Skessuhorn


Skessuhorn - 03.04.2019, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 03.04.2019, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 3. ApRÍl 20198 Stungið af frá tjóni VESTURLAND: Að kvöldi miðvikudagsins 27. mars var til- kynnt um tjón á bíl við Ennisbraut í Ólafsvík. Eigandi bifreiðarinnar hafði farið í sund milli kl. 16 og 18 og lagt bíl sínum á bílastæðinu norðan sundlaugarinnar á meðan. Þegar hann kom úr lauginni tók hann eftir því að ekið hafði ver- ið á bílinn, en sá sem olli tjón- inu var hvergi sjáanlegur og eng- in vitni að atvikinu. Sambærilegt atvik átti sér stað á Vestfjarðavegi við Króksfjarðarnes á föstudag. Þar sem tveir bílar mættust skullu speglar þeirra saman og brotnuðu af. Annar ökumaðurinn stöðvaði hins vegar ekki för sína, heldur ók ótrauður áfram. lögregla minnir á að það er óheiðarlegt að stinga af frá tjóni. Sé það gert situr eig- andi bílsins sem verður fyrir tjóni uppi með allan viðgerðarkostn- að. Þá má einnig geta þess að ef stungið er af frá vettvangi um- ferðaróhapps eða slyss getur slíkt varðað við lög, ef vitni kunna að gefa sig fram eða lögregla finnur þann sem gerðist uppvís að slíku, eins og áður hefur verið sagt frá í Skessuhorni. Við slíkri háttsemi liggja fjársektir. -kgk Tilkynni strax um óhöpp VESTURLAND: Aðstoðaryfir- lögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi kom að umferðaró- happi á mánudag. Þar hafði bíll farið út af undir Hafnarfjalli og var heppinn að velta ekki. Öku- maður bílsins var erlendur ferða- maður, einn á ferð. lögreglu- þjónninn veitti því athygli að margir óku framhjá vettvangin- um. Hann segir töluvert um að tilkynningar um óhöpp berist lögreglu seint. lögregla vill því íreka við fólk að það tilkynni lög- reglu strax ef það verður vitni að óhappi og athugi hvort þeir sem lenda í því séu heilir á húfi. Ekki sé hægt að gefa sér að fólk sé heilt á húfi. Vegfarendur eru því hvattir til að tilkynna strax um slys og óhöpp og veita aðstoð ef þess er nokkur kostur. -kgk Íbúðalánasjóði skipt upp LANDIÐ: Ríkisstjórnin sam- þykkti á fundi sínum í liðinni viku tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barna- málaráðherra, um að Íbúða- lánasjóði verði skipt upp. Í því felst að sá hluti sem snýr að fjár- málaumsýslu vegna eldra lána- safns sjóðsins verði skilinn frá meginstarfsemi hans. legið hefur fyrir frá árinu 2012, þegar almennum lánveitingum sjóðs- ins til almennings vegna hús- næðiskaupa var að mestu hætt, að bregðast þyrfti við áhrifum þess á Íbúðalánasjóð. Þeim var hætt í kjölfar úrskurðar Eftir- litsstofnunar EFTA (ESA) um að lánin stönguðust á við regl- ur EES-samningsins. Starfs- hópur, sem skipaður var í sept- ember síðastliðnum, hefur ver- ið með breytta stöðu sjóðsins til umfjöllunar og var niðurstaða hópsins að leggja til við ráð- herra að fara þessa leið. Á sama fundi ríkisstjórnarinnar kynnti ráðherra að til greina komi að sameina Mannvirkjastofnun við húsnæðisstofnunarhluta Íbúða- lánasjóðs. Hyggst ráðherrann skipa starfshóp á næstu dögum sem ætlað er að skoða ítarlega kosti þess og galla. -mm Klippt af fimm bílum AKRANES: lögreglan á Vest- urlandi klippti númeraplötur af fimm bílum á Akranesi föstudag- inn 29. mars. Slíkt er gert þegar eigendur ökutækja vanrækja að fara með bifreiðar sínar til aðal- skoðunar. Verði lögregla var við slíkt við almennt umferðareftir- lit er þeim flett upp í skráningar- kerfinu. Ef bílarnir reynast vera ótryggðir þá eru skráningarnúm- erin klippt af þeim. -kgk Of mikið D-vít- amín í hundafóðri LANDIÐ: Matvælastofnun varar hundaeigendur við Hill‘s hunda- fóðri vegna of mikils magns D- vítamíns. Fyrirtækið Visitor hef- ur innkallað eina framleiðslulotu af blautfóðrinu af markaði í sam- ráði við stofnunina. Einungis hef- ur verið hægt að kaupa fóðrið á dýralæknastofum. Innköllunin á aðeins við um eina framleiðslulotu á 360 g pakkingum Hill‘s hunda- fóðurs. Vöruheitið er prescriptio diet canine i/d 360. lotunúmerið er 09 2020 /27. Fóðrið hefur ver- ið fáanlegt hjá Dýraspítalanum í Garðabæ, Dýraspítalanum í Mos- fellsbæ, Dýralæknamiðstöðinni í Grafarholti, Dýralæknastofu Dag- finns, Dýralæknastofu Reykjavíkur og hjá Visitor hundafóðri. Of mik- il neysla D-vítamíns getur leitt til eitrunar. Einkenni D-vítamíneitr- unar í hundum geta verið minnk- uð matarlist og þyngdartap, auk- inn þorsti, slef og þvaglát. Í alvar- legum tilvikum getur eitrunin leitt til nýrabilunar. „Hundaeigend- ur eru hvattir til að hafa samband við dýralækninn sinn ef hundur þeirra hefur neytt blautfóðurs frá Hill‘s pet Nutrition og sýnir ein- kenni D-vítamíneitrunar,“ segir í tilkynningu MAST. -kgk Frítekjumark hækkar LANDIÐ: Frítekjumark náms- manna hækkar um 43% sam- kvæmt nýjum úthlutunarreglum lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir næsta námsár, 2019-2020. Frítekjumarkið verður 1.330 þús. krónur í stað 930 þús. áður. „Hækkun þessi kemur til móts við óskir námsmanna sem bent hafa á að frítekjumarkið hafi ekki verið hækkað í takt við verðlagsbreyt- ingar og launahækkanir síðan árið 2014,“ segir í tillögu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Breytingar á fyrirkomulagi lÍN eru í farvatninu, en til stendur að leggja nýtt frumvarp um sjóðinn fram á Alþingi næsta haust. Breyt- ingarnar felast m.a. í því að náms- styrkur ríkissins verði gegnsærri og meira jafnræði verði með- al námsmanna. Mun nýju kerfi þannig svipa meira til norrænna námsstyrkjakerfa. Stefnt er að því að nýja kerfið taki gildi frá og með haustinu 2020. „Námsaðstoð- in sem sjóðurinn mun veita verð- ur áfram í formi lána á hagstæð- um kjörum og til viðbótar verða beinar styrkjagreiðslur vegna framfærslu barna og 30% niður- felling á hluta af námslánum við lok prófgráðu innan skilgreinds tíma,“ segir í tilkynningunni. Enn fremur er stefnt að að bæta fjár- hagsstöðu nemenda, sérstaklega þeirra sem hafa börn á framfæri og hvetja nemendur til að ljúka námi á tilsettum tíma. „Í því felst ávinningur fyrir námsmenn sem og þjóðhagslegur ávinningur fyr- ir samfélagið allt sem útreikning- ar gera ráð fyrir að geti numið allt að 1,2 milljörðum kr. á ári.“ -kgk Helgina 5.-7. apríl næstkomandi munu lionsfélagar um land allt selja Rauða fjöður til þess að safna fyrir tækjabúnaði fyrir sykursjúka, sjónskerta og blinda. Markmiðið er að safna að lágmarki fyrir tveimur augnbotnamyndavélum sem stað- settar verða á innkirtladeild land- spítalans og á þjónustu- og þekking- armiðstöð Blindrafélagsins. lions- félagar verða á fjölförnum stöðum í öllum stærstu sveitarfélögum lands- ins, t.d. verslanamiðstöðvum, versl- unum og víðar. „landsmenn eru hvattir til þess að taka lionsfélög- um vel og styrkja átakið. Þeir sem vilja leggja málinu lið með öðrum hætti er bent á heimasíðuna lions. is og söfnunarsímanúmerin,“ segir í tilkynningu. mm Rauða fjöðrin seld til kaupa á lækningatækjum Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar mótmælir harðlega áformum ríkis- stjórnarinnar um skerðingu á fram- lögum til Jöfnunarsjóðs sveitar- félaga. Í fundargerð var lögð fram bókun Sambands íslenskra sveitar- félaga ásamt minnisblaði sem tek- ið var saman um áhrif fyrirhugaðr- ar skerðingar á einstök sveitarfélög. Samkvæmt minnisblaðinu mun tekjur Stykkishólmsbæjar drag- ast saman um rúmlega 30 millj- ónir króna. Í bókun sambands- ins segir að aðgerð þessi feli í sér árás á sjálfsákvörðunarrétt og fjár- hagslegt sjálfstæði sveitarfélaga. Hún muni veikja rekstrargrundvöll margra þeirra og eigi sér ekki for- dæmi í samskiptum ríkis og sveit- arfélaga. „Á sama tíma er fjárhags- legur grundvöllur sveitarfélaga víða í uppnámi vegna utanaðkomandi aðstæðna. Í bókun sinni mótmæl- ir stjórn sambandsins harðlega um- ræddum áformum og krefst þess að boðuð áform um tekjuskreð- ingu gangvart sveitarfélögum verði dregin til baka svo skapaður verði á ný jarðvegur fyrir eðlileg samskipti ríkis og sveitarfélaga,“ segir í fund- argerð. Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar tekur undir bókun stjórnar Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. „Bæj- arstjórnin mótmælir harðlega fyrir- huguðum áformum og bendir á að skerðingin muni koma harðast nið- ur á sveitarfélögum á landsbyggð- inni, þ.m.t. Stykkishólmsbæ, sem reiða sig m.a. á framlög Jöfnunar- sjóðs. Þeim tilmælum er beint til ríkisins að leita annarra leiða til að ná jafnvægi í ríkisfjármálum,“ segir í bókun bæjarstjórnar. Þá tekur bæjarstjórn einnig und- ir samþykkt landsþings SÍS gegn áformum um skerðingu á fram- lögum til Jöfnunarsjóðs, þar sem segir m.a. að vinnubrögð fjármála- og efnahagsráðuneytisins hafi verið með öllu óásættanleg, enda sé verið að skapa fordæmi þess að ríkisvald- ið grípi einhliða inn í lögbundna tekjustofna sveitarfélaga. Bókun bæjarstjórnar hefur ver- ið send Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráð- herra, Bjarna Benediktssyni, efna- hags- og fjármálaráðherra, fjár- laganefnd Alþingis og öllum þing- mönnum Norðvesturkjördæmis. kgk Hólmarar mótmæla skerðingu til Jöfnunarsjóðs Kemur verst við sveitarfélög á landsbyggðinni Frá Stykkishólmi. Ljósm. úr safni/ sá. Rekstur Dalabyggðar á árinu 2018 var jákvæður um 49,4 milljón- ir króna. Ársreikningurinn var til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórn- ar 14. mars síðastliðinn, þar sem honum var vísað til síðari umræðu. Rekstratekjur samstæðu A og B hluta sveitarsjóðs voru 930,5 millj- ónir króna en rekstrargjöld 828,6 milljónir. Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og -gjalda var já- kvæð um 68,6 milljónir. Fjármagns- gjöld umfram fjármunatekjur námu 19,8 milljónum og niðurstaðan því jákvæð um 49,4 milljónir, sem fyrr segir. Rekstratekjur A hluta voru 774 milljónir, rekstrargjöld 675,6 milljónir og fjármunatekjur um fram fjármagsgjöld 2,5 milljónir. Niðurstaða A hluta sveitarsjóðs var því jákvæð um 81 milljón króna. Fastafjármunir samstæðu A og B hluta voru 1.176,3 milljónir í árslok 2018, veltufjármunir 224,2 milljónir og eignir alls um 1.400,5 milljónir. langtímaskuldir sveitar- félagsins námu 367,6 milljónum, skammtímaskuldir 182,7 milljón- um og skuldir og skuldbindingar alls 644,5 milljónum. Fyrir A hluta var veltufé frá rekstri 112 milljónir og handbært fé 36,5 milljónir. Veltufé frá rekstri samstæðu A og B hluta var 100,5 milljónir og handbært fé 9,5 milljónir króna. Veltufjárhlutfall A og B hluta var 1,23, eiginfjárhlutfall 0,54, skuldahlutfall 69,3% og skulda- viðmið 32%. Fjárfesting í varan- legum rekstrarfjármunum nam 131,5 milljónum króna. Á síðasta ári voru tekin ný langtímalán að verðmæti 132,1 milljón króna, þar af 82,1 milljón vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð. Handbært fé sveit- arfélagsins var 141,8 milljón króna í byrjun árs 2018 en 135,8 milljónir króna í lok árs. kgk/ Ljósm. úr safni. Jákvæður rekstur Dalabyggðar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.