Skessuhorn - 30.01.2019, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 201914
Á Sögulofti Landnámsseturs Íslands í
Borgarnesi var á laugardaginn frum-
sýndur einleikurinn Farðu á þinn
stað, minningar Theodórs Kristins
Þórðarsonar, í leikstjórn Geirs Kon-
ráðs Theodórssonar. Sjálfur kynnir
höfundurinn og eini leikarinn í sýn-
ingunni verkið sem sjálfsævisögu-
legan einleik þar sem ferðast er allt
frá Kínahverfinu í Borgarnesi og
fram á Ystu Nöf þar sem hann nú
býr ásamt Maríu Erlu Geirsdóttur
eiginkonu sinni. Verk þetta byggir á
minningum Tedda allt frá uppvaxt-
arárunum í Borgarnesi; forfeðrun-
um og frændgarðinum gerð góð skil
með sýnilegri væntumþykju. Bland-
að er inn í nokkra söguhringi þátt-
um úr starfi og leik, kryddað með
frásögnum af litríkum samferða-
mönnum og drepið jafnvel á óupp-
lýst (saka)mál í heimabænum. „Þeg-
ar við hættum að taka eftir skrítnu
kvistunum sem lita samfélagið sem
við búum í, er það vegna þess að við
erum sjálfir orðnir hluti af þeim,“
sagði Theodór þegar hann vitnaði
í samtal sem hann átti eitt sinn við
Einar Ingimundarson málara.
Handrit og uppsetning þessarar
sýningar er útpælt og aldrei í tæp-
lega tveggja tíma sýningu leiddist
áhorfendum. Þvert á móti var mik-
ið hlegið og oft fór ánægjukliður um
salinn þegar ljósmyndir af gengnum
vinum birtust á skjánum. Teddi hef-
ur alla tíð verið liðtækur ljósmyndari
og myndirnar sem hann hefur tínt til
krydda frásögnina lífi og hjálpa mik-
ið við að færa áhorfendur til baka í
huganum.
Lífshlaup Theodórs er fjölbreytt
og af mörgu að taka hjá manni sem
ætíð hefur ræktað sagnalistina. Hann
sem pjakkur ólst upp í litríku sam-
félagi sem var allt í kringum bæinn
Dal, lærði rennismíði á yngri árum
en gekk síðar í lögregluskólann og
gerði að ævistarfi. En þau voru fjöl-
mörg aukaverkin sem hann hefur
tekið að sér. Var meðal annars frétta-
ritari Moggans, dyravörður á hótel-
inu, liðtækur í leikstarfi, gerði út bát
og stofnaði flugklúbb. Teddi hefur
því sífellt verið á ferð og flugi og í
áranna rás safnað aldeilis ótrúlegu
magni af minningum sem í verkinu
eru dregnar fram þannig að úr verð-
ur mögnuð frásögn, skemmtileg,
laus við tilgerð og sem engan meið-
ir. Vænst af öllu þótti mér um hversu
hlýlega hann sagði frá vinum sínum
Sveini M Eiðssyni og Júlíusi Axels-
syni, fólkinu á Grjóti, Steina Jóru og
mörgum fleirum. Fólki sem fetaði
ekki endilega sömu slóðir og aðrir,
en bjó yfir hæfileikum sem gerðu
það ódauðlegt í minningunni.
Farðu á þinn stað, í flutningi
Tedda löggu, er tvímælalaust eitt
heilsteyptasta og skemmtilegasta
verk sem sett hefur verið á fjalirn-
ar í seinni tíð. Að mínu áliti er það
beinlínis skylda allra sem eiga rætur
í Borgarnesi og héraðinu öllu að sjá
þessa mögnuðu sýningu. Því er að
mínu viti hófstillt áætlun Tedda um
alls fimm sýningar á verkinu, þegar
fokin út í veður og vind.
Magnús Magnússon
Þær tóku daginn snemma konurnar
í Kvenfélagi Ólafsvíkur síðasta
þriðjudag. Þá bökuðu þær 2.070
sólarpönnukökur, ýmist með sykri
eða rjóma. Hófust þær handa við að
baka um hálf fimm leytið um morg-
uninn en deigið höfðu þær útbú-
ið daginn áður að hluta til. Fyrir-
tæki og stofnanir sem höfðu pantað
pönnukökur ýmist sóttu eða fengu
þær keyrðar til sín og var byrjað
að keyra út fyrir klukkan átta um
morguninn. Bakstrinum og frá-
gangi var svo lokið um klukkan ell-
efu.
Í Kvenfélagi Ólafsvíkur eru 37
félagskonur og mættu allar sem
vettlingi gátu valdið í þetta verk-
efni en bakstur á sólarpönnukökum
er ein af aðal fjáröflunum félags-
ins. Vildu kvenfélagskonurnar fá að
koma á framfæri kæru þakklæti fyr-
ir þær góðu viðtökur sem þær ætíð
fá við þessu verkefni sínu. þa
Bökuðu sólarpönnukökur
fyrir íbúa Snæfellsbæjar
Kvenfélagskonur sælar og glaðar eftir baksturinn.
Íbúar Grundarfjarðar tóku fagn-
andi á móti fyrstu sólargeislum
ársins þegar hún sendi geisla nið-
ur í byggðina í örskamma stund
mánudaginn 28. janúar. Vafalaust
hafa einhverjir íbúar dregið fram
pönnukökupönnur og þeytt rjóma
í tilefni dagsins. Dagarnir verða nú
sífellt lengri með hverjum degin-
um og eflaust eiga sólargeislarn-
ir eftir að ylja bæjarbúum oftar á
næstu misserum.
tfk
Sólin lét sjá sig í Grundarfirði
Sólin gyllir Kirkjufellið skömmu eftir hádegið síðasta mánudag.
Þarðu á þinn stað - frumsýning á Söguloftinu
Þórir Þorvarðarson var fenginn í hlutverk statista þegar Teddi sýndi gestum þegar hann var rotaður í ærslum hjá þeim Kletts-
bræðrum. Eggert læknir sagði hann hafa fengið heilahristing og fyrirskipaði viku frí frá skóla.
María Erla, Theodór og Geir Konráð að frumsýningu lokinni.
Kjartan og Sirrý í Landnámssetrinu voru í skýjunum með nýjustu sýninguna á
Söguloftinu.
Meðal fastra liða í fjáröflun So-
roptimistaklúbbs Akraness er gríð-
armikill pönnukökubakstur daginn
fyrir bóndadag. Fyrirtæki kaupa þá
rjómapönnsur eða sykraðar og fá
ekið heim að dyrum að morgni
bóndadags. Klúbbkonur höfðu því
í nægu að snúast á fimmtudaginn
og bökuðu á fimmta þúsund ilm-
andi pönnukökur. Þær smökkuð-
ust með ágætum - það getur rit-
stjórn Skessuhorns staðfest.
mm/ Ljósm. als.
Pönnukökur víða á
borðum á bóndadaginn