Skessuhorn - 03.04.2019, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 3. ApRÍl 201922
Í ár eru 100 ár liðin frá stofnun Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Af því tilefni stefnir stjórn deild-
ar hjúkrunarfræðinga á Akranesi
og nágrenni fyrir því á afmælis-
árinu að birta greinar eftir hjúkr-
unarfræðinga hér í Skessuhorni.
Greinarnar eru birtar jafnt og þétt
yfir afmælisárið og í þeim fá les-
endum innsýn í þau fjölbreyttu
störf og áskoranir sem hjúkrun-
arfræðingar fást við. Að þessu
sinni kynnir sig til leiks Guðríð-
ur Ringsted hjúkrunarfræðingur í
Brákarhlíð í Borgarnesi.
Hjúkrunarfræðin
heillaði á háskóladögum
Ég heiti Guðríður Ringsted, yfirleitt
kölluð Dúdda, og ólst ég að mestu
upp í Borgarnesi. Ég bý nú ásamt
manni mínum Gunnari Halldórs-
syni á sveitabænum Arnbjörgum í
Álftaneshreppi á Mýrum. Við eigum
fjögur börn, Hörður Gunnar (´99),
Agla (´08), Halldór (´11) og Brák
(´14). Með okkur búa um 50 hross,
nokkrar hænur, endur, hundar og
köttur.
Ég útskrifast sem stúdent frá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi
árið 2001, þá einstæð móðir sem vissi
ekki alveg hvað hún átti að gera með
framtíðina. Ég vann þá á bókasafni
í smá tíma og ákvað að skella mér á
háskóladaga til að finna mér fram-
tíðarvinnu og áhugamál. Það fyrsta
sem ég sá var kynning á hjúkrunar-
fræði og ljósmóðurfræði frá Háskóla
Íslands. Það vakti strax áhuga minn
þar sem sérstaklega ljósmóðurstarfið
var heillandi en ömmusystir mín var
ljósmóðir og tók á móti mér. Ég hafði
alltaf haft löngun til að feta í hennar
fótspor. Ég skoðaði þó margt annað,
til dæmis bókasafnsfræði en það sem
ég sá fyrst togaði meira í mig. Þar
af leiðandi skráði ég mig í clausus í
hjúkrunarfræði við HÍ haustið 2002.
Ég komst ekki áfram í þessum stóra
hópi. Ég ákvað þá að athuga hvort
hjúkrunarfræði væri eitthvað sem ég
gæti hugsað mér að vinna við og fékk
vinnu við aðhlynningu á öldrunar-
deild á landspítalanum. Ég fann
strax að þetta var fyrir mig, gefandi
og fallegt starf, að hjálpa þeim sem
voru andlega og líkamlega veikir.
Þar með ákvað ég að skrá mig aftur
í clausus en í þetta sinn hjá Háskól-
anum á Akureyri. Ég komst áfram
og var það hamingjan ein. Ég kláraði
fyrsta árið mitt fyrir norðan en ákvað
að færa mig yfir á Akranes fyrir ann-
að árið, þar sem fjarkennsla var í boði
fyrir þennan bekk. Ég var þá einstæð
móðir og fjölskyldan mín, sem var í
Borgarnesi, vildi hjálpa mér og styðja
mig á meðan ég var í háskólanámi.
Jóga hefur
hjálpað í einu og öllu
Það kom smá vinkill á þetta allt sam-
an hjá mér þar sem ég var á sama
tíma í hljómsveit með vinum mín-
um úr fjölbrautaskólanum (og er
enn). Okkur bauðst ævintýra tæki-
færi, oftar en einu sinni, að fara í tón-
leikaferðalag um Bandaríkin í nokkr-
ar vikur. Ég sá að það myndi ekki
ganga upp með náminu, þannig að
ég tók mér pásu og missti þar af leið-
andi af bekknum mínum á Akranesi.
Ég hugsaði með mér, svona ævintýri
bjóðast ekki á hverjum degi en skól-
inn verður alltaf til staðar. Ég þurfti á
endanum að færa mig yfir í HÍ til að
vera áfram nálægt fjölskyldunni en
það var ekki auðvelt þar sem skólarn-
ir eru mjög ólíkt uppbyggðir náms-
lega. En þrátt fyrir þessar flækjur og
vinkla þá útskrifaðist ég sem hjúkr-
unarfræðingur um vorið 2008.
Með náminu og á sumrin náði ég
mér í reynslu á fjölbreyttum vinnu-
stöðum. Það var t.d. E-deildin á
Akranesi, Dvalarheimilið Höfði,
bráðamóttakan á landspítalanum
við Hringbraut og sjúkrahúsið Vog-
ur. Eftir útskrift fékk ég vinnu við
hjúkrunar- og dvalarheimilið Brák-
arhlíð sem hét þá Dvalarheimilið
í Borgarnesi. Ég fékk að taka þátt í
að móta „nýtt heimili“ þegar heim-
ilið stækkaði með nýbyggingunni og
heimilið breyttist í Brákarhlíð. Ég
skellti mér í framhaldsnám við Há-
skólann á Akureyri árið 2016 sem
var diplómanám í heilbrigðisvísind-
um með áherslu á öldrun og heil-
brigði. Fyrir utan hjúkrunarfræðina
hef ég líka menntað mig sem Kun-
dalini Jógakennari árið 2011 og hef
síðan þá farið þrisvar sinnum í fram-
haldsnám í jógakennarafræðum. Það
nám nýtist mér svo sannarlega í einu
og öllu. Ég hef til dæmis kennt önd-
unaraðferðir, léttar teygjur, slökun
og hugleiðslu. Einnig hef ég notað
möntrur til að slaka eða róa og hef-
ur það stundum gefið góða raun. Það
er líka frábært að sjá hvað íbúarnir í
Brákarhlíð er duglegir að mæta í jóga
en hún Guðlín Erla Kristjánsdóttir,
jógakennari og vinkona mín, kennir
jóga einu sinni í viku í Brákarhlíð.
Vinna með öldruðum
opnaði nýjan heim
Ég hef alltaf fundið fyrir því innra
með mér að ég vil hjálpa fólki. Mér
líður illa að sjá fólk kveljast, vera dap-
urt, einmana, vanmáttugt, í óráði eða
týnt í þoku heilabilunar. Ég ætlaði
upphaflega að fara í ljósmóðurfræði
en fór fyrst að vinna með öldruð-
um og þá opnaðist mér nýr heimur.
Öldrunarhjúkrun er ekki síður gef-
andi, áhugaverð og krefjandi. Aldrað-
ir glíma mjög margir við ýmsa sjúk-
dóma þannig að einn maður gæti til
dæmis verið að glíma við sykursýki,
hjartabilun, nýrnabilun og heila-
bilun og þá getur verið mjög flókið
að finna út hvaða einkenni koma frá
hvaða sjúkdómi og hvernig sé best að
meðhöndla einkennin. Þar af leið-
andi hef ég mikinn áhuga á líknandi
meðferð eða því sem ég vil kalla í dag
einkennameðferð. Þegar einstakling-
ar eru komnir langt í sínu sjúkdóms-
ferli og erfitt er að snúa við og ekki
merki um framtíðarbata, þá þarf að
huga að öllum einkennum sem geta
valdið einstaklingi óþægindum og
vanlíðan. Það eru til ýmsar leiðir til
að lina kvalir og þjáningar og það
felst ekki alltaf í lyfjanotkun. Við í
Brákarhlíð höfum t.d. unnið eftir
Eden hugmyndafræðinni sem er lyk-
ill að vellíðan og velferð. Eden skap-
ar líf sem er verðugt að lifa. Eden
stuðlar að þroska þó að einstakling-
urinn sé orðinn gamall og lífsreynd-
ur. Ég skil Eden hugmyndafræðina
sem kærleiksríka menningu sem ríkir
á hjúkrunarheimili, sem útrýmir ein-
manaleika, leiða og vanmáttarkennd.
Nýverið byrjaði Brákarhlíð að not-
ast við Namaste aðferðina sem getur
komið sér mjög vel þegar fólk glímir
við einkenni sem eru oft krefjandi að
eiga við. Þar virðum við hinn innri
anda og oft bið ég einmitt samstarfs-
félaga mína um að setja sig í spor
einstaklings, hvernig ætli honum/
henni líði núna? Þá þykir mér gott að
þekkja sögu einstaklings því það get-
ur oft verið gott að ná til einstaklings
með mikla heilabilun með því að
þekkja lífssögu hans. Annars geng-
ur Namaste út á það að hjálpa fólki
að lifa en ekki bara vera. Þar mætir
maður einstaklingnum þar sem hann
er staddur. Orð eru oft ekki þörf, bara
nærvera, horfast í augu og bros getur
dimmu í dagsljós breytt. Jane Verity
skrifaði eina af uppáhalds bókunum
mínum, Að endurvekja lífsneistann
hjá fólki með heilabilun. Þar seg-
ir meðal annars að rannsóknir sýna
að þegar við viljum koma skoðunum
á framfæri þá eru orð aðeins 7% af
boðskapnum en líkamstjáning 55%.
Röddin ein er 38% af boðskapnum
sem þýðir þá að samtals 93% af tján-
ingu einstaklings er án orða. Því segi
ég við þá sem eru að koma í heim-
sókn á heimilið að það sé allt í lagi þó
að viðkomandi tjái sig ekki. Þú get-
ur haldið í höndina og horft í aug-
un og brosað, jafnvel raulað lag og
þannig sýnt nærveru þína og kærleik
án orða.
Mikilvægt að fólk fái að
deyja með reisn
Mér þykir gaman að fara óhefð-
bundnar leiðir og vera skapandi í
starfi, hvort sem það felst í söng,
húmor eða að blanda nuddolíu með
ilmkjarnaolíum. Ég hvet líka sam-
starfsfólk mitt til að vera skapandi
og frjótt í hugsun, að vera óhrædd
að koma með hugmyndir sem gera
starfið betra og þar af leiðandi líf
íbúanna betra. Það skemmtilegast
við starfið er allt fólkið, hvort sem
það er samstarfsfólk, íbúar heim-
ilisins eða aðstandendur. Ég segi
oft að ég eigi fullt af ömmum og
öfum því maður hefur tengst mikl-
um vina- og trúnaðarböndum. Að
sama leyti getur það verið erfitt
því samskipti geta orðið krefjandi
þegar miklar tilfinningar eru undir
niðri. Við erum jú að vinna með líf
og heilsu fólks. En allir vita þó að
aðalmarkmiðið með hjúkruninni
er að fólki líði vel og þurfi ekki að
upplifa þjáningar. Við hjúkrunar-
fræðingar eigum að vera málsvari
einstaklings sem getur ekki tjáð sig
eða varið sökum veikleika og það
er okkar hlutverk að læra að þekkja
þarfir þeirra og óskir.
Það getur líka verið mjög krefj-
andi að vinna sem hjúkrunarfræð-
ingur þegar mannekla og mikil
veikindi eiga sér stað. Maður er þá
að gefa sig rúmlega hundrað pró-
sent í vinnunni og þá er oft lítið
eftir af orku þegar maður kemur
heim til fjölskyldunnar.
En fjölbreytnin í hjúkrunarfræð-
inni er líka skemmtileg og þar af
leiðandi er enginn dagur eins. Við
glímum við miserfið verkefni, sem
dæmi er mikil tölvuvinna, flóknar
lyfjagjafir, samtalsmeðferðir eða
fjölskyldufundir. Svo eru það lífs-
lokameðferðir. Að fólk fái að deyja
með reisn, þjáningarlaust, finnst
mér mikilvægt. Við deyjum öll
einhvern tímann og það á ekki að
þurfa að vera erfitt að ræða lífs-
lok en fólk er misjafnlega opið fyr-
ir þeirri umræðu. Það hefur verið
reynsla mín í gegnum árin að lífs-
lok geta verið falleg og friðsæl hjá
öldruðum einstaklingum sem eru
saddir lífdaga en að sjálfsögðu geta
þau verið sorgleg og erfið. Sorgar-
ferlið er tilfinningavinna sem hver
og einn þarf að ganga í gegnum.
Við hjúkrunarfræðingar þurfum að
vera til staðar fyrir hinn veika og
fjölskyldu hans á oft erfiðum tím-
um.
Það sem framtíðin
ber í skauti sér
Ég get alveg séð sjálfa mig áfram í
Brákarhlíð því mér þykir óskaplega
vænt um heimilið, fólkið og starfið
mitt. Ég hef lært svo margt og vinn-
an hefur þroskað mig á ýmsan hátt.
Tíminn verður hinsvegar að leiða í
ljós hvað verður. Ég veit að ég mun
halda áfram að læra, í vinnunni,
á námskeiðum, á ráðstefnum og
hugsanlega aftur í framhaldsnámi,
það er svo margt spennandi í boði.
Ég get einnig hugsað mér að vinna
meira við einhverskonar sköpun,
hvort sem það er að mála, teikna,
semja tónlist, spila og syngja, skrifa
og margt fleira. Ég gæti líka hugs-
að mér að vera meira heima, með
fjölskyldunni, meira á jógadýn-
unni og í garðrækt því ég hef unun
af náttúrunni. Ég er svo heppin að
hafa fallega náttúru í kringum mig
í sveitinni og fallega fjallagarða
í kring. Snæfellsjökullinn blasir
við mér út um stofugluggann. Ég
hugsa oft, hvað gerði ég svo gott
í fyrra lífi að ég verskuldaði þetta
fallega líf? Ég gæti ekki verið þakk-
látari.
Guðríður Ringsted
Öldrunarhjúkrun gefandi, áhugaverð og krefjandi
Guðríður Ringsted.
Guðríður er hjúkrunarfræðingur í Brákarhlíð í Borgarnesi.