Fréttablaðið - 07.01.2020, Síða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Kraftlyftingamaðurinn Júlían Jóhann Karl Jóhannsson var valinn íþróttamaður ársins
2019 í árlegri kosningu Samtaka
íþróttafréttamanna. Júlían segir
að það hafi verið ótrúlega góð til-
finning að fá titilinn, þótt það hafi
að vísu tekið hann nokkra daga að
átta sig á því sem hefði gerst.
„Þetta kjör er stærsta svona
tilnefningin á Íslandi, þannig að
þetta er rosa stórt, bæði fyrir mig
persónulega og kraftlyftingar
almennt,“ segir Júlían. „Ég bjóst
í rauninni ekki við þessu, en ég
vissi samt að ég væri í topp tíu og
ég lenti í öðru sæti í fyrra, þannig
að ég leyfði mér að vona og var
undirbúinn.
Ég man eftir að fylgjast með
kjörinu í sjónvarpinu sem barn og
maður hefur alltaf horft til þess,“
segir Júlían. „Manni hefur þótt
mislíklegt að vinna, enda langt
síðan kraftlyftingamaður vann,
en maður hefur alltaf haft það á
bak við eyrað að stefna að þessum
titli.“
Stoltur af árangrinum á HM
Júlían segir að árangur hans á
heimsmeistaramótinu í Dúbaí í
lok nóvember sé það sem hann sé
stoltastur af frá liðnu ári.
„Þetta er í raun þriðja árið sem
ég lendi í þriðja sæti, en núna
bætti ég samanlagðan árangur
minn rosalega, sem og heimsmet-
ið í réttstöðulyftu og sýndi að ég er
kominn til að vera,“ segir Júlían.
Hann segir að ýmsar breytingar
hafi gert þennan frábæra árangur
mögulegan.
„Ég fer inn í þetta mót með
æfingafélaga minn til 10 ára,
Auðun Jónsson, sem þjálfara. Það
er gríðarlega sterkt að hafa svona
reynslubolta með sér og við fórum
í ýmsar breytingar, bæði í hné-
beygjustíl og bekkpressu,“ segir
Júlían. „Ég tók líka 16 vikur í að
hugsa bara um þetta mót og það er
fátt sem toppar slíka einbeitingu.
Þessar breytingar komu sér-
staklega í ljós í bekknum, þar sem
ég bætti mig um 15 kíló og tók
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Það er stórt ár
fram undan
hjá Júlían.
Hann verður
pabbi í mars og
ætlar að verða
Evrópumeistari
í maí. Svo
tekur við undir-
búningur fyrir
heimsmeistara-
mótið í lok árs
og heimsleik-
ana á því næsta.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Júlían í réttstöðulyftu á Reykjavíkurleikunum 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Framhald af forsíðu ➛
330 kíló í heild,“ segir Júlían. „Ég
hef átt í stormasömu sambandi
við bekkinn og reglulega lent í
álagsmeiðslum og tognað í brjóst-
vöðvum. Það gerðist líka í fyrra, en
Ellen Ýr Jónsdóttir, kærastan mín,
sagði samt við mig: „Júlían, ég finn
það á mér að þú ert að fara að bæta
þig í bekk á þessu móti.“ Það eru
örugglega ekki margar kærustur
sem sjá bekkbætingar fyrir.
Það er líka mjög sjaldgæft að
ná svona mikilli bætingu þegar
maður er kominn á þennan stað,“
segir Júlían. „Samtals lyfti ég 1.148
kílóum, en fyrir mótið var minn
besti árangur 1.115 kíló, þannig að
bætti ég mig um 33 kíló.
Ég þakka árangurinn líka því
marga góða fólki sem er í kringum
mig og styður við bakið á mér, sem
og því að ég hef hagað aðstæðum
þannig að þetta sé númer eitt hjá
mér,“ segir Júlían.
Goðsagnakennd lyfta
Júlían hefur tvíbætt heimsmetið
í réttstöðulyftu. Fyrst í nóvember
2018, en þá hafði það verið óhreyft
í 7-8 ár, og í nóvember síðastliðn-
um bætti hann svo sitt eigið met.
„Það var rosalega góð tilfinning.
Það er búið að vera langtíma-
draumur og markmið að snerta
á þessum tölum,“ segir Júlían.
„Þegar ég bætti mitt eigið heims-
met fannst mér það til marks um
að ég hefði komist í þetta heims-
metaform, bætt metið og svo
haldið mér í því formi, þannig að
ég gef ekkert eftir og held áfram að
bæta mig.“
Kraftlyftingar snúast um þrjár
lyftur, hnébeygju, bekkpressu og
réttstöðulyftu.
„Af þeim finnst mér réttstöðu-
lyftan skemmtilegust og hún hefur
legið best fyrir mér. Í grunninn er
þetta skemmtilega einföld lyfta,
en hún er líka ansi margslungin,“
segir Júlían. „Í kraftaíþróttum
á Íslandi hefur lyftan líka haft
menningarlegt gildi og verið
hálf goðsagnakennd, en margir
Íslendingar hafa sett met í henni.
Það hefur veitt mér innblástur og
ég hef æft fyrir þetta met í átta ár
að einhverju leyti, ég hef alltaf haft
þetta í huga.“
Dýrmætt að finna sína
ástríðu og ganga vel í lífinu
Lyftingar hafa átt allan hug Júlíans
síðan hann var 15 ára.
„Það er dýrmætt að hafa fundið
mína ástríðu í íþróttinni,“ segir
Júlían. „Kraftlyftingar gefa mér
rosa mikið. Þetta er heilbrigð
hreyfing sem hefur jákvæð áhrif
á líkamlega og andlega heilsu og
maður kynnist mörgu fólki við að
vera við æfingar 12-18 tíma á viku í
10 ár. Það eru mörg góð áhrif af því
að vera í íþróttastarfi og í svona
einstaklingsíþrótt læri ég líka aga,
að treysta á sjálfan mig og að taka
ábyrgð á sjálfum mér.
Stundum gengur vel og stundum
ekki, eins og með allt í lífinu. Eftir
góðar æfingar svífur maður um en
eftir lélegar æfingar finnst manni
allt glatað og maður er alveg búinn
á því. Það sama gildir um mót og
lélegt gengi þar getur dregið mann
langt niður,“ segir Júlían. „En ég
held að það sé hluti af þessu. Ef
það gengi alltaf vel væri maður
ekki svona lengi í þessu.“
Júlían hefur sagst vera ástfang-
inn af því að æfa og keppa og er
með góð ráð fyrir þá sem vilja eiga
auðveldara með að finna löngun-
ina til hreyfa sig.
„Númer eitt er að fólk er mis-
munandi og það eru ekki allir
gefnir fyrir sömu íþróttirnar. Hver
og einn þarf því að finna sína
ástríðu og til þess þarf að prófa
nóg af ólíkum íþróttum,“ segir
hann. „Eftir að fólk hefur fundið
sína íþrótt þarf líka að átta sig á
að í íþróttum, eins og öllu öðru,
ganga hlutirnir misjafnlega og
ekkert er gefið.
Ég hef líka uppgötvað hvað
forgangsröðun er mikilvæg, því
maður er alltaf að forgangsraða
því sem mann langar mest í núna
á móti því sem mann langar mest
í, punktur,“ segir Júlían. „Þá verða
fórnir hluti af þessu.“
Lyftingar, vinna, barn og
nám
Það er nóg fram undan hjá
Júlían á nýju ári. Næsta stórmót
er Evrópumeistaramótið í maí og
Júlían stefnir á að koma heim með
Evrópumeistaratitilinn.
„Það verður ekkert gefið eftir
og þetta ár fer í að tryggja mér
farmiða á heimsleikana sem
fara fram á næsta ári, en þeir eru
haldnir fjórða hvert ár,“ segir
Júlían. „Til þess þarf ég að stimpla
inn góðan árangur á heimslista og
tryggja mér sæti á heimsmeistara-
mótinu í lok ársins. Ég er bjart-
sýnn á að það gangi, en maður þarf
að vinna fyrir þessu, mæta og gera
sitt. Minn æðsti draumur er svo að
verða heimsmeistari.“
En Júlían er ekki bara upptekinn
við kraftlyftingarnar. Hann og
Ellen Ýr, kærasta hans, eiga von
á barni í mars, svo að föðurhlut-
verkið heldur honum líka upp-
teknum á nýju ári.
„Það er rosalega spennandi. Við
búum tvö saman núna og hlökk-
um til að stækka fjölskylduna,“
segir hann.
Þar fyrir utan vinnur Júlían
hlutastörf sem hann púslar í
kringum æfingarnar. Hann hefur
lengi unnið á Listasafni Einars
Jónssonar en nú er hann aðallega
að vinna sem ráðgjafi á Stuðlum.
„Það er hluti af þessu, ég get
ekki verið atvinnumaður í þessari
íþrótt. Það getur verið vinna að
púsla þessum öllu saman en ég
hef lært þetta, að forgangsraða og
púsla saman tíma,“ segir Júlían. „Ég
get ekki sagt að ég hafi tíma fyrir
nein áhugamál en ég hef lagt stund
á nám í sagnfræði við Háskóla
Íslands, þó að ég hafi reyndar
tekið hlé í aðdraganda HM. En
mér finnst það mjög áhugavert og
dropinn holar steininn.“
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . JA N ÚA R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R