Fréttablaðið - 20.12.2019, Page 18

Fréttablaðið - 20.12.2019, Page 18
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is? Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is. Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot Hjartans þakkir fyrir vináttu, stuðning og hlýhug við fráfall eiginmanns míns og besta vinar, föður okkar og sonar, Páls Heimis Pálssonar Bryndís Skaftadóttir Unnur Aníta Stefán Birgir Benedikt Arnar Hrafn Jökull Regína Gréta Páll Jökull Páll Friðriksson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma Ólína Hólmfríður Halldórsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 15. desember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Ingvi Á. Hjörleifsson Halldór Ingvason Hjördís Ólafsdóttir Hjördís Ingvadóttir Ómar Kristjánsson Árni Ingvason Magnea Bjartmarz Gróa B. Ingvadóttir Brynjólfur Yngvason barnabörn og barnabarnabörn. Faðir minn, Jóhann Eyfells myndlistarmaður og prófessor, lést á hjúkrunarheimili í Fredericksburg í Texas þann 3. desember síðastliðinn. Útför fer fram frá Dómkirkjunni 27. desember klukkan 15.00. Ingólfur Eyfells og aðrir aðstandendur. Elskulegi eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Eiríksson vörubifreiðastjóri, Garðafelli, Eyrarbakka, lést að kvöldi 14. desember. Útförin fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 28. desember kl. 13. Guðfinna Sveinsdóttir Trausti Sigurðsson Sigríður Sæmundsdóttir Viðar Sigurðsson Guðbjörg Bjarnadóttir Soffía Jóhannsdóttir Dísa Sigurðardóttir Eygló Alda Sigurðardóttir Sigvard Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Dýrunn Ragnheiður Steindórsdóttir (Día) lést í Reykjavík 9. desember. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 27. desember kl. 13. Sverrir Haukur Halldórsson Anna Rut Sverrisdóttir Birgir Þórarinsson Eydís Dóra Sverrisdóttir og barnabörn. Það er alltaf svolítið skrítið að koma heim úr erfiðum aðstæðum, það tekur smá tíma að aðlagast, ekki síst í jólaandanum. En ég fæ góðan stuðning bæði frá fjölskyldunni og Rauða krossinum á Íslandi,“ segir Ívar Schram, sem kom heim úr hjálparstörfum á Bahamaeyjum í byrjun vikunnar. Það var  1. september sem fimmta stigs fellibylurinn Dorian reið fyrst yfir Bahamaeyjar og olli þar manntjóni og miklum skaða. Ívar fór út 13. nóvember og hefur verið þar við endurreisnar- starf síðan. „Ég var hluti af „þriðju hjálp“ Rauða krossins og gekk inn í skipulagt starf að mestu. Þegar ég kom var fjöldi fólks snúinn aftur til heimila sinna. Enn voru þó margir í neyðarskýlum, fjölda- hjálparstöðvum eða húsnæði ættingja og ég fór á þessi svæði sem fólkið dvaldi á. Mitt hlutverk fólst í að koma á sam- bandi og samvinnu við það því lögð er áhersla á að hafa þolendur ham- faranna  með í ráðum og miðla upp- lýsingum.“ Ívar segir Bahameyinga sem urðu fyrir mestum áföllum skiptast í efn- aða Kana á eftirlaunum sem eigi þar sitt annað heimili, verkafólk sem einkum vinni kringum túrisma og óskráða inn- flytjendur frá Haítí. Þeir síðastnefndu hafi gert það að verkum að tölur voru á reiki um fjölda þeirra sem misstu heim- ili sín. „Fólk missti ekki bara heimili sín og ástvini heldur hrundi allur iðnaður og þar með atvinnan,“ tekur hann fram. Fellibylurinn olli mestum skemmdum á eyjunum Apaco og Grand Bahama, að sögn Ívars. „Fólkið sem ég hitti á Grand Bahama sagði mér að það hefði verið búið undir fellibylinn en ekki flóðin sem fylgdu í kjölfarið.  Hann segir Alþjóða Rauða krossinn veita þeim sem misstu hús sín og möguleika til að af la lífs- viðurværis fjárhagsaðstoð til að mæta grunnþörfum. „Í dag erum við búin að styðja við 1.700 heimili með Visa-kort- um og/ eða greiðslu á leigu. Á svæðum sem urðu fyrir mestum skemmdum eru fiskisamfélög þar sem bátarnir og veið- arfærin töpuðust. Við þurfum að hjálpa til við að endurreisa tvö slík samfélög.“ Þú segir „við“, býstu við að fara aftur út? spyr ég. „Það kemur til greina en er ekki alveg komið á hreint. Verkefnin eru ærin. Landsfélag Rauða krossins á Bahamaeyjum eru auðvitað hjálparsam- tökin sem voru í landinu fyrir, og eru þar núna og verða þar alltaf en Alþjóða- samband Rauða krossins er með neyðar- beiðni og hún nær til ársins 2020. Það kemur vel til greina að Rauði krossinn á Íslandi styðji áfram við þessar neyð- araðgerðir.“ gun@frettabladid.is Við þurfum að hjálpa til Ívar Schram er nýkominn heim frá Bahamaeyjum eftir að hafa sinnt þar hjálparstörf- um í rúman mánuð á vegum Rauða krossins, vegna afleiðinga fellibyls í september. „Fólk missti ekki bara heimili sín og ástvini heldur hrundi allur iðnaður og þar með atvinnan,“ segir Ívar Schram. Eyðileggingin var mikil á Bahamaeyjum eftir að fellibylurinn Dorian gekk yfir þær. Ívar útskýrir næstu skref fyrir íbúum. 2 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R18 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.