Fréttablaðið - 21.01.2020, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 21.01.2020, Blaðsíða 32
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg. ehf DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Hauks Arnar Birgissonar BAKÞANKAR LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233 | BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150 OPIÐ virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16 | svefnogheilsa.is UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði og Lúxus húsgögn, Egilsstaðir Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16 JANÚAR ÚTSALA – GERÐU GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ – í verslunum Svefns & heilsu 10-50% afsláttur af völdum vörum 25% afsláttur af mjúkvöru Góð hvíld 10 0% SV EFN – 100% HEILSA 100% SVEFN – 100% HE IL SA Njóttu Handbolti er yndisleg íþrótt en á sama tíma gjörsam­lega óþolandi. Sem áhorfandi upplifir maður hættu­ legar geðsveif lur en maður getur ekki sleppt því að fylgjast með. Íþróttin hefur eitthvert undarlegt aðdráttaraf l – dulúð. Hún er ekki bara hjúpuð leyndardómi, hún er einnig fullkomlega óskiljanleg. Þar liggur aðdráttaraf lið. Svo dæmi séu tekin þá mega leik­ menn ekki stíga á línuna en samt hefur það aldrei gerst í sögu hand­ boltans að horna­ eða línumenn séu ekki lentir í teignum þegar þeir loks kasta frá sér knettinum. Hug­ takið leiktöf virðist óskilgreint en tekur þó breytingum eftir því sem líður á leikinn. Reyndar virðast leikreglurnar í heild breytast þegar stutt er eftir af leiktímanum, sérstaklega þegar staðan er jöfn. Gula spjaldið er merkingarlaust. Það er enginn sjáanlegur munur á ruðningi og aukakasti. Það er ekki fótur fyrir ofan hné. Þegar leikmaður er „tekinn úr umferð“ þá gerir hann heiðursmannasam­ komulag við hitt liðið um að draga sig í hlé, lengst úti á velli. Leik­ kerfin eru nefnd eftir fyrrverandi kommúnistaríkjum og svo eru það skrefin, maður. Hversu mörg mega þau eiginlega vera? Verst er að krossinn, sem var það svalasta við íþróttina, hefur verið afnuminn. Í staðinn veifa dómarar bláu spjaldi, sem lítur út eins og debetkort. Það voru vond skipti. Markmennirnir hljóta að vera bilaðir og mikil er ábyrgð þjálfaranna sem ákváðu að setja Guðmund Hrafnkels, Bergsvein, Sigmar Þröst og Björgvin Pál milli stanganna þegar þeir voru í sjötta f lokki. „Heyrðu vinur, má ekki bjóða þér að láta kasta í þig grjóthörðum leðurbolta á 130 km hraða næstu 30 árin? Því oftar sem þú færð hann í þig, því betra.“ Magnað sport! Strákarnir okkar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.