Fréttablaðið - 07.01.2020, Síða 2
Veður
Gengur í austan 10-18 með slyddu
eða rigningu, en norðaustan 18-23
með slyddu eða snjókomu á Vest-
fjörðum. Hiti kringum frostmark,
en að 6 stigum syðst. SJÁ SÍÐU 16
Unnið á mastri
Vetrarharkan tók sér stutt hlé á höfuðborgarsvæðinu á þrettándanum í gær. Notaði þessi maður tækifærið til að vinna í mastri á bát í Reykjavíkur-
höfn. Eftir hádegi á morgun verður gul viðvörun í gildi á Suður- og Vesturlandi, Vestfjörðum, hálendinu og í höfuðborginni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
LÖGREGLUMÁL „Það hefur snjóað og
þetta eru bölvanlegar aðstæður,“
segir Jón Sigurður Ólafsson, hjá Lög-
reglunni á Vesturlandi, um leitina
að Andris Kalvans.
Talið er að Andris hafi ætlað að
leggja í göngu út frá Heydalsvegi á
Snæfellsnesi 28. desember. Leitað
var að honum 30. desember, á gaml-
ársdag og síðastliðinn föstudag.
„Nú er eiginlega biðstaða og ekki
útlit fyrir leitarveður næstu daga,“
segir Jón sem ræddi við mann úr
svæðisstjórninni sem var á leitar-
svæðinu í gær. „Hann sagði alveg
glórulaust að reyna eitthvað, það
sæist ekki úr augum.“
Bíll Andris var skilinn eftir á Hey-
dalsvegi niður af Hrútadal.
„Við höfum bara bílinn og
nokkuð staðfest að hann hafi verið
að fara þarna til göngu,“ segir Jón.
Andris hafi ekki rætt við neinn um
ferðina en þó sagst ætla í göngu.
„Það er heimamaður sem fer að
veita bílnum athygli. Það var enginn
farinn að sakna hans,“ segir Jón.
Leitarsvæðið er um og í kring um
Hrútadal. Þar eru fjöllin Hrútaborg
og Kolbeinsstaðafjall. „Það er verið
að skoða í hella og skúta og slíkt.
Það á eftir að leita eitthvað en það er
búið að fara í það sem er líklegast.“
Mörg gil eru á svæðinu og sum
þeirra full af snjó. „Það er mjög bratt
þarna og erfitt yfirferðar,“ segir Jón.
Fram kom á frettabladid.is á
föstudag að fjallgöngubúnaður
hefði verið í bíl Andris en Jón segir
ekki hægt að draga af því neinar
ályktanir. „Það gætu verið aukaföt
hreinlega,“ bendir lögreglumaður-
inn á. – gar
Veðrið hamlar
leit að Andris
Göngugarpurinn Andris Kalvans.
Alltaf nóg til af humri hjá Norðanfiski...
STÓRUM HUMRI!!
Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu á
úrvals sjávarfangi til veitinga- og stóreldhúsa.
Einnig má finna vörur Norðanfisks í
neytendapakkningum í verslunum
Bónus um land allt.
Hafið samband á nordanfiskur@nordanfiskur.is eða í síma 430 1700
SAMFÉL AG Hildur Guðnadóttir
tónskáld vann í fyrrinótt Golden
Globes verðlaunin fyrir bestu
frumsömdu tónlist í bíómynd fyrir
tónlist sína í kvikmyndinni Joker.
Hildur er fyrst kvenna til að vinna
verðlaunin í nítján ár en einnig er
hún fyrsta konan til að vinna verð-
launin ein síns liðs. Þá er Hildur
annar Íslendinga til að hljóta verð-
launin en Jóhannes Jóhannesson
hlaut verðlaun í sama f lokki árið
2014 fyrir tónlist sína í kvikmynd-
inni Theory of Everything.
Hildur hefur unnið til fjölda ann-
arra verðlauna fyrir tónlist sína í
Joker og hlaut hún að sama skapi
mikið lof fyrir tónlist sína í þátt-
unum Chernobyl. Fyrir hana vann
Hildur til Emmy-verðlauna og var
tilnefnd til Grammy-verðlauna.
Í samtali við Fréttablaðið síðast-
liðið sumar sagðist Hildur vera alin
upp af tónlistarfólki og að eðlilegt
hefði verið að hún færi í tónlistar-
nám, en hún hóf að læra tónlist ein-
ungis um fjögurra ára. Áhugi Hildar
á sögum var svo það sem leiddi hana
inn í heim kvikmyndatónlistarinn-
ar. „Ég hef alltaf haft rosa mikinn
áhuga á sögum. Ég vann mikið í
leikhúsi og sæki oft innblástur í
sögur þegar ég er að semja tónlist.
Svo bara kom í ljós að þetta var form
sem hentaði mér, að semja kvik-
myndatónlist,“ sagði Hildur.
Í þakkarræðu sinni á Golden
Globes færði Hildur móður sinni
og bræðrum þakkir ásamt því að til-
einka Kára syni sínum verðlaunin.
Einnig þakkaði Hildur eiginmanni
sínum og samstarfsfélögum.
Gunnar Tynes, samstarfsmaður
Hildar, hefur unnið mikið með
henni í tónlistinni og vann til að
mynda með henni bæði að tón-
listinni í Chernobyl og Joker. „Við
vorum þrjú sem unnum þessi tvö
verkefni saman og það þykir mjög
lítið teymi. Hildur semur að sjálf-
sögðu alla tónlistina en við hjálpum
til með að sníða hana að myndinni,“
segir Gunnar.
Hildur, Gunnar og Sam Slater,
eiginmaður hennar, unnu saman
að verkefnunum og segir Gunnar
að stundum hafi álagið verið mikið.
„Við vorum á tímabili að vinna að
báðum verkefnunum á sama tíma
sem tók vissulega svolítið á en
okkur tókst þetta einhvern veginn
og Hildur er að sjálfsögðu himinlif-
andi,“ segir Gunnar.
birnadrofn@frettabladid.is
Hildur himinlifandi
með Gullna hnöttinn
Hildur Guðnadóttir hlaut í fyrrinótt hin virtu Golden Globes verðlaun fyrir
tónlist sína í Joker. Engin kona hefur hlotið verðlaunin í 19 ár og er Hildur sú
fyrsta til að vinna þau ein síns liðs. Samstarfsmaður segir hana í skýjunum.
Söng- og leikkonan Jennifer Lopez og leikarinn Paul Rudd afhentu Hildi verð-
launin aðfaranótt mánudags á Hilton í Beverly Hills. NORDICPHOTOS/GETTY
Hildur er annar Íslend-
ingurinn sem hlýtur Gullna
hnöttinn. Jóhann Jóhanns-
son vann árið 2014, einnig
fyrir tónlist.
DÓMSMÁL Í dag verður tekið fyrir
meiðyrðamál Jóns Baldvins Hanni-
balssonar gegn dóttur sinni Aldísi
Schram, þáttarstjórnandanum Sig-
mari Guðmundssyni og RÚV. Er það
fyrir ummæli sem látin voru falla í
Morgunútvarpinu á Rás 2 þann
17. janúar á síðasta ári.
Ekki fjárkrafa á
Aldísi Schram
Jón Baldvin
Hannibalsson.
Jón Baldvin krefst þess að 14
ummæli verði dæmd dauð og
ómerk, tíu hjá Aldísi og fern hjá Sig-
mari en til vara hjá Aldísi. Einnig er
krafa um birtingu afsökunarbeiðni
en RÚV hefur hafnað kröfunum.
Gunnar Ingi Jóhannsson, lög-
maður Aldísar, segir engar sáttaum-
leitanir hafa átt sér stað. Fjárkrafa er
gerð á Sigmar en ekki á Aldísi. – khg
7 . J A N Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð