Skessuhorn


Skessuhorn - 30.01.2019, Qupperneq 13

Skessuhorn - 30.01.2019, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2019 13 rekstur Hlégarðs og Gamla kaup- félagsins undir Veislum og við- burðum ehf.,“ segir hann. „Þetta er rosalega erfiður bissniss, veit- ingarekstur og skemmtanir. Það eru engar fastar tekjur, þetta þarf að rekast á manninum sem kaupir sér hamborgara, bjórglas eða miða á tónleika. Það var svo komið að við hluthafar Hlégarðs sáum fram á of mikið tap í hverjum mánuði og að fara að skulda fólki. Það er ekk- ert verra en að skulda, þá er mað- ur búinn að missa tökin. En síðan sameinum við Hlégarð og Gamla Kaupfélagið undir Veislur og við- burði og bingó! Allt í einu ganga báðir staðirnir mjög vel,“ segir Ís- ólfur. „Ótrúlegir hlutir á stuttum tíma“ „Stundum þarf maður að leita út fyrir boxið eftir lausnum, velta fyr- ir sér öllu sem mögulega er hægt að gera til að hlutirnir gangi upp. Eftir á að hyggja held ég að hvorki Hlé- garður né Gamla Kaupfélagið hefði getað rekið sig í sitthvoru lagi. En saman þá gengur dæmið upp. Ég og Gunni keyptum hina hluthafana út úr Hlégarði og áttum helmings- hlut hvor í Veislum og viðburð- um. Hluthafar þess félags eru núna orðnir fjórir og reksturinn gengur vel. Við erum búin að gera ótrúlega hluti á merkilega stuttum tíma. Það er ótrúlegt að segja frá því en þetta félag hefur verið rekið með hagn- aði frá upphafi og það sem meira er, hluthafarnir hafa getað greitt sér laun frá byrjun. Það er alls ekk- ert sjálfgefið að það sé hægt fyrstu árin,“ segir hann. „Hluthafarnir hafa aftur á móti sannarlega fengið að vinna fyrir hverri krónu og frá- bært starfsfólk hefur lagt tíma sinn og vinnu í þetta með okkur. Til að svona sé hægt þarf stemningin í hópnum að vera góð, því stund- um lendir margt á einum manni og þá er ég ekki að tala um mig,“ bæt- ir hann við og hlær. „Þarna þurfa allir að leggjast á eitt sem standa að baki rekstrinum og það sem er enn mikilvægara, að hafa geysilega öflugt starfsfólk. Í öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur hef ég verið með svakalega gott fólk í kringum mig, bæði meðeigendur og starfs- fólk. Öðruvísi ganga hlutirnir ekki upp.“ Fjölskyldan að byggja upp saman En það er ekki bara í vinnunni sem skiptir máli að hafa gott fólk í kringum sig. Ísólfur segir enn mik- ilvægara að eiga góða fjölskyldu. „Ég hef alla tíð í öllu mínu brasi fengið gríðarlega góðan stuðn- ing heima fyrir. Við höfum verið saman í þessu og Aldís hefur alltaf staðið þétt við bakið á mér. Það er ómetanlegt,“ segir hann. „Hvern- ig þér líður heima hjá þér endur- speglar rosalega mikið bara hvern- ig þér líður almennt. Ef þér líður vel þá verður meira til. Það er allt- af mikilvægt að hafa það í huga,“ segir Ísólfur en því fylgja vitanlega fórnir. „Ég var að rifja upp með Al- dísi um daginn hvað þetta var mik- ill rússíbani fyrstu árin og það er ekki allt frábært við þetta. Yngsta barnið okkar er nánast algjörlega alið upp af móður sinni, sem er mikil synd, því þetta er það sem skiptir máli í lífinu. En á móti kem- ur að við erum saman í að byggja eitthvað upp, öll fjölskyldan,“ seg- ir Ísólfur. „Ég hélt reyndar þegar ég var yngri að ég myndi ekki ná að verða fertugur. Ég veit ekki af hverju, ég hélt það bara. Maður er búinn að lenda í mörgu, missa vini og lífið á okkur félögunum var ekkert allt- af það besta. Þegar maður er ung- ur og hugsar um sig fertugan þá sér maður bara fyrir sér einhvern gamlan karl. Svo vaknar maður eft- ir nokkrar vikur, orðinn fertugur en ennþá sami gaurinn, bara með örlítið meiri reynslu,“ segir Ísólfur. „En maður tekur því bara vel, þetta er líka spurning um attitjút. Maður verður að vera jákvæður fyrir líf- inu. Þó að neikvæðnin sé nauðsyn- leg með og inn á milli þá má hún aldrei taka stjórnina. Maður verður að vera á tánum og opinn fyrir öllu. Hliðarverkefnin sem maður tekur að sér eru oft skemmtilegust og nauðsynleg til að krydda tilveruna og halda manni við efnið.“ Báran brugghús að komast á rekspöl Eitt slíkra hliðarverkefna er Báran Brugghús, sem er einmitt að kom- ast á rekspöl um þessar mundir. Brugghúsið er komið með rekstrar- leyfi og fyrstu bjórarnir voru seldir á Þorrablóti Skagamanna um liðna helgi, tvær tegundir. Þá er bjór frá Bárunni einnig kominn á krana á Gamla Kaupfélaginu. „Að Bár- unni stendur stór hópur, tíu hlut- hafar, og þetta eru allt snillingar. Í grunninn er þetta áhugamanna- félag um bjór, menn sem hafa það fyrir áhugamál að brugga. Þegar aðrir kaupa sér nýja golfkylfu kaupa þeir sér nýjan bjórkrana eða kút og prófa aðra uppskrift,“ segir Ísólf- ur. „Þetta er fyrsta löglega brugg- húsið á Akranesi svo ég viti, þó hér í bæ hafi auðvitað verið bruggað alls konar landasull í gegnum tíð- ina,“ segir hann og hlær við. „En á Bárunni brugghúsi verður fram- leiddur hágæðabjór. Í framtíð- inni langar okkur að vera með smá svona sögusetur um Akranes í Bár- unni. Núna erum við að vinna að því að koma vörunni okkar af stað í sölu. Þá kemur fé inn í reksturinn og með tíð og tíma getum við farið að taka á móti fólki. Okkur langar að hafa smá sögusetur um Akranes í Bárunni, þar sem fólk getur kom- ið, fræðst um bæinn og starfsemina þar eftir að brugghúsið verður opn- að formlega. Ég á von á því að fyrst um sinn verði slík opnun bundin við einstaka viðburði og skipulagð- ar hópferðir. Vonandi rennur upp sá dagur fyrr en síðar að hægt verði að hafa reglulegan opnunartíma í Bárunni brugghúsi. Þangað til ein- beitum við okkur að því að koma sölunni af stað,“ segir Ísólfur. Viðburðaríkt ár að baki Við erum komin nálægt núinu í tíma og 2018 var stórt ár hjá Ísólfi. Hann stóð fyrir endurkomutón- leikum Írafárs með miklum bravúr síðasta sumar, þar sem seldist upp í Eldborgarsal Hörpu fyrir hádegi á fyrsta degi miðasölunnar og nánast varð uppselt á aukatónleikana sama dag. En Ísólfur gerði ekki síður vel í heimabænum vorið 2018, þeg- ar hann tók að sér að halda Söng- keppni framhaldsskólanna með að- eins tveggja vikna fyrirvara. „Ég viðurkenni að þá spurði ég mig hvort ég væri endanlega orðinn ruglaður,“ segir Ísólfur og hlær við. „Það var hringt í mig þegar var far- ið að nálgast miðnætti á miðviku- degi og spurt hvort ég gæti hald- ið keppnina. Ég svaraði bara ját- andi og var ekkert búinn að hugsa út í þetta meir,“ segir hann. Ísólf- ur segist hafa hringt nokkur símtöl og alls staðar hafi viðkvæðið verið það sama. Hann var varaður við, verkefnið væri ómögulegt á þessum tíma. Búið hafi verið að fresta söng- keppninni og síðan aflýsa henni. Það eitt og sér ætti að vera nóg til þess að segja honum að það væri al- gert glapræði að taka verkefnið að sér. En Ísólfur var hvergi banginn og hefur raunar aldrei verið það. „Mamma sagði einu sinni við mig; „vandamálið við þig Ísólfur er að þú ert ekki hræddur við neitt.“ Það er margt til í því og það hefur margoft komið mér í koll en líka fleytt mér áfram,“ segir hann. Algjör sælutilfinning eftir söngkeppnina „En þennan fimmtudag, daginn eftir að fyrst var hringt í mig út af söngkeppninni var ég búinn að skipuleggja sjóvið í megindráttum. Það gekk allt upp. Ég var kominn tilboð í sjónvarpsútsendingu frá öll- um sjónvarpsstöðvunum, búinn að fá tónlistarmenn til að spila undir þó það hafi reyndar klikkað seinna, en heilt yfir þá gekk allt vel. Ég var í samskiptum við 26 nemendafélög og hvert og eitt atriði þurfti að vera svona og svona, búinn að semja um tækjabúnað og skipuleggja hvenær fólk gæti komið. Allt ætlaði þetta að ganga upp,“ segir hann. „Á meðan á þessu stóð þá ætlaði ég alltaf að stinga af og fara til Akureyrar ein- mitt þessa helgi, því ég var búinn að lofa konunni því,“ segir hann og hristir hausinn. „Ég var bara harður á því að fara í þessa ferð þangað til Aldís stoppaði mig af, því ég hefði aldrei svikið það. Mikið var ég samt ánægður að hún gerði það. Ég var búinn að ráða frábært fólk í þetta með mér og auðvitað hefði þetta allt gengið upp en ég hefði aldrei vilja missa af þessu. Að sjá þetta allt saman smella var ólýsanlega gam- an. Eftir keppnina var eitt augna- blik sem allir sem komu að þessu stóðu bara grafkyrrir. Krakkarn- ir, sjónvarpsfólkið frá RÚV, tækni- mennirnir, dómnefndin og ég. All- ir stoppuðu eitt augnablik, litu á hvorn annan og trúðu ekki að þetta hefði gengið upp. Algjör sælutil- finning,“ segir hann. „Það kemur allt úr umhverfinu“ Ísólfur lítur ánægður til baka yfir farinn veg og er fullur tilhlökk- unar fyrir komandi tímum. „Árið 2018 var risastórt ár hjá okkur, við erum komnir með félag sem get- ur allt þegar kemur að veislum og viðburðahaldi, ásamt bjórnum í þokkabót þá getur þetta ekki klikk- að – sjö, níu, þrettán,“ segir hann og brosir. „En maður verður allt- af að hafa í huga að stundum verð- ur að horfa út fyrir boxið og taka kannski tvö, þrjú hliðarskref til að finna lausnina. Ef eitthvað klikk- ar þá kemur alltaf eitthvað annað í staðinn. Til að finna það verður maður að tala við fólkið í kring- um sig og fá það til að hjálpa sér að leita að lausninni. Það er eng- inn svo klár að hann geti gert allt einn og að hugmyndirnar spretti fram í tómarúmi. Það kemur allt úr umhverfinu og frá fólkinu sem þú ert með. Umfram allt verða menn að reyna að hafa gaman af því sem þeir gera og að vera með gott fólk í kringum sig,“ segir Ísólfur Har- aldsson að endingu. kgk Ásamt starfsfólki Veisla og viðburða ehf. í skemmtiferð í Reykjavík síðasta vor. Ljósm. Gamla Kaupfélagið. Á góðri stundu að syngja Kátir voru karlar baksviðs á Lopapeysunni 2018 með Birgittu Haukdal, Jóni Jónssyni og Friðriki Dór Jónssyni. Ljósm. úr einkasafni. Ísólfur og Lína langsokkur fyrir utan Hlégarð vorið 2015. Ljósm. úr einkasafni. Ísólfur og Hallgrímur Ólafsson, Halli melló, í aðdraganda Lopapeysunnar á Írskum dögum 2016, en Halli sá þá um skipulagningu hátíðarinnar. Ljósm. úr safni.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.