Skessuhorn


Skessuhorn - 30.01.2019, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 30.01.2019, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 201920 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com SK ES SU H O R N 2 01 8 TEK AÐ MÉR GARÐAÚÐUN ALLA DAGA VIKUNNAR GARÐAÚÐUN REYNIS SIG SÍMI: 899-0304 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is Nýverið var auglýst eftir nýjum tómstunda- og íþróttafulltrúa í Strandabyggð. Fjölmargt er undar- legt við auglýsinguna sjálfa og um- ræðuna í aðdraganda hennar. Aug- lýst er eftir íþróttafulltrúa, en þó er ekkert minnst á neitt íþróttatengt. Auglýst er eftir 70%-100% starfi sem vekur upp spurningar, telur sveitarstjórnin virkilega að 70% starfshlutfall dugi eða á kannski að ráða fleiri en einn í 70% starf og auka þannig umfangið? Hið síðar- nefnda er skynsamlegt, hið fyrr- nefnda glórulaust. Það sem sting- ur allra mest í augu er menntunar- krafan. Hér er einungis óskað eft- ir menntun við hæfi, ekki háskóla- menntun við hæfi, ekki tómstunda- og félagsmálafræði eða annarri uppeldismenntun. Einstaklingur gæti þess vegna hlotið starfið eftir grunnskólapróf og virka þátttöku í eigin félagsmiðstöð, sem vissulega er mikið nám. Fjölmargir hafa látið í sér heyra vegna þessa, sem eðlilegt er. Rætt hefur verið við sveitarstjórnarfólk og sveitarstjóra hafa borist bréf. Auglýsingunni hefur verið breytt, nú er krafist háskólamenntunar. Gott og blessað, en ef skilningur væri fyrir hendi og virðing borin fyrir þessu merkilega starfi hefði auglýsing sem þessi aldrei hlotið samþykki heldur hefði verið vand- að til verka í upphafi og metnaður lagður í að laða framúrskarandi að- ila að starfinu. Þessu starfi sem er sérstaklega mikilvægt litlum sam- félögum þar sem takmarkað fram- boð er á afþreyingu og mikilvægt er að virkja sem flesta til virkr- ar þátttöku til að tryggja framtíð byggðarlagsins. Ég var eitt sinn tóm- stundafulltrúi Ég elskaði þetta starf. Tæki- færin sem ég gat veitt ungmenn- um til að finna sig, áhugamál sín og framtíðaráform. Möguleikarn- ir sem voru fyrir hendi til að gera svo miklu meira fyrir fólk á öllum aldri. Þróunarstarf á samstarfi við skóla og í stórefldu frístundastarfi fyrir grunnskólabörn. Ungmenn- aráð og forvarnarteymi. Áætlan- ir um bætt íþróttastarf. Viðburð- arstjórnun menningarviðburða, sýningarstjórnun og samskipti við listamenn og menningarstofnanir. Samstarf, stjórnarseta og þátttaka í stórfenglegu starfi með framúr- skarandi fagfólki á landsvísu og í allri Evrópu. Þetta er bara brota- brot af því sem ég tók þátt í sem tómstundafulltrúi í litlu sveitarfé- lagi úti á landi. Ég þoldi hins vegar ekki viðhorf fólks. Fólks sem virtist lifa í þeirri trú að starf tómstundafulltrúa væri fyrst og fremst áhugamál einstak- linga sem væru fastir á gelgjuskeið- inu og óskuðu því eftir því að fá að hanga með unglingum. Fólks sem heldur að þetta snúist bara um að opna fyrir pakkinu og bíða félags- miðstöðvaropnunina af sér. Fólks sem telur enga sérfræðikunnáttu nauðsynlega. Starf tómstundafulltrúa ein- skorðast ekki við að opna hurð að hvolpalátarými fyrir unglinga vikulega. Þetta er ekki einu sinni hluti af starfinu, ekki nema þá hjá einstaklega vanhæfum starfsmanni með enga fagþekkingu. Starfið snýst um að tryggja það að hverj- um og einum einstaklingi, óháð hvers kyns hömlunum eða áhuga- sviði, bjóðist tækifæri við hæfi. Tækifæri sem hjálpa viðkomandi að verða besta mögulega útgáfan af sjálfum sér, styrkja böndin við aðra og samfélagið sitt um leið og auka þannig líkurnar á framtíðarbúsetu á svæðinu. Slíkur einstaklingur er margfalt líklegri til að feta gæfu- ríka leið í gegnum lífið, gefa af sér, skapa og auðga samfélag sitt en þeir sem aldrei hljóta hljómgrunn eða vaxtartækifæri. Þetta göfuga markmið nær þó aðeins utan um hluta þess starfs sem tómstundafulltrúi sinnir. Það hlýtur að sanna að það er ekki síð- ur mikilvægt að tómstundafulltrúi hafi viðeigandi menntun en kenn- ari, sveitarstjóri eða hver sá sem kemur að uppbyggingu og rekstri sveitarfélags og einstaklinganna sem það byggja. Vanhæfur tóm- stundafulltrúi er beinlínis hættu- legur samfélaginu og þeim sem nýta þá þjónustu sem er á hans vegum. Viðamikil reynsla, viðeig- andi menntun og yfirgripsmikil þekking er jafnvel enn mikilvægari í litlum sveitarfélögum úti á landi en þar sinnir viðkomandi gjarn- an verkefnum sem deilast á marga í stærri byggðarlögum svo ekki sé minnst á mikilvægi þess að tryggja jákvæða íbúaþróun með grósku- miklu tómstundastarfi. Feilspor Strandabyggðar er ekki einsdæmi og það hófst ekki með misheppnaðri atvinnuauglýsingu. Einmitt þess vegna er kominn tími til að fagfólk í frítímaþjónustu láti til sín taka. Nú er tækifæri til að bæta sig, skara fram úr og sýna öðrum sveitarfélögum hvernig skal bera virðingu fyrir starfi sem er samfélaginu bráðnauðsynlegt. Við skorum á sveitarstjórn að sækja sér endurmenntun er varðar málefni tómstunda hið fyrsta, sýna auk- inn metnað og biðjast velvirðing- ar á vanhugsuðum auglýsingum og vanvirðingu í garð fagfólks á frí- stundasviði og fyrrum tómstunda- fulltrúa sinna. Fyrir hönd Félags fagfólks í frí- tímaþjónustu, Esther Ösp Valdimarsdóttir, ung- mennamannfræðingur og kennari, fyrrverandi tómstundafulltrúar í Strandabyggð og núverandi íbúi og stjórnarkona í Félagi fagfólks í frí- stundaþjónustu. Ég var tómstundafulltrúi Pennagrein Miðvikudaginn 6. febrúar býður Grunnskóli Snæfellsbæjar til Skóla- þings. Skólinn varðar okkur öll, sérstaklega nemendur, foreldra og starfsfólk. Það er dýrmætt að þessir hópar komi saman af og til og ræði um skólastarfið og hvernig hægt er að gera enn betur. Á þinginu munum við heyra sjón- armið nemenda og ræða í hópum, hvaða eiginleikum og hæfni við vilj- um að nemendur sem útskrifast úr GSnb búi yfir. Við fáum okkur pizz- ur, hlustum á barnakórinn og höfum gagn og gaman af. Nú eru liðin sjö ár frá síðasta Skólaþingi. Út úr því kom með- al annars sú áhersla á átthagafræði, sem hefur skapað skólanum sér- stöðu. Viljum við breyta áherslum? Ættum við að endurskoða einkunn- arorðin, sem í dag eru; „vellíðan, gleði og einstaklingsþroski“? Og hvað verður svo gert með af- rakstur þingsins? Það sem fram kemur á skóla- þinginu, bæði það sem fólk hefur metnað fyrir og áhyggjur af, verður notað sem efniviður við breyting- ar á Skólanámskrá og Starfsáætlun GSnb. Allt verður tekið til skoðunar og vegið, metið og mátað. ILDI, sem hefur umsjón með Skólaþinginu, mun vinna saman- tekt um þingið sjálft, en úrvinnsla inn í Skólanámskrá og Starfsáætl- un GSnb verður í höndum Skóla- ráðs. Jafnframt verður óskað eftir að einn fulltrúi frá bæjarstjórn taki þátt í vinnunni. Þessi hópur tekur endanlega ákvörðun um hvað ratar inn í Skólanámskrá og Starfsáætlun GSnb. Samantektin frá þinginu, og nýjar útgáfur af Skólanámskrá og Starfs- áætlun, verður birt á vef skólans og send í tölvupósti til þeirra sem það vilja. Einnig verða birtar fréttatil- kynningar í Jökli. Vonast er til að sem flestir geti gefið sér þessa kvöldstund í samtal um skólann, sérstaklega nemendur og foreldar hvaðanæva að úr Snæ- fellsbæ. Ræðum saman um það mik- ilvæga verkefni að undirbúa börnin okkar og unglingana fyrir framtíð- ina. Skráning þátttöku er á slóðinni: https://goo.gl/forms/liC0hDhSAK- CIErp73 Hilmar Már Arason. Höf. er skólastjóri Grunnskóla Snæ- fellsbæjar Pennagrein Skólaþing í Snæfellsbæ

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.