveinninn vinsæli Kertasníkir í heimsókn til að kveðja, en hann kemur aftur til byggða í lok ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Markmið okkar er
að skapa nýtt og
spennandi kennileiti fyrir
Reykjavík.
Tony Kettle,
arkitekt