Skessuhorn - 03.04.2019, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 3. ApRÍl 201912
Áhaldahús Stykkishólmsbæjar og
eignasvið bæjarins hefur verið sam-
einað í nýja þjónustudeild eigna-,
framkvæmda- og þjónustusviðs.
Nefnist hún einu nafni Þjónustu-
miðstöð Stykkishólmsbæjar. Bergi
Hjaltalín hefur verið falið að leiða
starfsemi deildarinnar. „Ný Þjón-
ustumiðstöð Stykkishólmsbæj-
ar mun, sem ein þjónustudeild,
viðhalda og þróa innviði Stykk-
ishólmsbæjar og umhverfi til að
styðja við og auka velferð íbúa og
atvinnulífs bæjarins og þeirra sem
sækja Hólminn heim,“ segir í frétt
á vef Stykkishólmsbæjar.
Unnið hefur verið að samþætt-
ingu rekstrareininga áhaldahúss og
fasteignasviðs undanfarnar vikur.
Markmiðið er að hagræða í rekstri
og tryggja að peningar nýtist sem
best, en stöðugildum hefur fækkað
umtalsvert á þessum sviðum undan-
farna mánuði, að því er fram kem-
ur á vef bæjarfélagsins. Við endur-
skipulagninguna var jafnframt lögð
áhersla á að fest verði enn betur í
sessi það samstarf sem verið hefur
á milli umræddra deilda og hafn-
arinnar. „Hefur það samstarf verið
þróað enn frekar og betur skilgreint
betur samhliða breytingunni.“
Þjónustumiðstöðin verður stað-
sett í húsnæði fyrrum Áhaldahúss
Stykkishólmsbæjar að Nesvegi 7.
Endurbætur verða gerðar á hús-
inu, í samræmi við ákvörðun bæj-
arstjórnar þar um. Á vef Stykk-
ishólmsbæjar er haft eftir Jakobi
Björgvini Jakobssyni bæjarstjóra
að samþætting þessara deilda hafi
einkum í för með sér aukið sam-
starf um mönnun og samnýtingu
aðstöðu og búnaðar bæjarfélagsins.
Auk þess muni mannauður og fag-
þekking starfsfólks nýtast enn bet-
ur en áður. Það muni leiða til auk-
innar skilvirkni og bættrar þjónustu
við stofnanir og íbúa.
kgk/ Ljósm. Stykkishólmsbær.
Þjónustumiðstöð
Stykkishólsbæjar sett á fót
Sjómenn á Breiðafirði þurftu
að hverfa frá mokfiskiríi þeg-
ar hrygningarstopp hófst á
mánudaginn. Stoppið á Vestur-
svæði, sem nær yfir nánast allan
Breiðafjörðinn og innanverð-
an Faxaflóa, stendur til 21. apríl
næstkomandi.
Sumarliði Ásgeirsson, tíð-
indamaður Skessuhorns í
Stykkishólmi, var um borð í
Kap II VE-7, sem landaði þrisv-
ar á Grundarfirði frá föstudegi
til sunnudags. Hann segir skip-
verja hafa þurft frá að hverfa í
mokfiskiríi úti fyrir línu vegna
hrygningarstoppsins og skip-
stjórinn tekur í sama streng.
„Við vorum að flýja brælu frá
Vestmannaeyjum og lentum í
mokfiskiríi á Breiðafirðinum.
Við lönduðum þrisvar á Grund-
arfirði þessa daga. Það var mik-
il veiði og alveg boltafiskur,“
segir Kristgeir Arnar Ólafsson,
skipstjóri á Kap II, í samtali við
Skessuhorn. „Síðast vorum við
fyrir vestan í febrúar og veiðin
var betri núna en þá. Marsmán-
uður er alltaf aðalmánuðurinn.
Þá er fiskurinn að koma upp á
grunnið og er að fara að hrygna,
feitur og fínn, fullur af loðnu og
vel haldinn,“ bætir hann við.
Tólf eru í áhöfn á Kap II, sem
er 52 metra langur netabátur
sem gerður er út af Vinnslu-
stöðinni í Vestmannaeyjum.
Báturinn er farinn aftur til Eyja
og þar er það sama uppi á ten-
ingnum og var á Breiðafirði fyr-
ir hrygningarstoppið. „Núna
erum við vestur af Eyjum og
það er sama sagan hér, alveg
mokfiskirí,“ segir skipstjórinn
ánægður.
kgk/ Ljósm. sá.
Mokveiði fyrir hrygningarstopp
Horft út um lúgunn yfir Breiðafjörðinn.
Boltafiskur í netunum á leið um borð í Kap II.
Skipverjar á Kap II höfðu í nógu að snúast í mokfiskiríi á Breiðafirði um helgina.
Styrkir Akraneskaupstaðar til skóla-, íþrótta-
og menningartengdra verkefna voru afhent-
ir við hátíðlega athöfn á Bókasafni Akraness
á fimmtudag. Um var að ræða úthlutanir úr
styrktarsjóði til íþrótta- og menningarverk-
efna að verðmæti 7,2 milljónir króna og 2,5
milljónir króna til þróunar- og nýsköpunar-
verkefna úr þróunarsjóði skóla- og frístunda-
sviðs.
Elsa lára Arnardóttir, formaður bæjarráðs,
bauð gesti samkomunnar velkomna og sagði
nokkur orð. Það voru síðan þau Bára Daða-
dóttir, formaður skóla- og frístundaráðs og
Ólafur páll Gunnarsson, formaður menning-
ar- og safnanefndar, sem afhentu styrkina.
Styrkjunum er ætlað að styðja grasrótar-
starf á sviði menningar- og íþróttamála.
Hefur Akraneskaupstaður frá árinu 2014
styrkt rúmlega 200 verkefni fyrir samtals um
40 milljónir króna. Að þessu sinni voru veittir
16 styrkir til íþróttaverkefna og 13 til menn-
ingarverkefna.
Styrkir til íþróttatengdra verkefna eru
eftirfarandi:
Brynhildur Traustadóttir, Sundfélagi Akra-
ness, hlýtur styrk til að mæta kostnaði við
ferðir á æfingar í 50 m laug á höfuðborgar-
svæðinu, kr. 200.000.
Brynjar M. Ellertsson, Badmintonfélagi
Akraness, hlýtur styrk upp í persónulegan
kostnað við keppnisferðir, kr. 200.000.
Matthías Leó Sigurðsson, Keilufélagi Akra-
ness, hlýtur styrk upp í persónulegan kostnað
við keppnisferðir, kr. 200.000.
Þjótur hlýtur styrk við íþróttastarf fatlaðra á
Akranesi kr. 300.000.
Hnefaleikafélagið hlýtur styrk til að fjárfesta
í búnaði sem nýtist öllum iðkendum félagsins
til æfinga, kr. 100.000.
Badmintonfélagið hlýtur styrk til kaups á
strengingarvél fyrir iðkendur félagsins kr.
321.690.
Keilufélagið hlýtur styrkur upp í kaup á
Specto upptökuvél sem nýtist til að taka upp
hvert kast iðkenda, kr. 200.000.
Klifurfélagið hlýtur styrk til kaupa á fall-
dýnu sem mun nýtast til að mun auka öryggi
iðkenda við klifur, kr. 300.000.
Pílufélagið hlýtur styrk til búnaðarkaupa
fyrir nýstofnað félag á Akranesi, kr. 50.000.
ÍA hlýtur styrk til að greiða niður kostnað við
að bjóða félögum innan bandalagsins upp á
fría þjónustu sérhæfðs íþróttasálfræðings, kr.
450.000.
ÍA hlýtur styrk upp í kaup á lyftingaáhöldum
í Akraneshöll fyrir íþróttahópa innan ÍA, kr.
200.000.
Kári hlýtur styrk til að hefja uppbyggingu á
starfi yngri iðkenda í félaginu frá 10 ára aldri
og yngri, kr. 200.000.
Sundfélagið hlýtur styrk til að byggja upp
deild með sundknattleik, kr. 150.000.
Körfuknattleiksfélagið hlýtur styrk til að
bjóða upp á hugarþjálfun fyrir iðkendur í
7.-10. bekk, kr. 200.000.
Sundfélagið hlýtur styrk til að mæta útlögð-
um kostnaði vegna æfinga í 50 metralaug á
höfuðborgarsvæðinu fyrir íslandsmeistara-
mót, kr. 204.160.
FIMA hlýtur styrk til að nýta markþjálfun
meðal iðkenda til að draga úr brottfalli eldri
iðkenda, kr. 500.000.
Styrkir til menningartengdra verkefna eru
eftirfarandi:
Dansstúdíó Írisar hlýtur styrk vegna dans-
sýninga, símenntunar og gesta kennara, kr.
465.000.
Docfest ehf. hlýtur styrk fyrir barnadag-
skrána Akranes með okkar augum á IceDocs
heimildamyndahátíðinni sem verður haldin á
Akranesi í júlí, kr. 500.000.
Hljómur, kór eldri borgara hlýtur styrk fyrir
almennt kórastarf, kr. 100.000.
Kvennakórinn Ymur hlýtur styrk fyrir tón-
leikar í vor eða á Írskum dögum, kr. 165.000.
Leikfélagið Skagaleikflokkurinn hlýtur
styrk fyrir götuleikhús á Írskum dögum, kr.
175.000
Leikfélagið Skagaleikflokkurinn hlýt-
ur styrk fyrir leiklistarnámskeiðahald, kr.
280.000
Leiklistarklúbbur FVA hlýtur styrk til upp-
setningar söngleiksins Rock of Ages, kr.
550.000
MTM ehf. hlýtur styrk fyrir Sögu og sýn-
ingu um útgáfu Sementspokans og sögu
Starfsmannafélags Sementsverksmiðjunnar,
kr. 150.000.
Nemendafélag Brekkubæjarskóla hlýtur
styrk til uppsetningar á söngleiknum leit-
inni, kr. 550.000.
Norræna félagið á Akranesi hlýtur styrk til
verkefnisins „Gestgjafar fyrir stjórnarfund
vinabæjarfélaga“, kr. 100.000.
Skátafélag Akraness hlýtur styrk fyrir þátt-
töku tveggja ungra skáta frá Skátafélagi Akra-
ness á Alheimsmóti Skáta sem haldið er fjórða
hvert ár, kr. 100.000.
Skólakór Grundaskóla (stjórnandi Val-
gerður Jónsdóttir) hlýtur styrk fyrir lands-
mót barna- og unglingakóra sem fór fram í
Grundaskóla á Akranesi 15.-17. mars 2019,
kr. 250.000.
Skylmingarfélagið Væringjar hlýtur styrk
fyrir verkefnið „Sverð og Riddaramennska:
Kynning á sögulegum evrópskum skylming-
um“, kr. 100.000.
Styrkir til þróunarverkefna á skóla- og frí-
stundasviði eru eftirfarandi:
Frístundamiðstöðin Þorpið hlýtur styrk
fyrir verkefnið „K567- klúbbastarf“ fyrir
börn 10-12 ára, kr. 500.000.
Grundaskóli hlýtur styrk fyrir „Verkefna-
miðað nám á unglingastigi-Útvarp Grunda-
skóli“ sem felur í sér að efla upplýsingatækni
og samþættingu náms, kr. 750.000.
Tónlistarskólinn á Akranesi hlýtur styrk
fyrir „Þróun kennslu yngri barna við Tón-
listarskólann á Akranesi“ en markmið verk-
efnisins er að brúa bil á milli leikskóla og for-
skóla, kr. 1.250.000.
kgk
Styrkir afhentir til skóla-, íþrótta- og menningarmála
Fulltrúar þeirra verkefna sem hlutu styrki ásamt fulltrúum Akraneskaupstaðar.