Skessuhorn


Skessuhorn - 03.04.2019, Qupperneq 4

Skessuhorn - 03.04.2019, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 3. ApRÍl 20194 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Glataða tækifærið Tvímælalaust var stærsta frétt liðinnar viku gjaldþrot flugfélagsins WOW air. Brottfall þess af markaði mun hafa slæm bein og óbein áhrif á íslenskt efnahagslíf. Bæði til lengri tíma, en einkum þó skamms. Fyrstu viðbrögð flestra var áfall og vonbrigði, því með brotthvarfi fyrirtækisins hverfur mik- ilvæg samkeppni af markaði og gap myndast sem tíma tekur að fylla í. WOW air var stórt fyrirtæki á íslenskum mælikvarða þó ekki hefði það náð háum aldri. Skúli Mogensen stofnaði fyrirtækið í árslok 2011 og byggði það hratt upp. Þekkt er að mörg lággjaldaflugfélög hafa verið skammlíf og því héldu margir að þetta yrði eins og hver önnur skammvinn bóla. Það varð þó ekki raunin. Fargjöldin voru lág enda þjónustan lítil. Það kom ekki að sök enda er liðin tíð að flugfarþegar setji háar kröfur um gæði og óþarfa á styttri flugleiðum milli landa. Keppinautar þurftu því að aðlaga sig þessum breytingum. Meðal annarra Icelandair. En afdrifaríkustu mistök WOW fólust í að missa fókusinn á það sem upphaflega var lagt upp með. Í stað þess að vera einungis lággjaldaflugfélag var stefnt að heimsyfirráðum. Teknar á leigu stærri vélar og flogið lengra. Flugeldasýningin þegar fyrsta flugið til Indlands var kynnt, var upphafið af þeim endalokum sem við nú þekkjum. Það hefur Skúli viðurkennt og undir það geta allir tekið. Í mínum huga er mikill sjónarsviptir af flugfélaginu WOW og raun al- veg með ólíkindum að íslenskir fjárfestar hafi ekki gripið það tækifæri sem gafst í síðustu viku til að eignast fyrirtækið og forða því frá þroti. Mín skoðun er nefnilega sú, þrátt fyrir talsverðar skuldir, að raunverulegt virði WOW air hafi verið miklu meira en skuldir þess. Öll sú uppbygging og reynsla sem búið var að byggja upp tapaðist á einum degi og mun ekki nýt- ast nokkrum eftir þetta. Auk augljóslega meiri snerpu í markaðsmálum en samkeppnisaðilar höfðu sýnt, má nefna að innan fyrirtækisins þreifst létt vinnustaðamenning sem jók framleiðni vinnuafls og smitaði auðveldlega út til flugfarþega. Þrátt fyrir að um tíma hafi fyrirtækið misst fócus á kjarna- starfsemi sína, þá staðhæfi ég að það er mikil eftirsjá af Skúla Mogensen og þeirri umgjörð sem hann náði að búa til. Jafnvel þótt vitað sé að Skúli hafi um tíma tapað jarðsambandi sínu, hætt að reka einungis lággjaldaflugfélag og um tíma verðlagt flugmiða ódýrar en efni stóðu til, var rekstur hans ákveðið jarðsamband fyrir helsta keppinautinn. Eitthvað sem markaðurinn þurfti. Rekstur Icelandair hefur undanfarin ár gengið brösuglega eins og marka má af gengisþróun félagsins. Raunar má segja að gengi bréfa í Iclel- andair hafi einungis hækkað í verði þegar horfur voru slæmar hjá WOW air og svo öfugt. Þrátt fyrir dýfur liðinna ára hefur íslenski markaðurinn þó ekki misst alla trú á Iclendair og er félagið nú að stærstum hluta í eigu okkar venjulegu Íslendinganna, hvort sem okkur líkar vel eða illa. Átta af tíu stærstu hluthöfum í Icelandair eru nefnilega lífeyrissjóðir. Þessir átta sjóðir eiga 60% hlut í fyrirtækinu. Það lágu því miklir hagsmunir undir að Icelandair sjálft færi ekki í þrot. Það er kjarni málsins; af þeim sökum var meðvituð ákvörðun að koma WOW ekki til bjargar. Mér finnst einhvern veginn blasa við að íslenski hlutabréfamarkaðurinn hafi tekið stöðu gegn WOW og öllum pólitískum bellibrögðum var beitt til að knésetja fyrirtækið. Í erfiðri baráttu lífeyrissjóða við að halda gengi bréfa í Icelandair uppi, ákvað þessi valdamesti hópur peningaaflanna hér á landi, að glopra niður því einstaka tækifæri sem gafst í síðustu viku að eign- ast hið kvika WOW air. Kröfuhafar voru tilbúnir að aflétta skuldum gegn helmingseign í félaginu og með sirka 20 milljarða króna innspýtingu nýs hlutafjár hefði mátt byggja upp skuldlaust flugfélag í prýðilegum rekstri. Sú upphæð er ekki stærri en svo að hún nemur hálfu prósenti af höfuð- stól íslenskra lífeyrissjóða! Það var hins vegar ekki gert og um leið tapað- ist stærsta viðskiptatækifæri sem íslenskir lífeyrissjóðir hafa fengið í seinni tíð. Magnús Magnússon Into the Glacier ehf. fékk úthlutað 24 milljóna króna styrk úr Fram- kvæmdasjóði ferðamannastaða til að bæta merkingar fyrir ferðamenn og uppbyggingu framtíðar salernis- aðstöðu á Geitlandi við rætur lang- jökuls. „Við ætlum að auka upplýs- ingaflæði til ferðamanna um svæðið við og á jöklinum. Það er alltaf fólk að fara upp á jökul, hvort sem það er á bíl eða gangandi og það getur hreinlega verið stórhættulegt ef þú hefur ekki réttan búnað og þekkingu á aðstæðum. Við ætlum að setja upp skilti sem við erum að hanna með skiltahönnuði núna,“ segir Sigurð- ur Skarphéðinsson, framkvæmdar- stjóri Into the Glacier í samtali við Skessuhorn. Skiltin verða hönnuð og sett upp í samstarfi við lands- björgu og á þeim verða upplýsingar fyrir alla þá ferðamenn sem hyggj- ast leggja leið sína upp á jökulinn. Lítil lyktarmengun af þurrsalernum Salernin sem á að reisa við rætur langjökuls verða að sögn Sigurðar svokölluð þurrsalerni með kjallara undir þar sem salernisúrgangur safnast og er síaður. Fastefnin eru flutt af svæðinu og þvag er leitt út í jarðveginn. „Við hyggjumst reisa varanlega salernisaðstöðu nálægt skálanum okkar Klaka. Hann er staðsettur í rúmlega 700 m hæð en mikið veðurálag er á þessum slóð- um og því mikilvægt að vanda vel til verks. Mikil umferð er þarna af ferðamönnum, en tveir ferða- þjónustuaðilar eru með aðstöðu á svæðinu. Einnig er talsverð um- ferð af jeppafólki og svo ferða- mönnum á sumrin sem hyggjast skoða jökulinn. Það er því mikil- vægt að hinn almenni ferðamað- ur geti komist í salernisaðstöðu,“ segir Sigurður. „Við höfum ver- ið með bráðabirgðaaðstöðu fyrir okkar gesti en með þessum styrk getum við byggt upp aðstöðu sem allir ferðamenn á svæðinu geta notast við. Into the Glacier mun sjá alfarið um að þjónustu aðstöð- una,“ segir Sigurður og bætir því við að helsti kosturinn við þurrsal- ernin sé að þeim fylgir tiltölulega lítil lykt og hvorki þurfi vatn né rafmagn fyrir þau. „Þetta er þekkt lausn sem hefur verið notuð við góðan árangur til dæmis í Vikra- borgum í Vatnajökulsþjóðgarði,“ segir hann. Aðspurður hvenær sal- ernin verða tilbúin, segir Sigurður áætlað að þau verði komin í notk- un í lok sumars. arg Koma upp salernum og upplýsingaskiltum fyrir ferðamenn Gríðarlegur fjöldi fólks er sífellt að fara á jökulinn, ýmist gangandi eða á ökutækjum. Merkingar og bætt hreinlætisaðstaða verður fyrir þessa gesti sem og viðskiptavini Into the Glacier. Sýningin „Nr. 3 Umhverfing“ verð- ur sett upp víðs vegar um Snæfells- nes næsta sumar og koma hvorki fleiri né færri en sjötíu listamenn að henni. Sýningin verður form- lega opnuð í Breiðabliki laugardag- inn 22. júní og stendur til 31. ágúst. Um er að ræða myndlistarsýningu á verkum listamanna sem hafa á einhvern hátt tengingu við Snæ- fellsnes, hvort sem þeir hafi þang- að ættartengsl eða hafa búið þar á einhverjum tímapunkti. Það eru myndlistarkonurnar Anna Eyjólfs- dóttir, Þórdís Alda Sigurðardótt- ir og Ragnhildur Stefánsdóttir sem standa að hönnun sýningarinnar en þær standa jafnframt á bakvið Akademíu skynjunarinnar sem var stofnuð árið 2008 í þeim tilgangi að efla upplifun og skynjun með myndlist. Sýningin verður sett upp víðs vegar um Snæfellsnes en helstu sýningarstaðir verða Breiðablik, Hótel Egilsen, Samkomuhúsið á Arnarstapa, Æðarsetur Íslands, Narfeyrarstofa, Hótel Fransiskus, Fosshótel Stykkishólmi, Átthag- astofan í Ólafsvík, Bæjarskrifstof- an í Grundarfirði, Fisk Seafood í Grundarfirði, Staðastaður, Stykk- ishólmskirkja, Norska húsið, Kaffi Emil, Bjargarsteinn, Bæringsstofa, pakkhúsið í Ólafsvík, Dvalarheim- ilið Jaðar, Sjóminjasafnsgarðurinn, Gufuskálar, Fjöruhúsið og fleiri staðir. „Það verða sýnd verk eftir 70 listamenn, bæði vel þekkta mynd- listarmenn og aðra sem eru minna þekktir. Þegar við fórum að stað að finna listamenn vorum við eigin- lega gapandi yfir því hversu margir listamenn eiga tengingu við Snæ- fellsnes,“ segir Anna Eyjólfsdótt- ir í samtali við Skessuhorn. „Nr. 3 Umhverfing er sýning sem við ætl- um að fara með um landið en við höfum áður sett upp sambærilegar sýningar á tveimur stöðum. Sýning- in á Snæfellsnesi verður hins vegar sú stærsta,“ segir Anna og bætir því við að tilgangur sýningarinnar sé að færa myndlistina nær fólkinu sem annars myndi ekki fara á mynd- listarsýningar og þannig skapa um- ræðu um listina og lífið. Gestir geta síðan nálgast sýningarskrá, ferðast um Snæfellsnes og kynnt sér list og náttúru staðanna um leið. arg Myndlistarsýningar haldnar víðs- vegar um Snæfellsnes í sumar Anna Eyjólfsdóttir og Þórdís Alda Sigurðardóttir standa að sýningunni Nr. 3 Um- hverfing ásamt Ragnhildi Stefánsdóttur.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.