Fréttablaðið - 07.01.2020, Page 9

Fréttablaðið - 07.01.2020, Page 9
Óhætt er að fullyrða að óveðr-ið sem gekk yfir landið í desember síðastliðnum hafi svo um munar af hjúpað veik- leika raforkuf lutningskerfisins. Landsnet hefur bent á þessa veik- leika árum saman og bera áætlanir fyrirtækisins um uppbyggingu f lutningskerfisins þess vitni. Áætl- anir um uppbyggingu eru birtar í kerfisáætlun Landsnets sem er uppfærð árlega og samþykkt af Orkustofnun að undangengnu víð- tæku umsagnarferli. Ný kynslóð byggðalínu er lykilatriði Í kerfisáætlun má m.a. finna lang- tímaáætlun um nýja kynslóð byggða línu. Hún verður byggð úr stálmöstrum, sambærileg þeim sem byggð voru á NA-landi, sem síður brotna þrátt fyrir ísingu og mun hafa f lutningsgetu sem fullnægir þörfum landsins næstu áratugina. Þegar verkefninu verður lokið verða virkjanakjarnar í mismun- andi landshlutum samtengdir með fullnægjandi tengingum og þannig minnka líkur á að einstök svæði verði rekin í svokölluðum eyjarekstri og þar með í hættu á að verða fyrir straumleysi við truflun. Einnig mun ný kynslóð byggðalínu gefa nýjum framleiðsluaðilum víða á landinu færi á að tengjast kerf- inu og auka þannig skilvirkni og afhendingaröryggi enn frekar. En hvað með landshlutakerfin? En uppbygging meginf lutnings- kerfis dugir ekki ein og sér til að tryggja af hendingaröryggi. Sam- kvæmt stefnu stjórnvalda eiga allir af hendingarstaðir í landshluta- kerfum að vera komnir með tvöfalt öryggi eigi síðar en árið 2040 (N-1). Eins og staðan er í dag eru þó nokkrir af hendingarstaðir í f lutningskerfinu þar sem ekki er um að ræða tvöfalt öryggi, m.a. á Norðurlandi, en einnig á Austur- landi, Vestfjörðum og á Snæfells- nesi. Kerfisáætlun Landsnets hefur m.a. tekið mið af þessari stefnu og í framkvæmdaáætlun má finna áætlun um tvítengingar hluta af þessum af hendingarstöðum. Má þar nefna Sauðárkrók, Neskaup- stað og Húsavík, en aðrir staðir eru einnig á langtímaáætlun s.s. Dal- vík, Fáskrúðsfjörður og sunnan- verðir Vestfirðir. Aðrir af hendingarstaðir eru til skoðunar og hafa verkefni ekki verið skilgreind ennþá en benda má á að greiningar og áætlanir eru í stöðugri endurskoðun og taka ávallt mið af stöðu kerfisins og stefnum og straumum hverju sinni. Annað sem á stóran þátt í bættu afhendingaröryggi er hvernig upp- byggingu og endurnýjun er háttað. Það er stefna Landsnets að öll ný og endurnýjuð tengivirki séu yfir- byggð og hefur verið unnið eftir þessari stefnu undanfarin ár. Yfir- byggð tengivirki eru ekki útsett f y r ir veður farsleg um þáttum og minnka líkurnar á að skapist ástand eins og í Hrútatungu í des- ember síðastliðnum, þar sem selta á tengivirkinu olli víðtækum og langvarandi rafmagnstruf lunum. Hvað varðar uppbyggingu og eða endurnýjun f lutningslína í landshlutakerfunum, þá hefur Landsnet eingöngu lagt 66 kV f lutningslínur sem jarðstrengi sem gerir það að verkum að þær eru ekki útsettar fyrir veðri eins og loftlínur. Kostnaður við lagningu jarðstrengja á 66 kV spennu er á pari við loftlínur og lagning 66 kV Hvernig bætum við afhendingaröryggi raforku á landsbyggðinni Gnýr Guðmundsson yfirmaður greininga hjá Landsneti jarðstrengja er víðast hvar tækni- lega möguleg. Þó eru svæði þar sem skammhlaupsaf l er það lágt að ekki er unnt að leggja allar nýjar 66 kV línur í jörðu og er bygging loftlína því óhjákvæmileg á þeim svæðum. En það er ljóst að uppbygging og endurnýjun kerfisins mun taka tíma. Ekki er hægt að byggja upp allt kerfið samtímis og því þarf að forgangsraða verkefnum eins vel og hægt er, m.a. til að halda f lutnings- kostnaði innan eðlilegra marka, en Landsnet er á tekjumörkum sem þýðir að allur kostnaður við rekstur og uppbyggingu kerfisins lendir á notendum. Til að tryggja af hendingaröryggi til skamms tíma eru varaaf lstöðvar því nauð- synlegar. Landsnet hefur unnið að undirbúningi að kaupum á færan- legum varaaf lstöðvum. Samtals er að ræða 12 MW af af li í nokkrum stöðvum, sem verða í færanlegum gámaeiningum. Ætlunin er að koma þeim fyrir á stöðum sem eru útsettir fyrir truf lunum, s.s. Dalvík, Snæfells- nesi og á Vestfjörðum en auðvelt verður að f lytja þær á milli staða ef þurfa þykir. Reiknað er með að fyrsti hluti varaaf lstöðvanna komi til landsins á fyrri hluta ársins og verði þá tilbúnar til notkunar. Það er því ljóst að ef áætlanir Landsnets um uppbyggingu f lutn- ingskerfisins ganga eftir eins og þær eru kynntar í kerfisáætlun, munu líkurnar á ástandi eins og skapaðist í desember 2019 verða mun minni en eru í dag. Ekki er hægt að byggja upp allt kerfið samtímis og því þarf að forgangsraða verk- efnum eins vel og hægt er. PFAFF • Grensásvegi 13 • 108 Reykjavík • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is Verð áður 48.900 kr. Tilboð: 34.000 kr. Verð áður 34.900 kr. Tilboð: 18.000 kr. Verð áður 59.900 kr. Tilboð: 44.000 kr. Verð áður 45.900 kr. Tilboð: 30.000 kr. Verð áður 6.990 kr. Tilboð: 4.500 kr. Verð áður 8.990 kr. Tilboð: 6.500 kr. Verð áður 18.500 kr. Tilboð: 13.000 kr. Verð áður 39.990 kr. Tilboð: 25.000 kr. Verð áður 59.900 kr. Tilboð: 44.000 kr. Verð áður 49.990 kr. Tilboð: 36.900 kr. Verð áður 48.900 kr. Tilboð: 30.000 kr. Verð áður 45.900 kr. Tilboð: 30.000 kr. LjÓMaNdI ÚTsAlA AlLt Að 70% VeRðLæKkUn S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9Þ R I Ð J U D A G U R 7 . J A N Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.