Fréttablaðið - 20.12.2019, Side 44
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÉG GÆTI EKKI VERIÐ
ÁNÆGÐARI MEÐ
ÚTKOMUNA OG VERKEFNIÐ.
MIKILVÆGAST AF ÖLLU ER
AUÐVITAÐ AÐ LEGGJA ÞESSUM
GÓÐU SAMTÖKUM LIÐ.
Tryggðu þér áskrift
Í KVÖLD KL. 21:30
Í BEINNI FRÁ ÖLVER
2 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R32 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Ég er að rækta listamann-inn í mér. Hann er allt öðruvísi en fótbolta-maðurinn í mér,“ segir Rúrík og hlær.Fyrir einu og hálfu ári
höfðu Barnaþorp SOS samband við
Rúrik og báðu hann um að gerast
velgjörðarsendiherra fyrir sam-
tökin. Hann þurfti ekki hugsa sig
tvisvar um.
„Samtökin eru gríðarstór um
allan heim en á Íslandi finnst mér
vanta að ýta undir sýnileika þeirra
og að fólk þekki til þeirra, enda
vinna þau svo ótrúlega mikilvægt
starf. Mig langaði svo mikið að
leggja mitt af mörkum, ekki bara
monta mig af því að vera velgjörðar-
sendiherra og gera svo ekki rassgat.
Mig langaði að gera eitthvað sem
myndi vekja athygli á samtökun-
um. Þá fékk ég þessa hugmynd, að
hanna bol og selja til styrktar sam-
tökunum,“ segir Rúrik.
Lengi haft áhuga á hönnun
Hann segist ekki hafa hannað
áður, en hafa lengi haft mikinn
áhuga á tísku.
„Ég segi það bara hreint út.
Það að hanna, það er algjörlega
eitthvað sem mig langar að gera
meira af. Ég geri mér samt grein
fyrir því að ég hafi kannski
ekki tæknina sem til þarf alveg
á hreinu, ég þyrfti alltaf hand-
leiðslu einhvers faglærðs. Svo
er það líka þannig að framleiðsla
á svona f lík og hönnunarferlið,
þetta er mjög flókið dæmi. Þannig
að ég sá ekki fyrir mér að geta gert
þetta einn. Ég hef unnið náið með
66°Norður í gegnum tíðina. Eða þú
veist, farið í nokkrar myndatökur.
Ekkert meira en það í rauninni,“
segir hann og hlær. En sam-
starfið hafi þó gengið
farsællega og því
ákvað Rúrik að
hafa samband við fatamerkið.
„Þau tóku svo ótrúlega vel í þetta
og fannst þetta frábær hugmynd. Á
fyrsta fundi útskýrði ég fyrir þeim
nákvæmlega hvernig ég vildi hafa
bolinn. Okkur langaði að hanna
hann þannig að hann myndi höfða
til sem f lestra. Svo voru nokkur
smáatriði sem mig langaði að koma
að í hönnun hans. Síðan fórum við í
myndabók SOS
og skoðuð-
um hvaða
l ó g ó
s a m -
tökin
hafa
verið að vinna með. Þar var þetta
blóm sem höfðaði mest til okkar og
okkur langaði að hafa villt og galið
um allan bolinn, sem mér finnst
koma mjög vel út. Ég er mjög stoltur
af útkomunni.“
Allt útpælt
Rúrik segir það ekki svo einfalt að
einhverjir hvítir einfaldir bolir hafi
verið dregnir af lager og blómunum
hent á.
„Nei. Ég vildi hafa síddina svona,
víddina nákvæma, litinn akkúrat
og hálsmálið í ákveðnum stíl. Ég
vissi alveg nákvæmlega hvernig ég
vildi hafa efnið, ég var í raun alveg
búinn að sjá þetta fyrir mér. Hönn-
unarferlið var í sjálfu sér ekki það
langt því ég vissi alveg hvernig ég
vildi hafa þetta. Síðan koma sýnis-
horn til landsins og það var ýmis-
legt sem þurfti að laga. Ég var með
svo ótrúlega skýra hugmynd um
hvernig ég vildi hafa bolinn, hvert
einasta smáatriði var útpælt,“ segir
Rúrik.
Hann segir vissulega nokkuð til
í því að hann hafi verið að hanna
sinn draumabol, bol sem hann
myndi sjálfur kaupa.
„Ég hef svo oft í gegnum tíðina
keypt mér hvíta boli og hugsað:
„Vá hvað ég væri til í að þetta væri
svona eða öðruvísi.“ Þess vegna tók
framleiðsluferlið sjálft lengri tíma
því við gerðum alveg nýjan bol frá
grunni. Mér finnst þetta nefnilega
ekki bara f lottur bolur heldur er
ákveðið „statement“ að ganga í
honum,“ segir Rúrik.
Bolurinn fæst í verslunum
66°Norður og rennur allur ágóði af
sölu hans til SOS Barnaþorpa.
steingerdur@frettabladid.is
Rúrik hannaði bol
fyrir góðan málstað
Fótboltakappinn landsþekkti Rúrik Gíslason rær á ný mið og
hannar bol með 66°Norður, ágóði af sölu hans rennur til SOS
Barnaþorpa. Rúrík hefur lengi haft áhuga á hönnun og tísku.