Skessuhorn - 03.04.2019, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 3. ApRÍl 20196
Lagt öfugum
megin
AKRANES: lögregla
sektaði ökumann bifreiðar
sem lagt hafði bíl sínum á
röngum vegarhelmingi og
þar að auki við gangbraut
á Akranesi á fimmtudag-
inn. lögregla kveðst langt
því frá ánægð með svona
bifreiðastöður. Þær skapi
hættu fyrir gangandi veg-
farendur og þá ekki síst
börn, sem sjá illa út á göt-
una ef þau ætla yfir og þar
að auki sjá ökumenn þau
illa á bakvið bílana ef þeim
er lagt við gangbrautina.
lögregla minnir einnig á
að fjársekt við broti sem
þessu nemur 20 þús. krón-
um. -kgk
Víma, ölvun
og fleira
AKRANES: lögregla
hafði afskipti af ökumanni
í Borgarnesi seint á föstu-
dagskvöld. Sá reyndist vera
ölvaður undir stýri. Um
miðjan dag á mánudag var
annar ökumaður stöðvað-
ur og reyndist hann aka án
ökuréttinda og undir áhrif-
um ávana- og fíkniefna.
Tilkynnt var um lausa hesta
á Snæfellsnesvegi við Kol-
beinsstaði í vikunni. Þrem-
ur gaskútum var stolið við
Hreðavatn um fjögurleytið
á mánudaginn. Málið er til
rannsóknar. Tilkynnt var
um vélsleða sem ekið var á
miklum hraða upp og nið-
ur götu á Akranesi í vik-
unni sem leið. Ökumaður
sleðans fannst ekki en lög-
regla minnir á að óheimilt
er að aka vélsleða í þéttbýli
og slíkt getur skapað hættu.
Að lokum má geta þess að
lögregla var með skólaeft-
irlit við bæði Brekkubæj-
arskóla og Grundaskóla á
Akranesi í vikunni sem leið.
-kgk
Ekið of geyst
VESTURLAND: Tölu-
vert var um hraðakstur
í umdæmi lögreglunn-
ar á Vesturlandi í vikunni
sem leið. Allnokkrir voru
stöðvaðir á hraða á bilinu
110-118 km/klst., lang-
flestir á Vesturlandsvegi
þar sem hámarkshraði er
90 km/klst. Sá sem hraðast
ók var tekinn á 124 km/klst.
Þar voru á ferðinni erlend-
ir ferðamenn sem þurftu að
greiða sektina á staðnum.
lögregla segir þetta allt of
mikinn hraða og hraðakst-
ur hafi verið allt of tíður í
vikunni sem leið, sérstak-
lega í ljósi þess að færið hafi
ekki verið nógu gott und-
anfarið. lögregla minnir
á að umferðareftirlit í um-
dæminu er stöðugt, ekki
aðeins með hraðamynda-
vélum heldur einnig á bæði
merktum og ómerktum
lögreglubifreiðum. Mark-
miðið með umferðareft-
irliti lögreglu er að halda
ökuhraðanum niðri.
-kgk
Ekið á bíl í basli
HOLTAV.H: Umferðaró-
happ varð á Holtavörðuheiði
aðfaranótt þriðjudags. Hringt
var eftir aðstöð lögreglu
vegna bifreiðar á norðurleið
sem hafði fests í snjó og hálku
í brekku. Fimm voru í bíln-
um. Ökumaður reyndi að losa
bílinn og snúa við en á með-
an var lögregla í sambandi við
farþega bílsins símleiðis. Á
meðan á þessu stendur heyr-
ir lögreglumaður hróp og
köll í símanum. Flutningabif-
reið hafði verið ekið á bílinn
þar sem hann þveraði veg-
inn. Ökumaður flutningabif-
reiðarinnar sá ekki bílinn fyrr
en of seint og gat ekki numið
staðar, með fyrrgreindum af-
leiðingum. Hálka og ísing var
á svæðinu þegar slysið varð.
Allir reyndust með meðvit-
und en blæddi úr höfði eins.
Sjúkrabíll var sendur á stað-
inn og viðbragðsaðilar fluttu
alla fimm farþega bifreiðar-
innar sem ekið var á í Borg-
arnes þar sem þeir fengu
læknishjálp. Bifreiðin reynd-
ist óökuhæf eftir slysið. Öku-
maður flutningabílsins var
ómeiddur og gat haldið för
sinni áfram. -kgk
Fastir í snjó
SNÆFELLSNES: leið-
indaveður var á Snæfellsnesi
á fimmtudag og gerði það
ferðamönnum erfitt fyrir á
ferðalögum sínum um lands-
hlutann. Ferðamenn sátu
fastir í snjó á Jökulhálsleið
um hádegisbilið og seinna
sama dag barst lögreglu til-
kynning um ferðamenn sem
sátu fastir í Kolgrafafirði. Í
báðum tilfellum var haft sam-
band við bílaleigurnar sem
sendu þjónustuaðila á staðinn
að hjálpa fólkinu. lögregla
og viðbragðsaðilar aðstoða
ekki fasta ferðalanga nema í
neyð. Fleiri atvik sem þessi
komu upp í vikunni sem leið,
enda færðin ekki eins og best
verður á kosið. -kgk
Heilbrigðisráðuneytið hefur nú svar-
að beiðni hjúkrunar- og dvalarheim-
ilisins Höfða frá 24. október 2017,
sem ítrekað var í janúar síðastliðin-
um, þar sem farið var fram á að fjölga
dagdvalarrýmum á Höfða um fimm
og að breyta tíu almennum dagdval-
arrýmum í fimm sérhæfð dagdvalar-
rými fyrir fólk með heilabilun. Í svari
ráðuneytisins er orðið við beiðni um
fjölgun fimm dagdvalarrýma á Höfða
en fjölgunin er gerð með þeim hætti
að fimm ónýttar rekstrarheimild-
ir til dagdvalarrýma verða færðar
frá öðrum stöðum innan heilbrigð-
isumdæmis Vesturlands þangað sem
þörfin er mest, þ.e. á Höfða. Um er
að ræða tvær rekstrarheimildir dag-
dvalarrýma á Jaðri í Ólafsvík, tvær
í Barmahlíð á Reykhólum og eina í
Fellaskjóli í Grundarfirði. mm
Fimm dagdvalarrými færð að
Höfða frá öðrum á Vesturlandi
Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur
komið upp nýju hundagerði í Borg-
arnesi. Gerðið er staðsett við þjóð-
veginn á milli leikskólans Kletta-
borgar og tjaldsvæðisins við Borg-
arvog. Hundaeigendur geta nýtt
gerðið til að leyfa hundunum sín-
um að hlaupa um og leika sér. Þá
eru eigendur beðnir um að hreinsa
upp eftir hundana sína og ganga vel
um gerðið. Við hliðið inn í gerðið
er ruslatunna sem ætti að auðvelda
eigendum að halda gerðinu hreinu.
arg
Hundagerði sett upp í Borgarnesi
Nýtt hundagerði í Borgarnesi.
Á hliðinu að gerðinu er skilti með reglum um umgengni.