Skessuhorn - 03.04.2019, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 3. ApRÍl 20192
Kostnaður Reykjavíkurborgar og
Akraneskaupstaðar vegna ferjusigl-
inga milli Akraness og Reykjavíkur
árið 2017 nam átta þúsund krónum
á hvern farþega.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu
fram fyrirspurn í borgarráði í febrú-
ar og óskuðu eftir upplýsingum um
fjölda farþega sem sigldi með ferj-
unni á meðan Flóasiglingum stóð.
Í svari frá skrifstofu eigna og at-
vinnuþróunar Reykjavíkurborgar
kemur fram að samtals sigldu 3.652
farþegar með ferjunni frá júní og
fram í nóvember 2017, þegar sigl-
ingum var hætt.
Sem kunnugt er sömdu Akranes-
kaupstaður og Reykjavíkurborg um
siglingarnar við Sæferðir ehf. Um
var að ræða tilraunaverkefni til hálfs
árs sem fól í sér að sveitarfélögin
tvö studdu verkefnið um samtals 30
milljónir króna. Sé litið til fjölda far-
þega var kostnaður sveitarfélaganna
vegna siglinganna rúmar átta þús-
und krónur á hvern farþega.
Almenn ánægja var með sigling-
arnar meðal notenda ferjunnar á
sínum tíma, sem og hjá stjórnend-
um Akraneskaupstaðar og Sæferða.
Vonir stóðu til að geta haldið sigl-
ingum áfram en ekkert varð hins
vegar af því. Ferjan sem notuð var
fékk ekki leyfi til áframhaldandi sigl-
inga og ekki hafa verið áætlanasigl-
ingar yfir Faxaflóann síðan.
kgk
Reynir Hauksson gítarleik-
ari heldur Flamencotónleika
víða um Vesturland næstu
daga. Reynir býr í Granada á
Spáni þar sem hann starfar
sem Flamencogítarleikari.
Á morgun er spáð sunnanátt
3-10 m/s og dálítil rigning
eða slydda verður af og til,
einkum á Vesturlandi, en
bjartviðri á Norður- og Aust-
urlandi. Hiti 0-5 stig en vægt
frost austanlands. Á föstu-
dag er gert ráð fyrir hæg-
ari austlægri eða breytileg
átt og léttskýjað, en skýjað
með köflum um landið norð-
austanvert. Hiti breytist lítið.
Frá laugardegi til mánudags
er spáð fremur hægari aust-
lægri átti. Skýjað og yfirleitt
þurrt á Austurlandi en ann-
ars bjart og léttskýjað. Hiti
0-5 stig að deginum.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns hvort lesendur
séu ánægðir í vinnunni. 47%
eru oftast ánægðir en 23% er
alltaf ánægðir. Samtals gerir
það 70% þeirra 620 sem þátt
tóku. 15% eru ekki ánægðir
í vinnunni og 14% svarenda
eru ekki í vinnu.
Í næstu viku er spurt:
Telur þú að koma hefði átt
rekstri WOW air til bjargar?
Borgnesingurinn Kristín Sif
Björgvinsdóttir vann til silf-
urverðlauna á Norðurlanda-
móti í hnefaleikum um liðna
helgi. Þetta er annað árið
í röð sem Kristín Sif vinn-
ur silfrið á þessu sama móti.
Kristín Sif er Vestlendingur
vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Framhalds-
skólaball
VESTURLAND: Mennta-
skóli Borgarfjarðar heldur
skólaball fyrir framhaldsskóla-
nema í Hjálmakletti í Borg-
arnesi fimmtudaginn 4. apríl.
Þangað er auk nemenda skól-
ans boðið að mæta nemendum
í FVA, Fjölbrautaskóla Mos-
fellsbæjar og Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði.
-mm
Í nefið þeir
áfram taka
VESTURLAND: Ekkert
rof verður á framboði á ís-
lensku neftóbaki vegna bruna
í framleiðsluhúsnæði ÁTVR á
Stuðlahálsi aðfararnótt mánu-
dags. Bruninn reyndis apríl-
gabb á fréttavef Skessuhorns á
mánudaginn og geta unnend-
ur íslensks neftóbaks því andað
léttar – allavega hvað það snert-
ir. Ekki er vitað hvort einhverjir
hafi hlaupið apríl og hamstrað
neftóbak í stórum stíl, en fyr-
ir liggur að í nokkrum tilfell-
um tóku hjörtu manna nokk-
ur auka-aprílslög vegna stund-
ar áhyggja af meintum skorti.
-mm
Þjófnaður í skóla
AKRANES: lögreglunni
á Vesturlandi barst tilkynn-
ing um þjófnað í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi
í vikunni sem leið. Dýr úlpa í
eigu nemanda hafði verið tek-
in ófrjálsri hendi sem og de-
betkort sem var í vasa úlp-
unnar. Kortið fannst á leikvelli
skammt frá en flíkin er ófund-
in. Eftirlitsmyndavélar eru í
fjölbrautaskólanum og málið
er til rannsóknar. -kgk
Óhöpp og slys
HVALFJ.SV: Umferðarslys
varð við Grundartanga síðdeg-
is þriðjudaginn 26. mars þegar
einu ökutæki var ekið í veg fyr-
ir annað. Ökumenn reyndust
lítið slasaðir en voru engu að
síður fluttir á slysadeild til að-
hlynningar. Vart varð við leka
á olíu og bensíni á slysstað og
þurfti að kalla til slökkvilið til
að hreinsa vettvanginn. Bif-
reiðarnar eru mikið skemmd-
ar og þurfti að flytja þær á
brott. Húsbíll fauk á hliðina
við Rauðfeldsgjá skammt frá
Arnarstapa á miðvikudaginn
síðasta. Bíllinn var kyrrstæður
á bílastæði og mannlaus þeg-
ar óhappið varð. Ferðamönn-
unum sem leigt höfðu bílinn
var ekið að Arnarstapa. Bílvelta
varð við Hraunfossa í Borgar-
firði aðfararnótt sunnudags.
Ökumaður kvaðst hafa feng-
ið högg á annað framhjól bíls-
ins með þeim afleiðingum að
hann missti stjórn á bílnum,
fór út af veginum og valt. Eng-
in slys urðu á fólki. Á mánu-
daginn varð einnig bílvelta á
Holtavörðuheiði. Ökumaður
missti stjórn á bíl sínum í hálku
og fór tvær veltur. Tveir voru
í bílnum og sluppu þeir báðir
ómeiddir. Þá var tilkynnt um
minniháttar árekstur á Akra-
fjallsvegi mánudaginn 1. apríl.
-kgk
HB Grandi, dótturfélag þess Norð-
anfiskur, Íslenska gámafélagið og
Samskip undirrituðu á fimmtudag
umhverfisyfirlýsingu sem snýr að
endurvinnslu og útflutningi á frauð-
plasti. Verkefnið byggir á frauð-
pressuvél sem staðsett er í Kistunni,
sorpflokkunarstöð HB Granda á
Akranesi. Með vélinni má minnka
rúmtak fiskikassanna um 95%. Með
því að pressa frauðplastið gefst tæki-
færi til að flytja það til endurvinnslu
erlendis. Síðastliðið vor komust HB
Grandi og Íslenska Gámafélagið í
kynni við kínverskt fyrirtæki sem
hafði áhuga á að kaupa allt frauð-
plast sem til fellur í starfsemi félags-
ins. Með samtarfi HB Granda,
Norðanfisks, Íslenska gámafélags-
ins og Samskipa var fyrsti gámur-
inn af pressuðu frauðplasti fluttur út
til Malasíu á fimmtudaginn, samtals
sjö tonn. Þar verður plastið notað til
að framleiða meðal annars mynda-
og speglaramma. „Með þessu verk-
efni er lagður grunnur að raun-
hæfri lausn til að endurnýta úrgang
og skapa verðmæta. Markmið allra
þriggja fyrirtækjanna er að vera leið-
andi í umhverfismálum,“ segir í frétt
á vef HB Granda. „Að mörgu er að
hyggja í þessum efnum og mikilvægt
að vera vakandi fyrir áhugaverðum
tækifærum sem geta dregið úr kol-
efnisfótspori fyrirtækja.“
kgk
Stíga vistvæn skref og
pressa frauðplast
Frá undirritun samningsins. F.v. Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Samskipa, Sigurjón
Gísli Jónsson, framkvæmdastjóri Norðanfisks og Jón Þórir Franzson, forstjóri Íslenska
gámafélagsins. Ljósm. HB Grandi.
Greiddu átta þúsund
með hverjum farþega
Akranesferjan siglir inn í höfnina á Akranesi sumarið 2017. Ljósm. úr safni.
Starfsmenn Ásbyrgis voru á ferðinni í
Grundarfirði á laugardaginn og voru
við hannyrðir hjá Togga í lavaland
þann dag. Eftir að hafa smíðað hjá
Togga fór hópurinn og kíkti á lista-
manninn lúðvík Karlsson, eða li-
ston, sem hefur aðstöðu á svæðinu.
Allir höfðu mjög gaman að heimsókn-
inni enda margt forvitnilegt að sjá þar.
liston er duglegur og nóg að sjá á
verkstæðinu hjá honum sem er nánast
alltaf opið og heitt á könnunni. tfk
Starfsmenn Ásbyrgis heimsóttu Liston
Hópurinn stillti sér upp með Liston þegar ljósmyndari kíkti í heimsókn.