Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.01.2020, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 07.01.2020, Qupperneq 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Hauks Arnar Birgissonar BAKÞANKAR Skúbb ísgerð Laugarásvegi 1 • 104 Reykjavík Ístertur Opið til 16:00 í dag Samkvæmt niðurstöðum afar óvísindalegrar rannsóknar minnar á samfélagsmiðlun- um, er konum umhugað um útlit vinkvenna sinna. Ég efast ekki um að karlar hugsi líka um útlitið en það ber minna á því. Í hvert sinn sem stúlka á aldr- inum 20-50 ára setur inn mynd af sér á samfélagsmiðil keppast vinkonurnar við að hæla útlitinu. „Fallegust“, „sæta mín“ og „sæta, sæta“ sést gjarnan við þessi til- efni. Þetta er hið besta mál og sprottið af velvilja einum saman. Það vekur hins vegar athygli mína að strákar gera þetta ekki. Hvorki gagnvart vinum sínum né vinkonum. „Þú ert sætastur“ eða „fallegi vinur minn“ eru athuga- semdir sem ég hef aldrei séð á Facebook-veggjum vina minna og eru þeir þó langt frá því að vera allir ljótir. Yfirlýsingin „f lottur!“ er eins langt og nokkur gaur er tilbúinn að ganga í þessum efnum. Reglulega birtast fréttir þess efnis að líkamsmynd stúlkna fari versnandi. Það er alls ekki gott að heyra og mikilvægt að sporna gegn því. Orsakirnar eru lík- legast margvíslegar en þær stafa ekki síður frá konum en körlum. Konur gera glæsilegt útlit annarra kvenna að umtalsefni, ekki síður en karlar. Jafnvel oftar. Á sama tíma og fullyrt er að útlit kvenna eigi ekki að skipta máli keppast konur við að hrósa hver annarri fyrir útlitið. Af hverju er það? Þótt um hrós sé að ræða, getur verið að fókusinn á fegurðina eigi sinn þátt í versn- andi sjálfsmynd? Og hvað gerist þegar hrósin eru ekki nógu mörg eða þau hætta að berast? Það kann að vera óþægilegt að horfast í augu við það en líklegast erum við lent í vítahring. Sætust

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.