Fréttablaðið - 21.01.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 7 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 2 1 . J A N Ú A R 2 0 2 0
Hlaðinn búnaði!
Volkswagen Crafter
Tilboðsverð
4.830.000 kr.
Volkswagen Crafter sendibíll. Sjálfskiptur.
Atvinnubílar
HEKLA · Laugavegi 170 · Sími 590 5000 · Volkswagen.is
án vsk.
Rautt blys logaði innan um fremur fámennan hóp fólks við Alþingishúsið síðdegis í gær, sem kominn var saman þar til mótmæla. Blysið kastaði rauðleitum bjarma á þinghúsið og dró fram
ævintýralegar skuggamyndir þeirra sem þar voru. Í gær kom þing saman á ný eftir jólaleyfi og þar eins og annars staðar er tilveran að komast í fastar skorður, þó seint sé. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
GARÐABÆR Fjölnota íþróttahús í
Garðabæ á sér langan aðdraganda.
Verkefnið var á hugmyndastigi
um árabil og deilt um staðsetn-
ingu hússins. Lengi vel var horft
til svæðisins í kringum núver-
andi athafnasvæði Stjörnunnar í
Ásgarði en að endingu var ákveðið
að heppilegri kostur væri að reisa
húsið í svokallaðri Vetrarmýri við
Vífilsstaði í Garðabæ.
Nokkur stærstu verktakafyrir-
tæki landsins tóku þátt í lokuðu
alútboði vegna framkvæmdanna
og urðu Íslenskir aðalverktakar hf.
hlutskarpastir með tilboð upp á 4,2
milljarða króna. Til samanburðar
var hæsta boð upp á 5,3 milljarða.
Húsið er teiknað af ASK arki-
tektum og öll verkfræðihönnun er
í höndum Verkís. Áætluð verklok
eru um mitt næsta ár. Jarðvegs-
framkvæmdir við húsið hófust í
lok febrúar í fyrra en fyrsta skóf lu-
stunga var tekin við hátíðlega
athöfn í maí.
Eins og nafnið gefur til kynna
mun íþróttahúsið rísa í mýri. Í ein-
földuðu máli gerðu upphaf legar
áætlanir ráð fyrir að boraðar yrðu
súlur niður á fast og plata síðan
steypt ofan á þær. Þegar vinna við
grunninn hófst kom hins vegar
í ljós að betrumbæta þurfti fyrri
lausn sem samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins mun þýða aukinn
kostnað við verkið. Gunnar Einars-
son, bæjarstjóri í Garðabæ, segist
þó fullviss um að sá kostnaður
lendi ekki á bæjarsjóði.
„Það er alveg rétt að þetta er f lók-
in framkvæmd og ýmsar aðstæður
koma upp sem bregðast þarf við.
Ég á von á því að lausn liggi fyrir
á næsta fundi byggingaraðila og
bæjaryfirvalda. Garðabær fór í alls-
herjarútboð vegna uppbyggingar-
innar sem þýðir að öll hönnun og
undirbúningsvinna var í höndum
verktaka og því eigum við ekki von
á því að verðið hækki,“ segir Gunn-
ar.
Hann vísar því á bug að umtals-
verð töf hafi orðið á verkefninu.
„Það eru í mesta lagi 1-2 mánuðir.
Þótt einhverjir kranar hafi ekki
verið á lofti í óveðrinu sem hefur
geisað undanfarið þá er það ekki
þar með sagt að verkið sé í kyrr-
stöðu,“ segir Gunnar.
Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri
ÍAV, vildi ekki tjá sig um stöðu
verkefnisins þegar eftir því var
leitað. – bþ
Meiri kostnaður lendi ekki á Garðabæ
Ýmis vandkvæði varðandi undirstöður nýs fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri í Garðabæ hafa gert það að verkum að mögulega þarf
að breyta áætlun í miðju verki. Gunnar Einarsson bæjarstjóri segir að ef kostnaður verður meiri muni það ekki lenda á bæjarsjóði.
Öll hönnun og
undirbúningsvinna
var í höndum verktaka og
því eigum við ekki von á því
að verðið hækki.
Gunnar Einarsson,
bæjarstjóri
Garðabæjar