Fréttablaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 14
Planið var að
fjölskyldan myndi
flytja út til mín en þegar það
lá fyrir að það myndi ekki
ganga upp ákvað ég að snúa
aftur til Íslands.
2 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
mun betur en talið var að hann
myndi gera og það gleður mig mikið
að sjá hann vera kominn aftur í sitt
besta form eftir erfiðan tíma. Ég er
viss um að hann muni standa sig vel
á Evrópumótinu ef hann verður val-
inn í hópinn sem fer þangað. Elvar
Örn Jónsson hefur svo átt frábæra
leiki inn á milli en eins og eðlilegt
er skortir hann stöðugleika. Það
tekur ávallt fjóra til sex mánuði að
venjast því að spila í sterkari deild
og ég er þess fullviss að Elvar Örn
mun pluma sig vel eftir áramót. Ég
vona að hann verði í stóru hlutverki
með landsliðinu í Evrópumótinu og
komi með blússandi sjálfstraust til
okkar í lok janúar,“ segir Patrekur
um stöðu mála hjá Skjern.
„Nú ætla ég bara að koma heim,
hitta fjölskyldu og vini og eiga nota-
lega stund með þeim. Þar mun ég
hlaða batteríin fyrir seinni hluta
tímabilsins í Danmörku og svo er
markmiðið að skilja við Skjern á
sem bestan hátt. Það verður erfitt að
keppa við Álaborg sem er í ákveðn-
um sérflokki í deildinni. Við erum
hins vegar með lið sem getur lagt öll
lið í deildinni að velli að mínu mati
og erum ekki ákjósanlegur kostur
sem andstæðingur í úrslitakeppni
takist okkur að tryggja okkur sæti
þar. Það hefur verið ákveðið að
aðstoðarþjálfari minn taki við af
mér í vor og hann mun þar af leið-
andi fá aukið hlutverki á komandi
mánuðum. Samvinna okkar hefur
verið góð og hann hefur fengið að
koma sínum sjónarmiðum á fram-
færi. Það verða því engin viðbrigði
fyrir leikmennina að rödd hans
heyrist meira og meira eftir því sem
líður á tímabilið,“ segir þjálfarinn
um næstu skref hjá sér og liði sínu.
„Það hafa engin félög haft sam-
band við mig og það er algerlega
óráðið hvað tekur við hjá mér. Ég hef
áhuga á að starfa áfram við eitthvað
tengt handboltanum og ég hef fjár-
fest töluvert í mínum þjálfaraferli.
Það kemur samt ýmislegt annað en
meistaraflokksþjálfun til greina
Ég hafði til að mynda mjög gaman
af því að starfa í akademíunni hjá
Selfossi og það að vinna í því að
þróa feril ungra og efnilegra leik-
manna gaf mér afar mikið.
Ég er opinn fyrir öllum góðum
hugmyndum en ég er þannig þenkj-
andi að ef ég tek starf að mér vil ég
gera það af heilum hug en ekki hafa
það sem hlutastarf,“ segir hann um
framhaldið. hjorvaro@frettabladid.is
SPORT
KATLA FUND
Société d’Investissement à Capital Variable
9, boulevard Prince Henri - L-1724 LUXEMBOURG
R.C.S. Luxembourg B 96.002 - (the “SICAV”)
NOTICE TO THE SHAREHOLDERS
Shareholders are informed that the board of directors has decided following changes:
- amendment of the settlement cycle applicable to subscriptions and redemptions of the the sub-fund KATLA FUND – Global Value
Previous methodology New methodology
Subscriptions and redemptions must be fully paid up within
3 full bank business days in Luxembourg following the
applicable Valuation Day.
Subscriptions and redemptions must be fully paid up within
2 full bank business days in Luxembourg following the
applicable Valuation Day.
These changes will take effect on 20 December 2019.
Shareholders are further informed that as from the date of this publication and unless required otherwise by the applicable
legislation, notices to shareholders will no longer be published in the media but will be communicated via letter addressed to the
registered shareholders.
An updated prospectus is available on request at the registered office of the SICAV and on www.conventum.lu.
Luxembourg, 20 December 2019 The Board of Directors
HANDBOLTI Patrekur Jóhannesson
mun flytja til Íslands næsta sumar
en hann mun láta af störfum sem
þjálfari karlaliðs Skjern í hand-
bolta þegar yfirstandandi leiktíð
lýkur. Skjern situr í fjórða sæti
dönsku úrvalsdeildarinnar í hand-
bolta karla með 19 stig en deildin
er einkar jöfn á þessu keppnistíma-
bili og hart barist um sætin átta í
úrslitakeppninni.
„Planið var að fjölskyldan myndi
flytja út til mín á næsta ári en þegar
það lá fyrir að það myndi ekki
ganga upp ákvað ég að snúa aftur til
Íslands. Þó svo að það sé leiðinlegt
að ná ekki að halda áfram með það
verkefni sem við vorum byrjaðir á
hérna í Skjern þá var ákvörðunin
ekki erfið. Fjölskyldan er ávallt í for-
gangi í öllum mínum ákvörðunum
og ég gat ekki ímyndað mér að búa
lengur fjarri þeim. Forráðamenn
liðsins voru svekktir með þessa
ákvörðun en þetta var gert í miklu
bróðerni,“ segir Patrekur í samtali
við Fréttablaðið um fyrrgreinda
niðurstöðu.
„Ég er þannig þjálfari að milli mín
og leikmanna myndast mikil tengsl
og það verður vissulega erfitt að
rjúfa þau bönd eftir einungis eins
árs samvinnu. Gengi liðsins hefur
verið undir væntingum en samt
fann ég aldrei fyrir því að það hefði
áhrif á samband mitt við leikmenn-
ina. Þetta er gríðarlega sterk deild
og allir leikir mjög erfiðir þannig
að þú getur ekki gengið að neinum
stigum vísum. Það kom mér á óvart
að sjá hversu tæknilega góðir leik-
menn eru í þessari deild og hversu
hraðinn er mikill í leikjunum,“
segir hann um kynni sín af Skjern
og dönsku úrvalsdeildinni.
Jákvæðir hlutir þrátt fyrir
vonbrigði með stigasöfnun
„Þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki
verið á þann veg sem búist var við
og staðan í deildinni sé ekki sú sem
sérfræðingar spáðu þá er margt
jákvætt sem hægt er að taka úr fyrri
hluta leiktíðarinnar. Björgvin Páll
Gústavsson hefur til dæmis leikið
Ekki með neitt tilboð í höndunum
Tilkynnt var í gær að Patrekur Jóhannesson myndi hætta störfum sem þjálfari karlaliðs danska úrvalsdeildarfélagsins Skjern í hand-
bolta næsta sumar. Ráðgert hafði verið að fjölskylda Patreks myndi flytja til Danmerkur á næsta ári en þau áform gengu ekki upp.
Patrekur Jóhannesson á hliðarlínunni í leik með danska úrvalsdeildarliðinu Skjern en hann mun yfirgefa herbúðir liðsins næsta sumar. MYND/SKJERN
FÓTBOLTI Enskir fjölmiðlar hafa
verið að fjalla um fjárhagsvandræði
Aston Villa en samkvæmt þeim gæti
félagið orðið annað félagið í sögu
ensku úrvalsdeildarinnar til að
brjóta Financial Fair Play, eða fjár-
málareglur UEFA.
Manchester City var sektað um
49 milljónir punda árið 2014 fyrir að
brjóta reglurnar og aftur núna fyrir
skömmu en Villa gæti þurft að selja
leikmenn til að rétta bókhaldið
af. Liðið keypti leikmenn fyrir 130
milljónir punda fyrir tímabilið og
þarf að skera verulega af launa-
kostnaði.
Eru miðlar í Bretlandi sann-
færðir um að einn dáðasti sonur
Birmingham, Jack Grealish, gæti
bjargað félaginu frá sektum eða
jafnvel því sem verra væri, að
félagið missti stig, með því að vera
seldur. Grealish hefur verið frábær
með liðinu og það yrði einfaldasta
lausnin að selja fyrirliðann. Sumir
segja að Aston Villa þurfi að spara
32 milljónir punda og er ljóst að
Grealish myndi fara langt með og
jafnvel fylla upp í það gat en nægur
áhugi er á pilti. – bb
Fyrirliðinn gæti bjargað félaginu
Jack Grealish hefur skorað fjögur mörk í deildinni í vetur. NORDICPHOTOS/GETTY
HVER VANN?
Sportið á frettabladid.is færir þér
allar nýjustu fréttirnar úr heimi
íþróttanna.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook