Fréttablaðið - 20.12.2019, Side 2

Fréttablaðið - 20.12.2019, Side 2
Veður Áframhaldandi norðaustanátt í dag, víða 10-15 m/s, en 15-20 norðvestan til á landinu og einnig á Suðausturlandi um kvöldið. Slydda eða snjókoma norðan- og austan- lands, en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Hiti nálægt frostmarki, en hiti að 6 stigum sunnanlands. SJÁ SÍÐU 20 Íþróttafólk Reykjavíkur 2019 SAMFÉLAG „Ég var búinn að vera að prófa mig áfram í þessu í tvö ár en sagði svo upp í maí,“ segir Gísli Rafn Guðmundsson. Hann er með BS-gráðu í umhvefisskipulagi og meistaragráðu í arkitektúr og starf- aði sem borgarhönnuður í fimm ár þar til hann ákvað að breyta til nú í vor og elta sína nýju köllun. Andleg málefni eiga nú hug hans allan. „Ég fann einhvern veginn að ég var farinn að missa áhugann á faginu sem ég hafði haft svo mikla ástríðu fyrir og þrátt fyrir að vera í góðu starfi með fín laun þá varð ég að fylgja hjartanu,“ segir hann. „Það var stór ákvörðun fyrir mig að hætta og mér fannst það skrítið en á sama tíma hafði ég ekki val því þetta kallaði það mikið á mig,“ bætir hann við. „Þegar ég ákvað að gera þetta vissi ég ekkert hvernig það myndi enda. Ég hugsaði með mér að kannski yrði þetta hræðilegt og kannski draumi líkast og þetta er eiginlega eins og draumur. Ég vissi ekki að lífið gæti verið svona ótrúlega mikið ævin- týri,“ segir hann og bætir við að þrátt fyrir að hann vinni mikið sé hann sjaldnast þreyttur og honum líði eins og hann sé að leika sér en ekki vinna. Gísli leiðir bæði hugleiðslur og kakóathafnir. „Ég er með þrjár gerðir af hóptímum, allt í samstarfi við aðra aðila. Á þriðjudögum er ég með Athvarf fyrir hugann sem eru hugleiðslutímar, á mánu- og fimmtudögum er ég með svokallaða KAP-tíma og annan hvern miðviku- dag er ég með möntrukakó, þar sem við drekkum hreint kakó og kyrjum möntrur.“ Aðspurður að því hvort breyt- ingarnar í lífi hans hafi haft ein- Sagði upp vinnunni og stundar nú hugleiðslu Gísli Rafn Guðmundsson er lærður landslagsarkitekt og borgarhönnuður. Hann tók snarpa beygju í lífinu þegar hann sagði upp vinnunni og einbeitir hann sér nú að andlegum málefnum og stundar hugleiðslu af fullum krafti. hverjar fórnir í för með sér segir Gísli að svo sé en að þær séu þess virði. „Ég vissi að það myndu fylgja þessu fórnir en þetta snýst líka um fjárhagslegt frelsi og það er mikið frelsi í því að vera með innkomu úr ólíkum áttum. Ég átti engan vara- sjóð og hafði ekkert sparað en ég hafði komið mér þannig fyrir að ég fæ inn leigutekjur og svo þegar mig vantar pening get ég keyrt leigubíl. Sonur minn býr hjá mér aðra hverja viku svo að hina vikuna get ég nýtt tímann í það að keyra til dæmis,“ segir hann. „Þetta var stressandi en ég hugs- aði með mér að það væri betra fyrir okkur að ég sýni syni mínum að maður geti elt draumana og eigi ekki að láta neitt stoppa sig. Þetta er mín köllun og ég þurfti að fylgja henni. Kannski er þetta líka inn- blástur fyrir fólk til að finna leið til að lifa af því sem nærir það,“ segir Gísli. birnadrofn@frettabladid.is Gísli leiðir bæði hugleiðslu og möntrukakó. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þetta er mín köllun og ég þurfti að fylgja henni. Gísli Rafn Guðmundsson N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið K371 sófi Fáanlegt í leðri og tauáklæði, margir litir 3ja sæta 2ja sæta og stólar Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 STJÓRNSÝSLA Kolbrún Halldórs- dóttir, borgar f u llt r úi Flok k s fólksins, telur að skoða þurfi hvort óþarfa hindranir og bönn séu við lýði þegar kemur að aðgengi að borgarfulltrúum. Á borgar- stjórnarfundi í vikunni var lagt fram bréf Pawels Bartoszek, forseta borgarstjórnar, þar sem hann gerði athugasemd við að borgarfulltrúar væru myndaðir án þeirra vitneskju við athafnir daglegs lífs. Þar var vísað í mynd Fréttablaðs- ins í tengslum við fréttaflutning af kostnaði við fundi borgarstjórnar. Umrædd mynd sýndi Kolbrúnu gæða sér á andalæri í matsal Ráð- hússins en myndin var tekin í gegnum glugga á byggingunni. Áður hafði ljósmyndara blaðsins verið meinað að taka myndir af borgar- fulltrúum í mötuneytinu. Kolbrún lagði fram bókun vegna málsins á fundi borgarstjórnar. Segir hún að það hafi verið ákveðin reynsla að vera mynduð úr slíku launsátri og að myndin hafi látið hana líta illa út. Hún telur þó að skaðlaust hefði verið að leyfa myndatöku í sjálfum matsalnum enda vakti málið mikla athygli í fjölmiðlum. Nefnir hún annað dæmi um áhorf- endur sem sátu borgarstjórnarfund nýlega og klöppuðu á einum tíma- punkti á meðan á fundinum stóð. Segir Kolbrún að fólkið hafi verið ávítt og hótað brottvísun ef klappið myndi endurtaka sig. Í bókun sinni benti Kolbrún á að markmið borg- arstjórnar ætti að vera að tryggja gegnsæi og aðgengi. – bþ Skoða óþarfa boð og bönn Kolbrún Baldurs­ dóttir, borgar­ fulltrúi. Kraftlyftingamaðurinn Julian Jóhann Karl Jóhannsson og knattspyrnukonan Margrét Lára Viðarsdóttir voru í gær valin íþróttafólk Reykjavíkur. Stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur hefur frá árinu 1979 valið íþróttamann og -lið Reykjavíkur og var hátíðin nú haldin í fertugasta og fyrsta sinn. Körfuknattleikslið kvenna hjá Val og karla hjá KR voru valin íþróttalið Reykjavíkur. Verðlaunin voru veitt í Ráðhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN DÓMSMÁL Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða fyrrverandi starfsmanni Hag stofu Ís lands tæpar fimm milljónir króna auk dráttar- vaxta vegna ó lög mætrar upp sagnar. Hag stofan bar við að nauð syn- legt hefði verið að ráðast í skipu- lags breytingar til þess að bæta við þekkingu. Þetta taldi starfsmaðurinn vera á virðingu um að hann væri ekki talinn starfi sínu vaxinn. Sem opin berum starfs manni hefði Hag- stofunni borið skylda til að veita honum á minningu áður en til upp- sagnarinnar kom. Nánar á frettabladid.is. – gis Íslenska ríkið dæmt bótaskylt Uppsögn var dæmd ólögmæt. 2 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.